Húsfreyjan - 01.09.1957, Qupperneq 6

Húsfreyjan - 01.09.1957, Qupperneq 6
ÁVARP frú Guðrúnar Pétursdóttur, formanns K.í. við setningu 12. landsþings sambandsins. Hæstvirta forsetafrú og aðrir gestir. Virðulegu þingfulltrúar. Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin á þetta 12. landsþing Kvenfélagasam- bands Islands. Það er mér sérstök ánægja að sjá ykkur hér svo margar og sumar komnar svo langan veg til að sitja þing okkar. Síra Árelíusi Níelssyni þakka ég sérstaklega fyrir aðstoð hans til þess að gera þessa stund svo hátiðlega. Síðan síðasta landsþing Kvenfélaga- sambands Islands var haldið i júní 1955 eru nú liðin rúm tvö ár. Mér finnst við- eigandi að rifja upp, hvað markverðast hefur gerzt í félagsskap okkar á þessum tíma, og verður mér þá fyrst hugsað til þess, er við 60 húsmæður fórum á Hús- mæðraþing Norðurlanda, er haldið var á Nygaardstrand í Danmörku seinni hluta ágústmánaðar 1956. Þingið sátu á fjórða hundrað húsmæður frá öllum Norður- löndunum. Var ánægjulegt að sjá, að svo margar glæsilegar húsmæður frá Islandi skyldu hafa ástæðu til að fara svo langa og dýra ferð, en það get ég fullyrt, að öll framkoma þeirra á fundinum var góð landkynning fyrir ísland og þjóðinni til sóma. Frú Hulda Stefánsdóttir, skóla- stjóri á Blönduósi, flutti strax eftir heim- komuna ágætt útvarpserindi um ferðina og fundinn og mun ég því ekki ræða það frekar. Þá er að minnast á starfsemi félags- skapar okkar, og er þess þá fyrst að geta, að við höfum verið svo heppnar að ráða til Kvenfélagasambandsins ágætlega menntaðan húsmæðrakennara, ungfrú Steinunni Ingimundardóttur. Á hún að vera heimilisráðunautur sambandsins. Hefur hún starfað á vegum þess síðan í september 1956. Fyrst fór hún til Norður- landa að kynna sér, hvernig nágranna- þjóðir okkar, þar sem líkt hagar til og hjá okkur, haga þannig lagaðri fræðslu, og er hún kom aftur um síðustu áramót, tók hún til starfa fyrir sambandið og hefur ferðazt um milli kvenfélaganna og veitt húsmæðrunum ýmiss konar fræðslu og ráð. Mun hún á þessu þingi flytja skýrslu um starf sitt og erindi um, hvern- ig hugsað er að haga því í framtíðinni. Þá verð ég að minnast á það, sem verið hefur erfitt fyrir sambandið. Ungfrú Rannveig Þorsteinsdóttir, ein af stjórn- arkonum K. I. og framkvæmdastjóri sam- bandsins, hefur verið mjög heilsubiluð síðan síðastliðinn vetur og í nokkra mán- uði dvalizt á heilsuhæli erlendis. Hefur það valdið okkur miklum erfiðleikum að vera án hennar ágætu starfskrafta, svo kunnug sem hún er öllum störfum og mál- um sambandsins, en nú er hún komin heim aftur mun betri til heilsunnar og ætlar að minnsta kosti að starfa eitthvað hjá sambandinu fyrst um sinn. Vona ég, að hún fái sem fyrst fulla heilsu aftur og þykist þar mega mæla fyrir munn okkar allra. Kæru þingfulltrúar. Ég endurtek það nð bjóða ykkur af hjarta velkomnar til starfa, og vona ég, að íslenzkar heilladísir vaki yfir starfi okkar, svo að okkur verði ætíð efst í huga, að allt starf og áhugi á þessu þingi beinist að því eins og áður að gera heimilin sterkari og betri, að stuðla að bættum kjörum húsmæðra, svo að þær geti sem bezt helgað sig sínu að- alstarfi, barnauppeldinu, og verum ávallt minnugar þess, að heimilin eru hornsteinn þjóðfélagsins. Að svo mæltu segi ég 12. landsþing Kvenfélagasambands Islands sett. 6 HÚSFREYJAN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.