Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 47

Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 47
Mamma og frú Larsen flýttu sér að þagga niður í börnunum, en Móðir Ful- gentia, sem sat hjá nunnunum á næsta bekk fyrir framan, sneri sér við og lagði fingurinn á munninn. Hún brosti svo björtu brosi, að augu hennar geisluðu eins og jólaljósin, og börnin brostu á móti og hættu hvíslinu. En þegar messunni var lokið, og þeir af söfnuðinum, sem áttu langt heim, sátu að tedrykkju hjá systrunum, sögðu Aagot og Hans hvort í kapp við annað sögur af því, er þau höfðu séð, meðan prestur- inn las messuna. María mey hafði breitt ábreiðuna yfir Jesúbarnið, en það hafði óðara sparkað henni ofan af sér. Hundar hjarðmannanna höfðu snuðrað í kringum kofann, og heilagur Jósef hafði klappað þeim . . . Ef til vill hefir börnunum sýnzt mynd- irnar við jötuna hreyfast i blaktandi skini altarisljósanna. Og þau voru lokkuð til að segja meira og meira, því að systurn- ar voru í essinu sínu og skellihlógu, þó að reglurnar bönnuðu allt samtal milli kvöldbæna og morgunmessu. Systir Rog- ata var svo kimin á svipinn og kyndug í látbragði, að krakkarnir hlupu til henn- ar og stukku upp í fangið á henni. Systir Rogata átti hvert barn að einkavini. ,,Það er af því, að hún kemur hvergi nærri skólanum,“ sagði Móðir Fulgentia þurrlega. Systir Rogata hjúkraði á augnlækn- ingadeildinni. Klukkan var orðin tvö um nóttina, þegar Mamma og drengirnir stóðu upp og héldu til fundar við Böe, sem beið með vagninn. Og nú gerðist hvert undr- ið af öðru. Stígurinn var hvítur, þök húsanna hvít, og greinar trjánna mark- aðar fínum, hvitum línum. En mjöllin féll svo hægt, að hver slóð hélzt um stund svört á fölri jörðinni. En þetta var góð- ur snjór, kornin þétt, hörð og þurr. Þau skullu á rúðum vagnsins eins og léttir, stingandi oddar, er Böe ók af stað. Göturnar í Hamri voru auðar og þög- ular. Og þegar þau komu út úr bænum, sýndist vegurinn í birtu vagnljósanna eins og hvítt band dregið millum dökkra stofna og ljósra greina skógarins. Girð- ingar, hlið, tré og svefndrukkin smáhýsi skunduðu fram hjá. Ekkert var betra við þessar næturferðir á jólunum, þótti drengjunum, en vissan um það, að þeir væru einir á ferli og úti í vagni, meðan allir aðrir sváfu allt í kringum vatnið. Allt í einu stökk elgur út úr skógin- um. Hann hljóp spölkorn á undan vagn- inum. Ljósin féllu á hann, svo að næst- um mátti greina hvert hár á grábrúnum feldinum og hverja grein á klofnum horn- unum. En þegar Mamma sneri sér við og ætlaði að benda drengjunum á hann, sátu þeir eins og myndastyttur í aftur- sætinu og steinsváfu. Drífan, sem þyrlazt hafði æ ákafar um rúður vagnsins, breyttist nú x stórar, fjaðurlaga flygsur, og snjókoman óx óð- um. Thea stóð við hliðið og hélt þvi opnu, meðan ekið var í gegn. Hundarnir þekktu vagninn hans Böe á hljóðinu og sögðu frá honum, löngu áður en til hans sást. Nú tóku þeir á rás á móti honum, geltu1 upp í loftið, veltu sér í snjónum og sleiktu hann með lafandi tungum. Syfjaðir drengirnir bröltu út úr vagn- inum og sáu, að nú voru jól í Noregi. Gleðin var þess vegna tvöföld að setj- ast að borðinu, sem beið, hlaðið beztu jólakrásum. Erfitt yrði úr því að skera, hvort þetta skyldi kallast kvöld- eða morgunverður. En í sveitum, sem halda við gömlum venjum, er fyrsti bitinn af jólagrisinum og öllu hinu sælgætinu tek- inn einhvern tíma milli miðnættis og dögunar. Thea hafði borið á borðið sviða- ost, svínsflesk, reykta hreindýrstungu og lifrarstöppu. Hans, sem aldrei mátti HÚSFREYJAN 47

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.