Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 48

Húsfreyjan - 01.09.1957, Page 48
- Þá ég heyri góðs manns getið, kemur mér jafnan hann í huga. Hinn 12. nóv. síðastl. voru liðin 100 ár frá fæðingu sr. Magnúsar Helgason- ar, skólastjóra Kennaraskóla Isl. fyrstu 20 árin, er sá skóli starfaði eða frá 1908 til 1929. Var þessa afmælis minnst sér- staklega í Kennaraskólanum sem verð- ugt var. Efast óg eigi um, að allir nem- endur sr. Magnúsar hafi um þær mund- ir minnst með sjálfum sér þeirra áhrifa, er þeir urðu fyrir undir handleiðslu þessa mæta manns. Sóttu þær minningar að minnsta kosti fast á mig. Hið hreina, heiða og rólega yfirbragð þessa merka manns verður mér jafnan minnisstætt, hreimur raddar og látlaus, en þó áhrifa- rík framsaga hverrar ræðu, er enn eftir nær 50 ár svo í fersku minni sem nýver- ið hefði í eyrum ómað. En svo vel vand- aði hann ræður sínar, að margt í þeim mun standa sem sígildur sannleikur sagð- ur á eftirminnilega fagran hátt. Skal hér birtur kafli úr einni ágætisræðu hans og bragða kaffi, fékk nú slatta i bollann sinn og þrjá dropa af brennivíni í glas, svo að hann gæti skálað og boðið gleðileg jól einu sinni enn. Njörður og Neri voru glaðvakandi, og Njörður húkti á afturlöppunum og sníkti í sífellu, meðan Mamma mataðist. Neri lá í kjöltu Andrésar og hrifsaði öðru hverju bita af diskinum hans. Auðvitað gera ekki nema illa vandir hundar slíkt, en segja verður hverja sögu eins og hún gengur. Og svo er það nú svona, að á jólunum er margt leyft, sem bannað er hversdagslega. mun það margur mæla, að aldrei sé sú vísa of oft kveðin, sem er grunntónninn í þessum ræðukafla: . . ,,Trúa myndi ég, ef Njáll segði mér, því að það er mælt, að hann ljúgi aldrei,“ sagði Högni á Hlíðarenda. Þetta þykir mér fegurstu einkenni gullaldarmanna, að heitin þeirra eru betri en handsöl annarra manna, og að þeir ljúga aldrei. Aftur á móti slær ekkert eins svörtum skugga á Sturlungaöldina — að ég ekki tali um síðari ómennskualdir — eins og óorðheldnin. Nú er ísland aftur orðið full- valda ríki, og hvar stöndum vér nú, syn- ir þess og dætur, í þessu efni? Hvort líkjumst vér um það meir gullaldarmönn- um eða hinum? Það er íhugunarefni öll- um þeim, sem annt er um ísland og sæmd íslendinga. Ég reyni ekki að leysa úr spurningunni. Svipist hver um hjá sér. En eftirtekt mína hefur það vakið, að hvert mannsbarn á landinu, að kalla má, Tullu eina vantaði að borðinu. Henni var betra að sofa í næði. Á morgun, þeg- ar aðrir verða í rúminu, situr Tulla við gluggann. Hún þreytist aldrei á að horfa á stóra fánann blakta við hún. Blærinn breiðir úr honum, svo að blár og hvítur krossinn blikar á dökkrauðum feldinum. Annað veifið hjúfrar liann sig upp að stönginni eins og lífi gædd vera. Jafnvel í blækyrru veðri og logndrífu situr Tulla við gluggann eins og trúr varðmaður, horfir og bíður . . . 48 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.