Húsfreyjan - 01.09.1957, Síða 39

Húsfreyjan - 01.09.1957, Síða 39
Kremið: 125 gr. smjörlíki 2 msk. kakaó 125 gr. flórsyltur 2 eggjahvítur 3 msk. rjómi eða mjólk 100 gr. flórsykur 100 gr. suðusúkkulaði L... Skákterta. Kakan: Deigið bakað þannig, að það fást 2 jafnstórar kökur. Séu 2 mót til, bökum við báðar kökurnar í einu, annars hvora á eftir annarri. Mótin smurð vel og hveiti stráð. Klippið ræmur úr stífum, hvítum pappír, smyrjið ræmurnar beggja vegna með olíu og búið til úr þessu hring. Ágætt er að festa hringina saman með pappírsklemmum. Setjið hringina í mótið eins og myndin sýnir. Eggjarauðurnar og 4 msk. vatn eru þeyttar vel með sykrinum. Smjörlíkið hrært lint, eggjafroðunni hrært varlega saman við. Hveiti og lyftidufti sáldrað saman, hrært út í deigið, einnig mjólkin. Stifþeyttum eggjahvitunum hrært varlega saman við. Deiginu er skipt í 2 jafna hluta, í annan helminginn er hrært kakaói, íhinn vanillu- dropum. Setjið deigið í mótin eins og myndin sýnir, ljóst deig í miðju annars mótsins, dökkt í hitt o. s. frv. til skiptis. Þegar deiginu hefur verið jafnað í mótin, eru pappírshringirnir fjarlægðir með gát, þannig að hið dökka og ljósa deig fljóti ekki saman. Kökurnar bakaðar við væg- an hita (175°—200°) nál. 40 mín., eða þar til þær eru gegnumbakaðar. Þegar kökurnar eru kaldar, eru þær lagðar sam- an með kremi á milli og þeim þrýst veí saman. Kakan hulin að utan með afgang- inum af kreminu. Kakan er bezt hafi hún fengið að brjóta sig nokkra daga. Geym- ist vel. Kremið: Súkkulaðið er brætt við væg- an hita. Flórsykur og smjörlíki hrært, þar til það er hvítt, rjómanum hrært saman við í dropatali. Hið kælda súkkulaði og kakaó sett út í. Eggjahvíturnar eru stíf- þeyttar, 100 gr. flórsykri blandað saman við. Þessu er svo hrært varlega saman við kremið. Að lokum er hér ein kökuuppskrift, sem útheimtir engan bökunarofn. Geym- ist vel. KEX-SÚKKULAÐIKAKA 22—26 sætar, ferhyrndar 3% dl. flórsykur kexkökur 3—7 msk. kakaó, 250 gr. plöntufeiti eftir smekk 2 egg Plöntufeitin brædd við vægan hita, kæld. Egg og sykur þeytt vel saman, kakaó sett í eftir vild. Kakan verður ljósari og HÚSFREYJAN 39

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.