Birtingur - 01.07.1955, Page 28

Birtingur - 01.07.1955, Page 28
ALEXANDER PÚSKÍN: Haust (úr „Évgéní Onégín) Andar hausti himinn víður horfnar eru sólskinsblíður, styttist, dofnar dagurinn; dreifir laufi skógurinn, sífrar þungt í svölum vindi; sveipar akra þoka grá; gæsahópar heiðum frá halda suður: snauð af yndi nálgast tíð, er nú sem fyr, nóvember oss þrengir dyr. ALEXANDER SERGEJEVITSJ PÚSKÍN (1799-1837) var a3 faðerni kominn af gamalli rússneskri aðalsætt. Móðurafi hans var hins vegar Abyssíníumaður sem komst til vegs í Rússlandi í stjórnartíð Péturs mikla. Púskín stundaði nám í skólanum í Tsarskoje Sélo, í nágrenni St. Pétursborgar, (1811—1817), en sá skóli var einkum ætlaður ungum aðalsmannasonum. Púskín tók að fást við Ijóðagerð þegar á barnsaldri, (orti þá mest á frönsku sem var álíka mikið mál rússneskrar yfirstéttar í þann tíð og danska var áður í kaupmannafamilíum á Islandi). Fyrstu kvæði hans voru prentuð 1814, en sem skáld sló hann fyrst í gegn með ævintýraljóðinu „Rúslan og Ljúdmíla44 sem út kom 1820. Sama ár var hann rekinn í útlegð til Suður- Rússands (Kákasus, Krím, Besarabíu, Odessa) fyrir byltingar- sinnuð kvæði. Á þessum útlegðarárum kynntist hann fyrst skáldskap Byrons í franskri þýðingu og gætir áhrifa þeirra kynna nokkuð í verkum hans frá þeim tíma. Að vísu ristu þessi áhrif aldrei djúpt hjá Púskín, en „byronsku" kvæðin hans hlutu geysimikar vinsældir og voru mikið stæld af sam- tímaskáldum. Árið 1824 var Púskín dæmdur í nýja útlegð til óðals feðra sinna í Pskov-héraði. Þar sat hann til ársins 1826, en þá sá Nikulás I. aumur á honum og tók sjálfur að sér ritskoðun á kvæðum hans. Á árunum 1824 —‘31 ritaði hann mörg hinna beztu verka sinna m. a. Evgénij Onégín, Sígóenana, Boris Godúnov og Poltava. Árið 1931 gekk hann að eiga Natalíu Gontsjarovu sem fræg var fyrir fegu»-ð, en kannski nokkuð léttúðug. Vegna þessarar konu sinnar leiddist hann út í einvígi við franskan spjátrung 1837 og dó af skot- sári sem hann hlaut í þeirri viðureign. í rússneskum bókmenntum skipar Púskín sama 6æti og Dante í þeim ítölsku, eða Goethe í þeim þýzku. Samanborið við íslenzk skáld verður honum einna helzt jafnað við Jónas Hallgrímsson, þótt sá samanburður sé hvergi nærri einhlítur. Ljóðsagan Evgenij Onégín mun almennt talin aðalverk hans. Það sem hér birtist í íslenzkri þýðingu er 40. og 41. erindi í fjórða kafla þessarar sögu, og er þó sleppt fjórum fyrstu vísuorðunum framan af fyrra erindinu, þar sem þau eru að mestu leyti tengiliður við næsta erindi á undan. G. K . Morgunn rís úr móðu frosta; mannauð standa og hnípin tún; úlfur frár á fárra kosta, flykkist nú meS vegarbrún — felmtri sleginn frísar hcstur, ferðavanur næturgestur hleypir undan hratt sem má; humlur standa básum á; allt er kyrrt í útihögum, enginn smali á léttum skó heyrist þeyta horn í mó; heima í koti gleðst af bögum mærin rjóð og snældu snýr, snarkar furukveikur hýr. Geir Kristjánsson jiýddi úr rússnesku. 26

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.