Húsfreyjan - 01.09.1957, Síða 40

Húsfreyjan - 01.09.1957, Síða 40
ÁVEXTIR ERU HANDHÆGIR OG HOLLID Það sem af er haustinu, höfum við get- að fengið gnægð suðrænna ávaxta, appel- sínur, grapealdin, sítrónur, melónur og banana. Vonandi komum við til með að njóta þeirra fram að jólum og trúlega bætast epli við og jafnvel vínber. Ávextir þessir eru mjög hollir, bæði ríkir af fjör- efnum og söltum, auk þess sem þeir eru ekki mjög mettandi og kemur það sér því vel að hafa þá um jólin, þegar okkur hætt- ir til að borða allt of þungan og fitandi mat. Á ekki aðeins að bera þá fram milli mála, heldur eiga húsmæðurnar að reyna að flétta þá inn í sjálfar máltíðirnar og geta á þann hátt létt sér störfin, þvi úr þeim má gera ljúffenga for- og ábætis- rétti án mikillar fyrirhafnar. Mörgum þykir jafnvel bezt að fá þá ótilreidda. Þá er aðeins þess að gæta að þvo ávextina vel og þurrka, áður en þeim er raðað fallega upp á fat, þegar þeir eru bornir fram. Er skemmtilegast að blanda nokkr- um tegundum saman. Grapealdin eru ákaflega ljúffeng og lystaukandi sem forréttur. Eru þau þveg- in og skorin þversum. Aldinkjötið losað frá brúninni með beittum hníf og það síð- an skorið í bita frá miðju. Ef vill er tsk. af sykri stráð á hvern helming, og fallegt er að setja rautt ber eða hlaup í miðjuna, þegar það er borið fram. Einnig má losa allt aldinkjötið úr barkarhelm- ingnum, skera það í bita, þykka húðin Ávextir á fati. milli bátanna fjarlægð, og síðan er aldin- kjötið látið í barkarskálina á ný. APPELSfNUSALAT 4-6 safamiklar 1-2 dl. þeyttur rjómi appelsínur (V2 dl. hvítt vín 3 msk. strásykur eða sherry) Appelsínurnar eru þvegnar og flysjað- ar. Hreinsið vel burt allt það hvíta og skerið appelsínurnar í 4 parta, síðan í þunnar sneiðar. Sneiðarnar látnar í skál, sykri stráð á milli, ef vill er gott að hella víni yfir. Skreytt með þeyttum rjóma og rifnu súkkulaði. Sé þeyttur rjómi ekki settur á, er salatið ágætt sem forréttur, en þá er betra að nota vin. Rétturinn bíði um stund á köldum stað, þó ekki of lengi, er þá hætta á að appel- sínurnar verði bitrar, safinn dregst úr mildari á bragðið, sé minnsta magnið not- að, dekkri og megnari þeim mun meira, sem notað er. Ylvolgri plöntufeitinni hrært saman við. Ef plöntufeitin er of heit, er hætta á, að súkkulaðideigið að- skiljist. Aflangt kökumót er klætt að innan með smjörpappír. Súkkulaðideig látið í botninn, síðan kemur kexlag og súkku- laðideig til skiptis, efst á að vera súkku- laðideig. Mótið sett á kaldan stað, svo að kakan geti stífnað, helzt til næsta dags. Kakan tekin úr mótinu, ef vill má skreyta hana með söxuðum möndlum. 40 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.