Vera - 01.10.1996, Page 46
kvennabaráttan
Laugardags„köff" og Þriðjudags„spjöll"
Kvennalistinn hefur nú aftur tekið upp opna fundi um kvenfrelsi og jafnréttismál. Ákveðið hefur verið að halda fundina annars vegar á laugardags-
morgnum og hins vegar á þriðjudagskvöldum (ekki í hverri viku þó). Þetta er gert til að sem flestir sjái sér fært að mæta á einhverja þessara funda.
Fundirnir verða auglýstir í plmiðlum undir
nöfnunum Laugardagskaffi og Þriðjudags-
spjall. Fyrsta Laugardagskaffið var haldið 21.
september og ræddi Kristín Jónasdóttir um
Börn, klám og kynferðisofbeldi. Fyrsta Þriðju-
dagsspjallið var síðan 8. október þar sem
séra Auður Eir og séra María Ágústsdóttir
ræddu spurninguna „Flvenær fáum við kven-
biskup?" Góð mæting var á báða þessa fundi
og fundargestir áhugasamir þannig að búast
má við góðum umræöum á „köffum" og
„spjöllum" vetrarins. Fólk er eindregið hvatt til
að fylgjast vel með auglýsingum um það sem
er að gerast í Kvennalistanum.
Það veröur fróðlegt að
heyra í jafnréttisfulltrúun-
um tveimur: Hildi Jóns-
dóttur jafnréttisfulltrúa
Reykjavíkurborgar og
Ragnhildi Vigfúsdóttur
jafnréttisfulltrúa
Akureyrar.
Landsfundur
Kvennalistans \ Viðey
Helgina 1.-3. nóvember heldur Kvennalistinn landsfund sinn í
Viðey. Forskot verður tekið á sæluna á föstudagskvöldið því
þá verður haldinn opinn fundur í Norræna húsinu þar sem rætt
verður um ímynd kvenna í kvikmyndum, fjölmiðlum og auglýs-
ingum. Umræður um þetta spennandi efni verða væntanlega
fjörugar og eru allir velkomnir á fundinn.
Á laugardagsmorgun verður síðan haldið út í Viðey þar sem
fæðingarorlofsmál verða í brennidepli. Eftir hádegi verður rætt
um menntamál, m.a. út frá flutningi grunnskólans frá ríki til
sveitarfélaga. Um kvöldið veröur hátíðarkvöldverður í Viðey.
Á sunnudagsmorgun koma þær Hildur Jónsdóttir jafnréttis-
ráðgjafi Reykjavíkurborgar og Ragnhildur Vigfúsdóttir jafnréttis-
fulltrúi Akureyrarbæjar og ræða um það hvernig hægt er að
nýta jafnréttisáætlanir ogjafnréttisfulltrúa sem tæki í jafnrétt-
isbaráttunni. Landsfundinum lýkur svo seinni partinn á sunnu-
dag og nú er bara að bregða undir sig betri fætinum og skella
sér á landsfund!
Vinnumálaskrifstofa
félagsmálaráðuneytisins
(Atvinnuleysistryggingasjóður og
Ábyrgðasjóður launa)
Er flutt í Hafnarhúsið
v/Tryggvagötu á 3. hæð.
Nýtt símanúmer er
511 2500
og nýr bréfasími
511 2520
Vinnumálaskrifstofa
— félagsmálaráðuneytisins -