Vera - 01.10.2000, Side 22
9
Hvað stendur á launaseðlinum þínum?
Hvar sérðu þig fyrir þér í framtíðinni á vinnu-
markaði? Ég legg aðaláherslu á að vera f starfi sem
er krefjandi og þar sem ég hef möguleika á því að
vaxa, dafna og læra eitthvað nýtt.
Hvað ætiaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Ýmislegt en ekki viðskiptafræðingur.
Starfsábyrgð og skyldur: Að meta verð félaga, ýmis
upplýsingagjöf innan og utan fyrirtækisins um
markaðinn. Önnur tilfallandi verkefni.
Hvað finnst þér skemmtilegast við starfið? Starfið
er mjög fjölbreytt og þar sem verðbréfamarkaðurinn
hér er mjög ungur er hröð og mikil þróun í gangi.
Einnig finnst mér mjög skemmtilegt að starfinu fylgir
að maður þarf að fylgjast vel með því sem gerist í
efnahagslífinu og þjóðlífinu almennt. T.a.m. erum við
að fylgjast með þróun kjaramála, veiðum og þróun
olíuverðs á heimsmarkaði. Svo er samstarfsfólkið að
sjálfsögðu alveg frábært.
Hvað finnst þér leiðinlegast? Að komast ekki yfir
allar þær upplýsingar og fagbækur sem mig langar að
lesa.
Réttindi og fríðindi sem fylgja starfinu: Kaupþing á
sumarbústað sem ég hef farið f eina viku á ári og
tjaidvagna sem eru leigðir út. Einnig fáum við
íþróttastyrk og fyrirtækið hefur samið um afslætti hjá
nokkrum fyrirtækjum.
Skammarlega lág laun
Nafn: Valgerður )óna Oddsdóttir
Aldur: 31 árs
Menntun: Leikskóiakennari
Starf: Deildarstjóri og aðstoðarleikskólastjóri
Vinnustaður: Leikskólinn Fálkaborg
Starfsaldur: 7 ár
Laun: Dagvinnulaun 115.804 kr. Útborgað með
yfirvinnu u.þ.b. 100.000 kr.
Yfirvinna: Að meðaltali 10 tfmar á mánuði fyrir fundi
og skólanámskrárgerð.
Vinnutími: 8-16
Fjölskylduhagir: Gift og barnlaus
Ertu ánægð með launin? Nei, þau eru skammarlega
lág. Það er löngu kominn tími til viðhorfsbreytinga til
þessara svokölluðu kvennastarfa!
Hvað myndir þú telja að þú ættir að fá í laun?
Töluvert hærri laun, ég væri sátt við 200 þúsund á
mánuði fyrir dagvinnu. Ég á að baki þriggja ára nám á
háskólastigi, þar að auki er mikil ábyrgð að vera leik-
skólakennari þó ekki sé verið að handfjatla peninga.
Hvar sérðu þig fyrir þér í framtíðinni á vinnumark-
aði? í vel launaðri vinnu við mitt fag.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Listamaður var nú alltaf á listanum, líka
hjúkrunarkona og búðarkona
Starfsábyrgð og skyldur: Starfið er fólgið í þvf að
sinna og bera ábyrgð á velferð þeirra barna sem á
deildinni eru, efla alhliða þroska þeirra. Gerð
skólanámskrár, áætlanagerð og mat á leikskóia-
starfinu í heild. Foreldrasamvinna, sem felst meðal
annars í þvf að veita ráðgjöf og foreldraviðtöl.
Samvinna við sérfræðinga og ráðgjafa . Leiðbeining
og rágjöf til starfsmanna. Sem aðstoðarleikskólastjóri
er ég staðgengill leikskólastjóra.
Hvað finnst þér skemmtilegast við starfið? Það er
fjölbreytt og það er gefandi að vinna með börnunum.
Hvað finnst þér leiðinlegast? Ef upp koma
erfiðleikar.
Réttindi og fríðindi sem fylgja starfinu: Frír matur á
vinnutíma, borðað með börnunum (ekki farið í
mötuneyti og borðað í næði eins og algengast er á
vinnustöðum). Niðurgreitt árskort í líkamsræktarstöð
kr. 7000 á ári. Niðurgreidd dagvistargjöld fyrir börn
starfsmanna.