Vera - 01.10.1996, Blaðsíða 3
%
'
épEitpaöpegarégsépað...
VERA tekur sífelldum breytingum bæði að formi og innihaldi og nú hefur hún stækkað
svolítiö og fengið nýja og skjólgóða kápu. Þessar síður koma sér vel því okkur
„Verunum" liggur alltaf svo mikið á hjarta að þegar kemur að prentun blaðsins þurfum
viö yfirleitt að skera heilmikiö niður.
Auglýsingar hafa verið mikið til umræðu í VERU og þá einkum sú spurning hvort
blaðið eigi að birta kvenfjandsamlegar auglýsingar eða hafna þeim alfarið. Ekki eru
allir sammála um hvað sé kvenfjandsamlegt og hvað ekki, en víst er um það að
ástæða er til að vera vel á verði, því líkast til hafa auglýsingar einhver áhrif,
sérstaklega á viðkvæmar sálir. Þær auglýsingar sem fara mest fyrir brjóstið á mér eru
þær sem þeinast að (gegn, vildi ég frekar segja) þörnum, en þörn eru náttúrlega
hópur sem þroska sínum samkvæmt er algjörlega þerskjaldaður gagnvart
auglýsingum.
Nýjasta auglýsingaherferö sykurfurstanna í morgunverðarbransanum skartar
nokkrum af helstu æskulýðshetjum samtímans, enda svínvirkar hún, eins og það er
orðað í einhverri auglýsingunni. Foreldrar eiga oft í vök að verjast þegar áhrifamáttur
auglýsinganna er annars vegar og margir eru hneykslaðir á því að auglýsingar séu
leyfðar í kringum barnaefni sjónvarpsstöðvanna. Auglýsingar eru að sjálfsögðu
nauðsynlegar í nútímasamfélagi þar sem síaukin samkeþþni lækkar vöruverð og
ástæða er til að fylgjast með því og ýmsum nýjungum. Flest af því sem mest er
auglýst er þó greinilega annað hvort óhollt eða óþarft. En það breytir því ekki að áhrif
auglýsinganna eru umtalsverð - þær geta verið skoðanamótandi, lagt grunn að því
sem er „inn“ eða „út“ í samfélaginu og jafnvel smitað viðhorfinu út í almenna
siðgæðisvitund þjóðarinnar. Mörgum finnsttil dæmis „allt í lagi“ að æskulýðshetjur
samtímans beini sykurhúðuðu morgunkorni ofan í maga barnanna okkar og að
konum sé stillt upp í auglýsingum eins og hverri annarri vörutegund, en það særir
siðgæðisvitund okkar hinna.
Að þessu sinni snýst þemaumfjöllun VERU um klám en margir eiga erfitt með aö
skilgreina það hugtak. Það segir sína sögu um klámið að sú skilgreining sem VERA
kemst næst eftir þessa skoðun á málefninu er sú að klám sé eitthvað sem menn vilji
alls ekki leggja nafn sitt við. Kannski er
besta skilgreiningin þó sú sem einn
viðmælenda VERU vitnar í og hefur eftir
bandariskum hæstaréttardómara: „Égveit
það þegar ég sé það...“
Sonja B. Jónsdóttir
vCra
blað kvennabaráttu • 5/96 -15. árg. • Pósthólf 1685 • 121 Reykjavík • Símar 552 2188 og 552 6310 • Fax 552 7560
útgefandi Samtök um kvennalista / forsíða bára • Rton / ritncfnd Agla Sigríöur Björnsdóttir • Hugrún Hjaltadóttir
• Kristjana Björg Guðbrandsdóttir • Ragnhildur Helgadóttir • Sigurbjörg Asgeirsdóttir • Sigrún Erla Egilsdóttir • Svala
Jónsdóttir • Vala S. Valdimarsdóttir • Þorgerður Einarsdóttir / ritstýra og ábyrgðarkona Sonja B. Jónsdóttir / rit-
stjórnarfulltrúí Sðlveig Jónasdóttir • / skrifstofustýra Vala S. Valdimarsdðttir / útlit og tölvuumbrot Fiton -
halla / Ijósmyndir bára o.fl. / auglýsingar Áslaug Nielsen • Simi: 564 1816 • Fax: 564 1526 / filmuvinna
Offsetþjónustan hf. / prentun Grafík / bókband Flatey / plastpökkun Vinnuheimilið Bjarkarás / © VERA ISSN
1021-8793 / ath. Greinar í VERU eru birtar á ábyrgö höfunda sinna og eru ekki endilega stefna útgefenda.
fastir liðir
Leiðari 3
Athafnakonan 5
Pistill 7
Frumkvöðullinn 8
Nú andar suðrið 10
Skyndimyndin 11
Álitamál 12
Kvennapólitík 41
Úr síðu Adams 47
þema
klám 16-29
viðtöl
Kvennatónar 32
greinar
kvennafræði 34
verkalýðsmál 36
heilsan 42
„köffin" og „spjöllin" 46
að utan 48
listir
Kvennadjass 14
Listahátíð í Edinborg 39
María Callas 44
bækur
Unglingsárin 49
I iðari