Húsfreyjan - 01.09.1957, Side 16

Húsfreyjan - 01.09.1957, Side 16
Húsmæðraskólinn Staðarfelli fengin til að kenna um stuttan tíma á prívat-heimilum. Þessi kafli starfs míns var oftast mjög örðugur, þá voru sam- göngur allar örðugar og um hávetur. Eg varð að leggja leið mína um flesta hæstu og snjóþyngstu fjallvegi og heiðar þessa lands, ennfremur út um firði og flóa og með ströndum fram. Allt gekk þetta nokk- urn veginn slysalaust, en þó ekki alveg. Á þessum árum fór kennslan oftast fram í fundarhúsum, rjómabúshúsum o. þ. 1. húsnæði, sem var ófullnægjandi til slíkra hluta. Og á meðan ég kenndi á Suðurlandsundirlendinu, hafði ég elda- vélina með mér (litla Skandiavél og rörin með). Áhöldin átti ég flest sjálf, ég hafði keypt þau, svo að við stæð- um ekki fastar. Lítið eitt lét Búnaðar- félag Islands mig fá. En af því að víða voru engir verzlunarstaðir nærri, hafði ég með mér ýmislegt af matvælum, til þess að vinna úr, svo að námskeiðin gætu orðið að sem beztu liði. Eldavélina seldi ég í Þykkvabænum, er ég fór þaðan og skilaði peningunum til Búnaðarfélags Is- lands. Maður kynntist mörgum og mörgu á þessum árum. Kom fyrir að vantaði hina nauðsynlegustu hluti, borð og sæti, ljós og stundum eldavél. Námskeið voru svo misjafnlega undirbúin. Var stundum vís- að á kolryðgaðar kamínur o. þ. h. En allt- af tókst okkur að vera búnar að koma okkur upp heimili áður en lauk. Og stúlk- urnar græddu mikið á því að koma fyrir hlutum og tækjum i eldhúsi — en þetta var ekki áreynslulaust. Oftast að loknu námskeiði vildu námsstúlkur hafa skemmtun, og fólk streymdi að, og varð ég þá, auk annars undirbúnings, að flytja erindi. Þyngst var að fá aldrei einn ein- asta hvíldardag. Námskeiðin voru svo þétt, hvert á eftir öðru. Upp á hestinn á morgun eða út í bátinn, og nýjar stúlkur komnar á nýjan stað og þær þurftu að fá að borða, og þannig gekk þetta. öllu þurfti að koma fyrir í snatri, þetta endur- tók sig alls staðar. Víða var ég látin flytja erindi á þess- um árum. Þá er það Staðarfellsskólaþátturinn. Þann skóla stofnaði ég sem einkaskóla vorið 1927, með þeirri kvöð meðal ann- ars, að ég ræki bú, hefði kirkjuhald og síma og bréfhirðingu. Þetta var ógætileg 16 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.