Vera - 01.10.2000, Side 8
Oddný, Silja og Birna Anna
vissa annarra svolítið ýktari í hennar huga. Þetta er
þroskaþröskuldur sem hún fer yfir, fer að fatta að það
breytir engu hvort eð er hvernig aðrir eru.
ODD Ég vona að við höfum náð að koma þessu til
skila, því það var það sem fleytti mínum þroska hvað
hraðast áfram síðustu árin (hlær) og mér leið alls ekki
vel fyrr en ég var búin að fatta þetta.
S!L)A: Sumir eru samt svona fullkomlega öruggir með
sjálfa sig, sumt fólk siglir í gegnum lífið og hugsar: „ég
er frábær".
Þannig að það er ekki Dfs eða unga kynslóðin í dag
sem stefnir bara í það að eignast fjölskyldu.
Endilega! Hún mundi örugglega alveg fíla það.
SU iA: Oft er það þannig að fólk sem er svolítið ringlað
og leitandi er að vonast til að hafa einhverja festu í
framtíðinni, þá er þetta það fyrsta sem því dettur í
hug- fjölskylda. Þetta hefur verið festan í lífi flestra
hingað til.
ODDf'- Væri maður ekki eitthvað skrýtinn ef mann
langaði aldrei í fjölskyldu?
Dís á mjög góða fjölskyldu þannig að hún hefur
góða fyrirmynd f þeim efnum.
BIRNA ANNA: Það var eitt af því sem við lögðum upp
með, okkur langaði ekki til að gera bók um vand-
ræðabarn. Okkur langaði til þess að þessi „kreppa"
væri sprottin innanfrá en ekki vegna þess að hún hefði
lent í einhverju hræðilegu.
ODDNÝ: Hún er í blúndukreppu. En það er líka kreppa.
BIRNA ANNA: Það er óþægileg tilfinning að finnast
maður vanþakklátur fyrir það sem maður hefur.
Okkur til dæmis hefur gengið ofsalega vel.
Við eigum góðar fjölskyldur og það hefur alltaf verið
farið mjög vel með okkur! og farið mjög vel um okkur
... og vel á með okkur...!
Talsverðar breytingar verða á einum strákanna í
bókinni við tilhugsunina um að verða kannski
pabbi, hann umhverfist úr gaur sem er helst þekkt-
ir fyrir að skalla bjórdósir í ábyrgan föður. Eru karl-
menn bara strákar þangað til einhver kona gerir þá
að manni?
BIRNA A Auðvitað ekki! þessi breyting á honum á
frekar að sýna að ekki er alltaf allt sem sýnist með fólk.
SlLj/\ Dís er bara búin að skilgreina þennan vin sinn
út frá því sem hún hefur séð til hans, enda er hún
ekkert meira eða minna fordómafull en aðrir.
Var ekki erfitt að vinna saman?
ODDN Nei! Það var undursamlegt! Þessar stúlkur
eru unaður einn.
Oddný og Birna Anna ættu í raun að stjórna
heiminum.
BIRNA ANNA: En svona að öllu gamni slepptu eru
þessar stelpur hinir mestu öðlingar og algjörlega
stórkostlegar manneskjur! - (hlæja allar) og vinnan
gekk náttúrlega eins og í sögu!
Við fengum náttúrulega frábæra reynslu í því
að taka gagnrýni, sem er hinn besti skóli.
SIL|A Maður var alltaf að fá álit annarra, alltaf í
endurskoðun.
ODDl Nú finnst mér gagnrýni bara vera eins og ...
vorblær í hári! (Hlæja allar.)
Hvaðan kemur nafnið Dís?
Nú til dags heita allir tveimur nöfnum en ég og
Oddný heitum bara einu nafni og í menntaskóla fórum
við að kalla hvor aðra Silja Rós, Oddný Dís eða eitt-
hvað álíka í gríni.
Smátt og smátt breyttist þetta í gæiuyrði; jæja
Dísin mín.
: Svo notuðum við Dísarnafnið sem vinnuheiti
við skriftirnar.
Því með því að nota Dísarnafnið var öruggt að
við mundum muna eftir að breyta því í lokayfirferð, því
það er svo ömurlegt. Svo var bókin komin í
prentsmiðju og við ekki ennþá búnar að finna titil á
hana. vorum komnar út f örvæntingarfullar þreifingar á
borð við „Kona án tilgangs", eða „Vandinn við að vera
ég".
ODí \ Ý: Eða eitthvað álíka glæsilegt!
BlRNA ANNA: En svo var alltaf verið að spyrja okkur:
„Hvað er að þessu nafni?"
8