Vera - 01.10.1996, Page 36

Vera - 01.10.1996, Page 36
vrkalýösmál Halldór Grönvold skrifstofustjóri ASI fe JftFNRETTIS Jafnréttisbaráttan á enn langt í land á vinnumarkaði, inni á heimilunum og annars staðar t íslensku samfélagi. Kerfisbund- inn launamunur kynjanna er staðfestur í athugunum og könnunum á kannanir ofan og verkaskiptingin á vinnumarkaði og inni á heimilunum er ennþá T öllum aðalatriðum kynbundin. Þetta eru sannindi sem öllum eru Ijós sem fylgjast með um- ræðunni í samfélaginu eða ein- faldlega horfa í kringum sig. Hér er um að ræða gróft misrétti sem enginn verkalýðssinni, jafnaðarmaður eða femínisti á að þola. Hvað er þá til ráða? Hvað getur verkalýöshreyfingin, sérstaklega, gerttil að upphefja þetta óréttlæti gagnvart helm- ingi félagsmanna sinna? Eitt markmíö - margar leiöir Umræða síðustu ára(tuga) um ástæður kynjamisréttisins og leiðirnar undan því hefur sann- fært undirritaðan um að það er ekki til nein ein allsherjarlausn, hvort sem hún kallast starfsmat, jákvæð mismunun, kynjakvótar, launapottar eða eitthvað annað. „Nái sú hugsun og þær aðgerðir sem hér hefur verið lýst fram að ganga munu atvinnurek- endur ekki lengur geta gengið að því vísu að konurnar muni og verði alltaf að fórna hags- munum vegna þátttöku á vinnumarkaði fyrir skyldur sínar gagnvart heimili og fjölskyldu, heldur geti það allt eins verið karlinn." Jafnréttisbaráttan er líklegust til árangurs sé hún byggð upp af Ijölmörgum þáttum og aðferð- um svo framarlega sem þær beinast allar að sama skýra markmiðinu. Þá er mikilvægt aö hafa í huga að margir af þeim þáttum sem miklu ráða um veika stöðu kvenna á vinnu- markaðinum eru þeir sömu og liggja til grundvallar launamuni almennt, en ekki bara launa- muni kynjanna. Þessi hugsun kom vel fram á þingi ASÍ á stð- asta vori. 1 niðurstöðum þings- ins er bent á að til aö ná jafn- rétti á vinnumarkaði þarf margt að koma til. Þar er áhersla lögð á mikilvægi þess að samtök launafólks geri áætlun og vinni markvisst að þvt að koma á jafnrétti á vinnumarkaði. Bent er á mikilvægi öflugrar mennta- stefnu sem tryggt geti konum jafnt og körlum aðgang að eftir- sðknarverðum störfum í at- vinnulífinu. Þetta á ekki stst við gagnvart þeim sem tímabundið hverfa úr virku starfi á vinnu- markaði. Bent er á að starfs- mat geti verið ein leið til launa- jafnréttis og þvt lýst yfir að Alþýðusambandið muni vinna að því að það verði framkvæmt t auknum mæli innan fyrirtækja. Tiltekið er að sérstaklega þurfi að auka virðingu hefðbundinna kvennastarfa. Því er lýst yfir að á næstu tveim árum verði á vettvangi ASÍ unnin upp jafnrétt- isáætlun sem m.a. verði notuð við undirbúning kröfugerðar fyrir kjarasamninga. Þá er mikilvægi framsækinnar fæöingaror- lofslöggjafar áréttuð. Fleiri þættir eru einnig nefndir sem ég kem að síðar. í lokin er þvt svo lýstyfir að Alþýðusamband- ið vilji eiga nána samvinnu viö önnur samtök launafólks hér- lendis ogerlendis um jafnréttis- mál sérstaklega. Konur í forystu Það eru engar „patentlausnir" til í jafnréttisbaráttunni. Annað er jafn kristaltært í mínum huga. Hvernig til tekst ræðst að mestu af virkni kvennanna sjálfra og því að þær taki for- ystu í þessari baráttu. Það mun engin gera fyrir þær. Það þýðir hins vegar ekki að konur geti ekki og eigi ekki að leita stuðn- ings eða átt sér bandamenn meðal karla. I niðurstöðum ASÍ þingsins er fjallað um þetta at- riði sérstaklega í tengslum við innra starf verkalýðshreyfingar- innar. Þar segir m.a. „Konur eru tæpur helmingur félagsmanna í Alþýðusambandinu. Konur t verkalýðshreyfingunni eru vtða mun virkari en karlar, ekki síst í fræðslustarfi af ýmsu tagi. í for- ystu verkalýðshreyfingarinnar, innan heildarsamtakanna, í samböndunum og aðildarfélög- unum er staða kvenna ekki í neinu samræmi við fjölda þeirra. Sama gildir um

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.