Vera - 01.10.2000, Blaðsíða 17

Vera - 01.10.2000, Blaðsíða 17
iplýsingar. Leitaðu til stéttarfélaganna til að fá upplýsingar um hvað greitt fyrir starfið sem þú sækir um eða starfar við. Æ fleiri félög gefa út bæk- linga með þessum upplýsingum. Notaðu slík gögn og staðreyndir kröfum þínum til stuðnings. Persónulegar þarfir. Gerðu þér grein fyrir hvað þú þarft til að ná endum saman og til að eiga fyrir því sem þú telur þig þurfa. Hverjar þurfa mánaðarlegar tekjur þínar að vera svo þú sért sátt? Hvað er raun- hæft og sanngjarnt? Launamörkin og prútt. Ekki samþykkja fyrsta boð. Samningsaðilinn hefur einnig sett sér efri mörk og mun ekki bjóða þér „toþpinn" í fyrsta boði. Vertu tilbúin að líta á fleiri möguleika en einungis krónutölu, þ.e. fríðindin líka. Ekki segja „ég verð" að fá .... krónur. Sýndu sveigjanleika, það skilar mestu. Hæfni. Fagleg og persónuleg. Kortlegðu hæfni þína vel og hversu mikils virði þú erl fyrirtækinu. Prófin þín, námskeið sem þú hefur sótt, ný þekking (sem gagnast fyrirtækinu e.t.v. sérstaklegaj, félagsstörf, meðmæli, hvað þú hefur persónulega fram að færa, o.s.frv. Vertu tilbúin að ræða þessa hluti. Þetta er gott að skrá niöur á blað. Reyndu að tengja hæfni þína, á hvaða sviði sem er, umræddu starfi. Líðan. Start'sviðtöl eru stressandi. Lokaðu augunum nokkru áður, dragðu djúpt andann og segðu við þig 50-100 sinnum „Ég gef mér leyfi lil að slaka á/líða vel/vera glöð". Endurtaktu þetta eins oft og þú getur þar lil það t'estist í undirmeðvitundinni. Vertu ánægð með að vera þú. Segðu satt. Ekki freistast til að ljúga til um fyrri laun eða neitt annað. Fáðu það skriflegt. Laun og hlunnindi eiga að vera skráð í launasamningi, undirritað af báðurri aöilum. Grandskoðaðu ráðningarsamninginn. Langflest stéttarfélög veita ráðgjöf varðandi ráðingarsamn- inga. Gotl er aö æskja þess að fá stuttan frest til að undirrita samning endanlega og fá ráðgjöf hjá stétt- arfélögum um innihaldið. Gerðu þitt besta. Æfingin skapar meistarann. Njóttu lærdómsins og líttu á þetta sem góða og spennandi æfingu fyrir lífið. Þetta er EKKI síöasta viötalið sem |tú ferð í á ævinni og þú berð ekki ein ábyrgð á árangri þess. Þaö er ekki víst að þér hafi mistekist þó samningar náist ekki um laun og/eða ráðningu. Gerðu þitt besta. Að verðleggja sig Meðallaunatölur BHM félaga sýna einnig fram á að kynbundinn launamunur er til staðar meðal sérfræði- menntaðra stétta landsins. Breytingar á vinnumarkaði undanfarin ár virðast þó að sumu leyti gefa okkur tæki- færi til að vinna á vandanum. í því má nefna að aukin krafa fyrirtækja um árangur og arðsemi í harðari samkeppni dregur fram mikilvægi starfshæfni einstakl- inganna en ekki hver geðþótti vinnuveitenda/atvinnu- rekenda er. Hugmyndir um mannauðsstjórnun fela einnig í sér meiri sveigjanleika en áður og samkeppni er um gott starfsfólk sem m.a. tekur þátt í nýsköpun. Fleiri karlar eru auk þess farnir að krefjast svigrúms til að sinna fjölskylduhlutverki sínu. Þróunin síðustu ár er hins vegar sú að hver manneskja beri aukna ábyrgð á kaupi sínu og kjörum. Fólk nýtur minni verndar (sem margir líta á sem meira frelsi) og í auknum mæli er samið um laun á einstaklingsvísu. Víða eru svokölluð markaðs- laun að taka við af töxtum og launaleynd á vinnu- stöðum hefur aukist. Það er samt mikilvægt að benda á að kjarasamningar um lágmarksréttindi eru alltaf í gildi. Þar sem samið er um markaðslaun skuldbinda samningsaðilar kjarasamnings sig til að gera launa- kannanir árlega þannig að fólk geti séð hvað greitt er fyrir hin mismunandi störf á vinnumarkaðinum og miðað launakröfur sínar út frá því. Fólk þarf því að geta „verðlagt" sig sjálft í hvert sinn sem tækifæri gefst til að semja um laun, s.s. í ráðnignarviðtölum og starfs- mannasamtölum sem verða æ algengari. Það er því mikilvægt að vera meðvitaður um hæfnisþætti sína, hvers starfið krefst, lagaleg og félagsleg réttindi o.s.frv. Nýir hæfnisþættir verða æ verðmætari á vinnu- markaði, s.s. samskiptahæfni, hæfni til að hugsa óhefðbundið og starfa f hópum. Einstaklingar þurfa því í auknum mæli að reka sjálfa sig eins og lítið fyrirtæki, nokkurs konar „Ég ehf." Breytingarnar krefjast þess að fólk hugsi öðruvísi en áður um sig og sín störf. Við teljum mikilvægt að koma auga á tækifærin sem felast í breytingunum því þróuninni verður líkast til ekki snúið við. Því spyrjum við: Hvernig getum við undirbúið okkur til að semja um betri laun og varið kaup okkar og kjör á eigin spýtur? Hvernig getum við orðið betur meðvitaðar um styrkleika okkar sem starfskrafta? Hvernig tökum við á misréttinu á einstaklingsvísu? Hvernig geta konur staðið saman á vinnumarkaði 2i.aldarinnar? Kjarasamningur er ekki bara samningur um laun, heldur líka vinnutfma, orlof, aðbúnað og hollustuhætti, matar- og kaffitíma, veikindarétt, slysatryggingar vegna vinnuslysa, dánarbætur, uppsagnarfrest o.fl. ofl. Náðu þér í allar upplýsingar hjá stéttarfélaginu þfnu ef þú ert ekki viss. Spurðu og spurðu..... 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.