Húsfreyjan - 01.09.1957, Síða 9
r
bandsins færi sérstaka bók um fundi
sína og framkvæmdir.
Enda þótt hér sé ekki um víðtækar
breytingar að ræða, þarf þó að koma
þeim inn í lög allra héraðssambanda
á þann hátt, að vel fari. Er því nauð-
synlegt, að stjórnir allra sambandanna
skipi sem allra fyrst nefndir innan
sinna vébanda, er breyti lögunum í
samræmi við þessar tillögur og séu svo
þær lagabreytingar lagðar fyrir sam-
bandsfundi í vor til endanlegrar sam-
þykktar. Ekkert héraðssamband innan
K. 1. getur hliðrað sér hjá þessu eða
komizt undan því að breyta lögum sín-
um á þennan hátt, þar eð landsþing
K. f. hefur samþykkt, að svo skuli vera.
Hins vegar þarf ársfundur hvers hér-
aðssambands að hafa samþykkt lög
fyrir sig, þar sem þessar breytingar eru
teknar til greina. Er þá og hentugt
tækifæri, að endurskoða lögin í heild
og breyta til batnaðar, hafi reynslan
sýnt, að einhver lagaákvæði séu óhag-
kvæm. Mætti t. d. benda á, hvort ekki
mundi betur henta á sumum sam-
bandssvæðum, að konur í aðalstjórn
væru 5 í stað þriggja, sem víðast hvar
mun nú vera venja. Ennfremur tilhög-
un kosninga í stjórn, svo sem það hvort
ekki væri hentugt að formaður væri
kosinn sér til ákveðins tíma o. fl.
Skal svo eigi f jölyrt um þetta meira,
aðeins beina því til sambandanna, að
vanda sem bezt lagasetningu sína bæði
að efni og orðfæri, breyta lögunum eigi
of oft, en láta breytta tíma og aðstæð-
ur þó hafa þau áhrif, að eigi sé of lengi
búið við gömul og úrelt fyrirmæli.
Eins og sjá má í fréttunum af 12.
landsþingi K. I. varð nokkur breyting
á ritstjórn ,,Húsfreyjunnar“. Lætur
Sigrún Árnadóttir nú af störfum, en
hún hefur haft á hendi að sjá um
Manneldisþátt blaðsins. Við starfi
hennar tekur nú Kristjana Steingríms-
dóttir, sem einnig er mikilhæf og
áhugasöm um þau fræði, er þessi þátt-
ur fjallar um. Þá fóru þær Svafa Þór-
leifsdóttir og Elsa Guðjónsson fram á,
að þeim væru kjörnar varakonur og
voru þær Sigríður Thorlacius og Sig-
ríður Kristjánsdóttir kosnar. Býður nú
,,Húsfreyjan“ þetta nýja starfslið vel-
komið, því að vonir standa til, að þær,
varakonurnar, láti eitthvað frá sér
heyra við og við að minnsta kosti, þótt
þær Elsa og Svafa hafi ástæður til að
gegna störfum sínum við blaðið. Má
því að vissu leyti líta á þær Sigríð-
arnar sem aðstoðarkonur í ritstjórn-
inni.
Þá vill ,,Húsfreyjan“ ekki láta undir
höfuð leggjast, að þakka Sigrúnu Árna-
dóttur störf hennar í fjögur ár. Hefur
eigi sjaldan borizt til blaðsins þakklæti
fyrir Manneldisþáttinn og margar kon-
ur látið í ljós, að ýmsar uppskriftir þar
væru sérlega hagkvæmar.
Blaðið mun leitast við að verða við
óskum lesenda um efnisval, að svo
miklu leyti sem unnt er. En aðalstefnu
sína, að vera málgagn Kvenfélagasam-
bands íslands og fræðslurit um störf
húsmæðranna í landinu, mun blaðið þó
halda fast við, þótt á hinn bóginn verði
leitazt við að gera efni þess sem fjöl-
breyttast og fýsilegast.
Vegna aukins útgáfukostnaðar var
áskriftarverð ,,Húsfreyjunnar“ hækkað
um 5 krónur, svo að frá næstu áramót-
um kostar árgangurinn kr. 25.00. 1
lausasölu mun hvert hefti kosta
kr. 7.50.
HÚSFREYJAN 9