Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 5

Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 5
í söng hennar og vögguljóði, í bæn hennar og sögum, í ævintýrum hennar og tárum hennar glituðum geislum frá eldi ósk- anna. Það er þessi trúrækni, sem ber litla hönd til signingar, áður en tungan getur myndað orð, og það er hún, sem skilur eftir minningar, sem skapa ummæli eins og þetta: „Ó, elsku góða mamma mín, þín mynd í hug mér ljómar, er ljúfa vögguvísan þín, svo viðkvæm til mín hljómar“, eða: „Mitt andans skrúð var skorið af þér, sú skikkjan bezt hefur dugað mér.“ Og: „Enginn kenndi mér eins og þú hið eilífa, sanna, kraft og trú, né gaf mér svo guðlegar myndir.“ Engin móðir má vera svo þrælbundin í stjórnmálum og veraldarvafstri, að hún vanræki þennan þátt trúrækninnar í skapgerð góðrar móður, og þau áhrif, sem hann þarf að hafa á uppeldi barnsins. Og auðvitað hika ég ekki við að segja, að hún ætti að leiða það til hugsjóna krist- indómsins, kenna því að meta réttlæti, frið og bræðralag. En annars verður þar hver að fara sína leið. En þarna er samt ein sameiginleg hætta á vegi og það sér- staklega hinna beztu og trúræknustu og það er, að öfgarnar nái tökum. Fátt getur fjarlægt barnið meira hinum sönnu verð- mætum trúarlífsins en sú ofmötun, sem kemur fram í skýrastri mynd hjá sumum sértrúarflokkum, en á sér annars stað í óhugnanlegri mærð og kredduhjali, sem börnum verður mjög ógeðfellt, og getur jafnvel fjarlægt öll áhrif móðurinnar og skapað sundrung þar sem sízt skyldi. Góð móðir ber því helgidóma sína aldrei á torg, né kastar perlum sínum fyrir svín, heldur varðveitir trúrækni sína innan vé- banda skynsemi og háttvísi við hjarta sitt, barninu til handa. Viss blygðunar- semi í trúmálum er jafnnauðsynleg og sjálfsögð og í ástamálum. Þá kem ég að því þriðja, sem ég tel höfuðdyggð góðrar móður. En það er þjóðrækni. Eins og trúrækni hennar tengir hina verðandi persónu óslítandi böndum við orsök og upphaf tilverunnar, og um- hyggjusemin veitir barninu vernd og stuðning til fagurrar framkomu og heilla, þannig þarf þjóðrækni móðurinnar að móta því vissan stað og starfssvið í til- verunni. Stað til að unna og starfssvið til að fórna kröftum sínum í samstarfi við aðra. Góð móðir ræktar því allt það í sál barnsins, sem tengir það réttum tengslum við sögu lands og þjóðar, og venur það við sem flest og fjölbreyttust störf, sem þar eru unnin, sýnir því skyldleika og þjónustu eins við annan og einnar stéttar við aðra ofan og utan við öll stjórnmál, lætur það finna, hvernig allt sjálfstæði og frelsi þjóðar er háð þessum tengslum, þessu samstarfi. Hún sýnir, hvernig hver þegn þjóðfélagsins þarf að vera traustur hlekkur í hinni miklu keðju mannlegs samfélags og hver eigind þarf að njóta sín til vaxtar og átaka í sál hans. Einkum verður að vanda slíkt viðhorf í litlum og fámennum þjóðfélögum, þar sem hver einn vegur móti milljónum hinna stærri. Og í mótun þessa þegnskapar barnsins veit móðirin engin betri tæki en móður- málið, sögur þess, ljóð þess og listir, og svo það að kenna barni sínu með orð- um og eftirdæmi ást til allra manna án aðgreiningar, elska og virða umhverfi sitt, unz átthagaástin breytist í þann loga ættjarðarástar, sem helgastur verður hverju hjarta og ættjarðarástin í ljóma mannástar þeirrar, sem telur frið og bræðralag æðstu dyggðir samfélags í heimi öllum. Þannig er unnið af mæðr- unum að uppfyllingu innstu þrár mann- kyns, þránni eftir friði og öryggi. Enginn getur eflt þá þrá, þann guð- dómskraft betur en himingjöfin góða, sem er æðst gjafa frá föður ljósanna, konan, sem verðskuldar tignarheitið ofar öllum virðingarmerkjum þjóðhöfðingja heims- ins, að nefnast: Góð móðir. HÚSFREYJAN 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.