Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 18

Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 18
í ljóðabókinni Hrafnamál, eftir Þor- stein Valdimarsson, er kvæði sem heitir Söknuður og er svona: Hver af öðrum til hvíldar rótt halla sér nú og gleyma vöku dagsins um væra nótt vinirnir gömlu heima. Þó leið þín sem áður þar liggi hjá er lyngið um hálsa brumar, mörg höndin, sem kærast þig kvaddi þá, hún kveður þig ekki í sumar. Og andlitin, sem þér ætíð fannst að ekkert þokaði úr skorðum — hin sömu, jafn langt og lengst þú manst — ei ljóma nú við þér sem forðum. Og undrið stóra, þín æskusveit, mun önnur og smærri sýnast. Og loksins felst hún í Iitlum reit af Ieiðum, sem gróa og týnast. Efalaust fer mörgum sem mér við lest- ur þessa kvæðis. Hugurinn hvarflar til bernskustöðvanna og vitjar leiðanna í kirkjugarðinum heima. Á huga minn sóttu minningar um tvær konur, er nú hvíla í Vallakirkjugarði í Svarfaðar- dal, minningar, sem mótaðar eru viðhorfi unglings, er yfirgefur æskustöðvarnar fyrir tvítugsaldur og því metur þar menn og málefni eftir því, hvernig þeir skír- skota til tilfinninga hans. öldruð kona spinnur á rokk og segir barni sögu. Þessi minningamynd er sameign flestra þeirra, er ólust upp á íslenzkum sveitaheimilum á fyrstu tugum þessarar aldar. I bernskuminningum mínum má segja að fyrir beri fyrst og síðast sögu- konuna við rokkinn — Guðrúnu Sigur- jónsdóttur. Aldrei hef ég spurt um, hvaða ár hún kom á heimili foreldra minna að Völl- um. Hún var þar frá því ég fyrst man eftir mér — ein af meginstoðum tilver- unnar, sem óhugsandi var að hyrfi eða breyttist. Eldri og lífsreyndari heima- mönnum en mér hefði efalaust líka þótt skarð fyrir skildi, hefði hún horfið frá okkur fyrr en raun varð á. 1 bernsku skorti mig stundum jafn- aldra leikfélaga og leitaði því oft dægra- dvalar hjá fullorðna fólkinu. Guðrún sat löngum við spuna á vetrum og var mér allra meina bót að setjast hjá henni og biðja um sögu. „Hvað viltu heyra?“ „Þegar þú varst lítil,“ voru oftast inn- gangsorðin. Svo rak hver sagan aðra — atvik úr æsku þeirra, er voru unglingar kringum 1880, þegar lífsbaráttan var ómild sakir harðæra og fátæktar, en skemmtanir og annar munaður af skorn- um skammti. Siðan komu huldufólks- sögur og ævintýri. Töfrar þessara stunda fyrnast aldrei. Óhætt var að bera fram spurningar og athugasemdir, án þess að óttast þyrfti spott eða köld svör. Guð- rún skildi börn, skildi, að þeirra sorgir og vandamál eru þeim ekki léttbærari fyrir það, að þau kunna að vera smá- vægileg í augum hinna fullorðnu. Af Guðrúnu á ég aðeins eina ljósmynd, smámynd, sem tekin er á hlaðinu á Völl- um. Þar standa þær hlið við hlið, móðir mín og hún, og haldast í hendur. Slík mun samvinna þeirra hafa lengst af ver- ið þá áratugi, er þær voru samvistum. 18 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.