Birtingur - 01.07.1955, Side 47
„Ilauhaus" i
Dessau, Þýzka-
landi, eftir
Walter Gropius,
1925.
Stálbitinn og
járnbent
steinsteypa
Sérhæfing
vinnunnar
verksmiðjum: I einni eru smíðaðir gluggar, annarri hurðir, þriðju lásar,
fjórðu lamir — og ekki fyrir neitt ákveðið hús, heldur hvaða hús sem er.
Þetta hefur tvenna kosti: menn eru fljótari að byggja, og það er ákaflega
mikilvægt nú á dögum, og það veitir mönnum öryggi, þegar reynsla. er
fengin af hverjum hlut. Hvaða áhrif hefur þetta á útlit húsa?
Stálbitinn og járnbent steinsteypa hafa þá höfuðkosti, að þau spenna
yfir stærra rúm en fyrr og bera meiri þunga. Stálbitinn er afkvæmi iðn-
þróunarinnar. Frakkarnir Hennébique og Coignet fundu upp járnbenta
steinsteypu á árunum 1880—-1890. Stálgrindur og járnbentar súlna- og
og bitagrindur veittu arkitektum algjörlega nýja möguleika. Áður hafði
þungi hússins orðið að hvíla á útveggjum að meira eða minna leyti, og
þess vegna voru takmörk fyrir því hve mikið var hægt að opna húshlið-
arnar fyrir birtunni að utan. Nú var í fyrsta skipti hægt að opna húsvegg-
ina að vild og hleypa dagsbirtunni inn í híbýlin. Nú var jafnvel ekki nauð-
synlegt að láta veggina ná niður á jörð.
Annað engu þýðingarminna er áhrif þau er sérhæfing vinnunnar hefur
á gerð þeirra hluta, sem byggt er úr.
Áður fyrr bar hver handverksmaður ábyrgð á þeim hluta byggingar-
innar, sem hann vann að og sá vaxa fyrir augum sér: steinbogi, súlna-
höfuð, hurðarlöm, allt var hans eigið handaverk. Á okkar tímum er öðru
máli að gegna: nú situr handverksmaðurinn við einhverja vél í einhverri
verksmiðju og framleiðir sama hlutinn í þúsundatali. Náttúrlega er hon-
um enn sem fyrr skylt að inna verk sitt vel af höndum, en þar eð hann veit
ekki, hvar hluturinn verður notaður, getur hann litlu ráðið um áhrif
hans á heildina. Ef til vill er ekki farið að reisa húsið, sem hluturinn verður
notaður i. Þetta er galli vélamenningarinnar. Þetta er enn ein skýring á
því hvers vegna listum yfirleitt hnignaði svo mjög, þegar vélaöldin gekk
í garð. Eins og fyrr segir komu smiðirnir með tæki sín og hráefni á staðinn
þar sem húsið skyldi rísa, og þótt húsameistari réði auðvitað ú*'Hti húss-
ins, tóku smiðirnir þátt í verki hans, vissu að hverju var stefnt, og allt
smátt og stórt var miðað við þetta hús og ekkert annað. Vélin rauf þessa
45