Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 34

Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 34
og áfram, hamaðist á færinu, en allt kom fyrir ekki. Loks sagði hann: Þú ert að fáann. Reiting, sagði ég. Ég botna ekkert í þessu. Ég er nú búinn að keifa það í fimmtíu ár og annað eins hef ég aldrei vitað. Annað hvort er ég dauður úr öllum æðum eða þú ert mesta fiskilús sem á fjölum hefur flotið. Það er færið, sagði ég. Færið, sagði hann snefsinn, þú heldur þó ekki að þessi drjóli þinn skapi fiskinn. Það skyldi nú ekki vera, sagði ég. Já, hvað haldiði, hvað haldiði, fiskurinn tekur allt í einu uppá því að fælast gömlu dræsuna og sækja að þessu djöfuls fígúru- verki. Nei, það er eitthvað bogið við þetta. Er nú ekki að orðlengja það, að þegar sól- in átti skammt til hvarfs höfðum við hlaðið bátinn, og þó ég segi sjálfur frá er ekki of- sagt að tveir þriðju aflans hafi komið á jakobsnaut. Ég var í sólskinsskapi, allan daginn hafði veiðihugurinn hítað mér og fengið nægju sína af glitrandi þorski sem fyllti bátinn stafna milli, og nú rann hann heimleiðis þungur af byrði sinni svo sauð um hástokka. Að baki var jökullinn sleginn fölæm roða, framundan risu eyjarnar úr kyrr- um sjó, en i vestri hrönnuðust eldský ofar sólu. Úti við hafsbrún risu hvít skýjafjöll upp af sjávarfletinum og þar liðu reykjar- strókar til himins. Gamla manninum þótti aflinn góður, en illa fenginn, hér voru brögð í tafli og það kunni ekki góðri lukku að stýra. Það gat sosum verið að gljáinn á þessum drjóla gengi í augun á fiskinum, en görnin sú arna, svei því .... Við tókum land undir rökkur, leiðarljósin rauð og græn leiftruðu á hafnargörðunum og ljósrákir frá bryggjum og bátum klufu höfnina. Við vorum ekki fyrr lagztir að bryggju en þar var kominn mannsöfnuður. Þeir býsnuðust yfir aflanum og sögðu: Jú, gamli seigur, ekki bregzt hann þér frekar en fyrri daginn. En gamli maðurinn sagði fátt, rétt eins og það væri ekki umtalsvert þótt hann kæmi með hlaðinn bát að landi. Næsta morgun vorum við komnir inn á grunn í birtingu. Það var sama blíðan. Kvöld- ið áður hafði ég farið til Jakobs og fengið mér varasökkur og nýjan þráð, blágrænan einþráðung mjóan eins og hörtvinna og ég var einmitt að hnýta hann við sökkuna þegar ég tek eftir því að gamli maðurinn er eitthvað svo hvimulegur þar sem hann bograr í skutn- um. Og viti menn: blikar þá ekki á jakobs- naut í höndum hans. Jæja karlinn, þú hefur þá slegið þér á einn dindil, sagði ég. Það þusaði í honum. Og náttúrlega nýju þræðina, bætti ég við. Mér skilst það sé drjólinn en ekki görnin sem hann gleypir, sagði gamli maðurinn, staðráðinn 1 að gefa sig ekki, því hann hafði bundið glitfiskinn á annan taum gömlu sökk- unnar. Ekki varð úr orðræðum að sinni, ég var þegar fastur í fiski. En gamla mannin- um tókst ekki að fá hann með sinni aðferð. Það leið þó nokkur stund; nýveiddir fiskarn- ir ropuðu luntalega, svipljótir í dauðateygj- unum og blóð þeirra litaði þóttur og súð. Ég fann sjávarloftið í nösum mínum, kait og salt. Hvítt morgunskinið féll ofan í sléttan sjóinn. Eftir langa mæðu dró gamli maðurinn fisk, en hann kom þá ekki á jakobsnaut heldur á gömlu hneifina. Það skipti engum togum, hann leysti glitfiskinn af, vó hann eitt and- artak í hendi sér, brá síðan við snöggt og fólskulega og kastaði honum eins langt burt frá bátnum og hann var maður til. Hafðu skarpa skömm fyrir, sagði hann og skyrpti á eftir gripnum þungur á brún. Það sauð í mér hláturinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.