Vera


Vera - 01.10.1996, Qupperneq 12

Vera - 01.10.1996, Qupperneq 12
Að undanförnu hefur opinber jafnréttisumræða einkennst af því að réttindi kvenna hafa þokaö fyrir umræðu um réttindi karla. Sú umræöa hófst með því frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi félagsmálaráðherra, að skipa svokallaða karlanefnd Jafnréttisráðs. Réttindabarátta kvenna hefur ævinlega farið fram aö frumkvæði kvennanna sjálfra og hér hefur orðiö til kvennahreyfing sem hefur átt sín góðu og kraftmiklu tímabil. Hin opinbera karlanefnd - sem ræöir málin á launum úr ríkissjóði - hefur hins vegar ekki orðið til þess að sambærileg grasrótarhreyfing karla sprytti hér fram. Því veltir VERA fyr- ir sér hvort karlar almennt hafi lítinn sem engan áhuga á aukinni fjölskylduþátttöku, t.d. fæðingarorlofi sér til handa og for- sjá barna og ennfremur spyr VERA hvort það sé tímabært að réttindi karla séu aðal opinbera jafnréttismálið á meðan meöallaun kvenna eru enn, eftir a.m.k. hundrað ára kvennabaráttu, einungis 60-70% af meðallaunum karla? Þaö er alveg satt að hér á landi hefur ekki sprottið fram grasrótarhreyfing karla sambæri- leg þeirri sem konur hafa haldiö úti með miklum dampi, og það þótt sett hafi ver- ið saman opinber karlanefnd „sem ræö- ir málin á launum úr rikissjóði" eins og H launamálunum að duga til marks um þaö. Hvít- ir karlar, íslenskir þar á meðal, eru herrar jarö- arinnar, og grasrótarhreyfing sem eðli málsins samkvæmt sækir jafnan á brattann því kannski ekki nærtækasti vettvangurtil að laga það sem þó þarf að laga. á konur á barneignaaldri sem sérstakan áhættuhóp við ráðningu, en útfærslan mætti giarnan taka nótís af þeirri tillögu karlanefndar í fæðingarorlofsmálunum að stefnt verði að leng- ingu þess f 12 mánuði. Fjórir verði bundnir föð- ur, fjórir móður, en fjórum geti foreldrar skipt eft- ir hentugleikum. Með því að hafa ákveðinn hluta fæðingarorlofs bundinn föður og ekki yfir- færanlegan á móður er honum „stýrt" yfir í um- önnun barnsins og inn á heimilið. Vera spyr ennfremur hvort tímabært sé að réttindi karla séu aðal opinbera jafnréttismálið á meðan meðallaun kvenna eru enn, eftir a.m.k. hundrað ára kvennabaráttu, einungis 60-70% af meðallaunum karla. Hafa réttindi karla þennan sess í jafnréttisumræðunni? Og jafnvel þótt svo væri: Er ekki sama hvaöan gott kemur? Kariar og konur þurfa hvort eð er að taka höndum saman um að laga það sem laga þarf, bæði í launa- og réttindamálunum. Fyrsta skrefið á þeirrí vegferö fýrir karla er að fá þá til að ræðajafnréttismálin á eigin forsendum. Það gæti runnið upp fýrir þeim að það sé þeirra hag- ur að láta undan síga á ákveðnum sviðum. Vera orðar það með nokkrum þjósti. Út af fýrir sig segir það sína sögu um meint mikilvægi nefndarinnar að þessi ágætu laun eru við lægstu mörk þeirra þóknana sem ríkissjóður greiðir fýrir nefndarsetur. Það er þó ekki málið í þessu samhengi heldur hitt að ég held að ekki sé von á neinní grasrótarhreyfingu karla sem sambærileg sé kvennahreyfingunni og réttinda- baráttu hennar. Ástæðan er nauðaeinföld. Með skyldugum fyrirvörum og undantekningum, mörgum slá- andi, stendur það alltaf eftir að hvað snertír af- komu og stöðu eru karlar betur settir en konur þegar á heildina er litiö. Rúmsins vegna verður glerþakiö fræga sem konur reka sig upp undir í Því ýmislegt þarf aö laga, eins og karlar al- mennt gera sér æ betur grein fýrir. Það þarf ekki annað en að líta á viðhorf yngri og eldri karla á vinnustöðum landsins. Þeím yngri finnst fá- sinna aö vinna tvöfaldan vinnudag eins og þeir eldri hafa látið sig hafa, og verða fýrir bragðiö útilegumenn á eigin heimilum. Karlar hafa í auknum mæli áhuga á feöraorlofi og öðru því sem treystir fjölskylduböndin. Þessi mál eru talsvert rædd á vinnustöðunum, og eins snúa ýmsir sér til okkar í karlanefndinni til skrafs og ráðagerða. Þá fá stéttarfélögin sínar fýrirspurn- ir. En hitt er satt að hraðar mætti miða. Hvernig er þá best að herða á þróuninni? Miðað við hvar við erum á vegi stödd hef ég trú á að leikreglurnar þurfi endur- skoðunar við, því það er nefnilega vitlaust gefið eins og þar stendur. Viö þurfum laga-, reglugerða- og kjarasamningaramma sem vinnur gegn launamisréttinu og beinir okkur körlun- um í auknum mæli á vit fjölskyldunnar. Sama hvaðan gott kemur? Ég nefndi tvöfaldan vinnudag með til- heyrandi útilegumennsku. Sem beturfer gengur evrópska vinnutímatilskipunin senn í gildi hér á landi og bjargar okkur undan þeirri vitleysislegu vinnukvöð sem hér hefur verið lenska. Þá þarf að búa þannig um hnúta gagnvart atvinnulífinu að börn séu ekki aðeins mæðra sinna heldur einnig feðra. Það myndi draga úr þeirri tilhneigingu atvinnurekenda aö líta vitlaust gefi&>

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.