Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 46

Húsfreyjan - 01.09.1957, Blaðsíða 46
sat bísperrtur hjá körfunni með jólagjöf- unum og þefaði forvitnislega að henni. Hann mundi frá fyrri jólum, að í körf- unni var pakki til hans, kjötbiti í sósu, og nefið sagði honum, að svo væri enn. Jólagjafirnar í körfunni voru ekki eins margar nú og stundum áður. Frændfólk- ið í Oslo og Stokkhólmi ætlaði að koma með sínar gjafir með sér á annan í jól- um. Og Andrés hafði fengið nýju skíðin sín snemma um daginn, svo að þau væru tilbúin óðara og skíðafæri kæmi. Loð- kápan hennar Tullu og sænski sleðinn áttu ekki heima inni í dagstofu. Dreng- irnir smáþokuðu sér nær körfunni. Þeim var orðið mál á að afhenda gjafirnar sín- ar. Hans hafði keypt þrjár, litlar mynd- ir, allar eins, af Kristi í jötunni, handa Mömmu, Theu og Tullu, og Andrés gaf handavinnuna sína úr skólanum: fugla- búr, bókahillu og grænmálaðan stól. Það var alls ekki svo afleitt, þegar þess var gætt, hver smiðurinn var. Andrés hafði orð fyrir að vera óvenjulega klaufskur í höndunum. Á borðinu stóð stóra koparskálin, barmafull af hnetum, ávöxtum og smá- kökum, öllum sjö tegundunum, sem venja er í Guðbrandsdal að baka fyrir jólin. Mamma hellti miði í gömlu glösin. Eng- um þótti hann góður, sætur og límkennd- ur, en samt voru engin jól án hans. Að lokum sótti börnin svefn. Tulla geisp- aði eins og hún ætlaði að gleypa alla fjöl- skylduna og var þæg eins og lamb, þeg- ar Thea fór með hana upp í rúmið. Hans hnipraði sig eins og köttur á legubekkn- um og blundaði. Andrés og Mamma sátu ein við eldinn og horfðu á jólatréð. Hvert kerti af öðru brann upp. Ljósin slokkn- uðu, og þægilegur ilmur af bræddu vaxi og furu fór um stofuna. Eldurinn á arn- inum var orðinn að rauðri glóð, sem smá- snarkaði og gnast í. Mamma og Andrés höfðu æfinlega notið þess að sitja þögul saman við eldinn. Klukkan tíu kom vagninn. Böe ók allt- af sjálfur á aftansönginn. Hann sagðist gjarnan vilja gera það á jólanóttina, því að foreldrar hans bjuggu niðri á Hamri, og hann gat skotizt inn til þeirra og boð- ið gleðileg jól, rrieðan mamma og dreng- irnir voru í kirkjunni. Kapellan á Hamri, helguð heilögum Þorfinni, var stór stofa í Systrasjúkra- húsinu. I kvöld var hún glitrandi í ljós- um og stráð blómum. Vinstra megin við háaltarið hafði jatan verið sett, og hver maður á Hamri var öruggur um, að það væri fallegasta jatan í öllum Noregi, ef ekki í öllum kristnum heimi. Ung furu- tré fylltu hornið, heill norskur skógur. Grænn mosi og bláberjalyng vöfðust um fjárhúskofann, og í þessa iðgrænu á- breiðu var stungið hvítum túlípönum, hyasintum og rauðum jólarósum. Hver einasta fjölskylda í söfnuðinum hafði sent lifandi blóm til að prýða með jöt- una. Fjárhúskofinn var úr hvítum birki- stofnum og með hálmþaki. Móðir Ful- gentía hafði notað umbúðirnar um messu- vinið. Hún var alltaf hagsýn, blessunin. Stór stjarna skein yfir kofaþakinu, og í skyni hennar sýndust María og Jósef, sem krupu við jötuna, og fjárhirðarnir og konur þeirra, sem komu með ær og lömb til að gefa Maríu, eðlileg og sönn. ,,Það er hann sjálfur,“ sagði Aagot litla Larsen, sem kraup við hliðina á Hans. ,,Hver?“ hvíslaði Hans, hrifinn og for- vitinn. „Jesús, auðvitað. Ég sá hann hreyfa fótinn svolítið rétt áðan.“ ,,Já, en sástu, þegar uxinn hristi höf- uðið?“ spurði Hans. ,,Já, ég held það nú. Það er mesta mildi, ef hann ærist ekki og rekur Maríu mey í gegn með hornunum." ,,Það þorir hann ekki.“ 46 HÚSFREYJAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.