Teningur - 01.05.1990, Blaðsíða 45
BRETASÖGUR / 43
kafli hverrar í senn: sú fyrsta fjallar
um ungan saklausan myndlistarnema
Graham Park sem er ástfanginn af sér
reynslumeiri stúlku, önnur greinin frá
ofsóknarbrjálæðingnum Steve Grout
sem telur sig vera stríðsmann af ann-
arri plánetu en jarðarbúa óvinahyski
sem kvelur hann með blekkingum,
þriðja sagan er geimfantasía sem ger-
ist í súrrealískum kastala þar sem hin
öldruðu skötuhjú Quiss og Ajani eru
innilokuð. Þau þurfa að leysa af
hendi hinar flóknustu og ómöguleg-
ustu leikja- og spilaþrautir en iang-
sóttar lausnirnar veita þeim rétt til að
spreyta sig á þverstæðunni „Hvað
gerist þegar óstöðvandi kraftur rekst
á óbifanlegan hlut?“ Þeim tekst aldrei
að svara þessu og þurfa að glíma við
nýja spilaþraut að loknu hverju svari.
Spurningin er hins vegar táknræn
fyrir alla árekstra í sögunum, eigin-
lega og óeiginlega.
Það virðist í senn þjóna spaugsemi
höfundar og alvöru hans við að sanna
gildi viðhorfa sinna að láta svo ólíkar
sögur tengjast. Fáránlegar tilviljanir
tengir þær efnislega en sambærileiki
örlaga og athafna persónan er skýr:
allar leitast þær við að losna úr tilveru
sinni og klífa þröskuldinn yfir í sæl-
una: kaflar fyrstu sögunnar heita eftir
þeim götum í Lundúnum sem Gra-
ham Park á leið um og síðasti kafli
þess hlutar ber nafn götunnar þar sem
sú heittelskaða býr en þar bíða pilts-
ins hræðileg svik. Kaflaheiti sögunnar
um brjálæðinginn Grout eru nöfn
þeirra jarðarbúa sem hann hittir en
kaflaheiti þriðju sögunnar eru eftir
spilaþrautunum sem Quiss og Ajani
þurfa að leysa.
Þungamiðjan í The Bridge er saga
hins minnislausa John Orr sem
rankar við sér og tekur að lifa á risa-
stórri brú, flóknu og hrikalegu mann-
virki sem með súrrealískum hætti
endurspeglar vestrænt nútímaþjóð-
félag. A brúnni hefur Orr það sér-
kennilega en vellaunaða starf að vera
sjúklingur hjá virtum geðlækni sem
árangurslaust reynir að grafast fyrir
um fortíð hans. Þessari sögu tengist
leynt og ljóst urmull annarra sagna og
mynda en mestu máli skiptir þar líf
ungs verkfræðings og brúarhönnuðar
sem lendir í bílslysi og dauðadái.
Hann birtist í sjónvarpsskerminum
hjá John Orr án samhengis við sjón-
varpsdagskrána. Undir lok sögunnar
renna þeir saman og í ljós kemur að
allt sem gerst hefur á brúnni eru
draumar verkfræðingsins í dauðadá-
inu. Hér er skemmtilega farið með
líkinguna um brúna milli lífs og
dauða.
í fimmtu skáldsögu Banks, Espe-
dair Street má greina nýja hlið á
grunnþemum höfundarins: sem fyrr
má maðurinn sín einskis gegn
blindum krafti tilviljunarinnar en til-
viljunin getur líka snúið lífi fólks til
óvæntrar gæfu jafnvel þó að það
breyti heimskulega. Aðalpersónan er
útbrunnin poppstjarna sem gerir upp
lífshlaup sitt. Hann hefur fengið
ýmsar snjallar hugmyndir sem hafa
haft skelfilegar afleiðingar en loksins
þegar hann gerir nokkuð sem virðist
óraunsætt og heimskulegt en þó róm-
antískt þá verður það til þess að leiða
hann úr óhamingjunni og eymdinni,
einfaldlega vegna þess að heppnin
reyndist vera á bandi hans.