Vera - 01.10.2000, Qupperneq 27

Vera - 01.10.2000, Qupperneq 27
Jafnréttisviðurkenning Jafnréttisráös 2000 24. okt. raunar karla líka - ef til þess kæmi. Lögin um lafnlaunaráð voru síðan ásamt eldri lögum um jafnan rétt kvenna og karla, sem fyrir voru, sett undir eitt heiti: Jafnréttisráð. Klámiðnaður og kynferðisofbeldi gegn börnum eru nágrannar. Hvort tveggja er ofbeldi og kúgun. Af hverju þykir klám jafnnauðsynlegt skemmtiatriði nú til dags sem raun þer vitni? Er ekki þörf á að ræða þetta ekki síður en önnur umhverf- ismál? Bjarnfríður Leósdóttir Verkalýðsforingi frá Akranesi. Ein af stofnendum Samtaka kvenna á vinnumarkaði. Ég ólst upp við hefðbundna verkaskiptingu kynjanna - mamma hugsaði um heimilið, pabbi skaff- aði. Við systurnar hjálpuðum tii heima, bræður okkar snertu aldrei á neinu innandyra, bara léku sér. Þegar ég var f Samvinnuskólanum ræddi skólastjórinn, Jónas Jónsson, við okkur um framtíðina og áminnti okkur um að verða öll samvinnu- menn. Við ættum öll að verða kaupfélagsstjórar - þ.e. drengirnar. En stúlkurnar? Jú, við ættum auðvitað að verða kaupfélags- stjórafrúr! Sjálfsmynd mín byggðist algjörlega upp á þvf að verða eiginkona og móðir og að ráði foreldra minna fór ég í hús- mæðraskóla. Ég giftist, stofnaði heimili og eignaðist fjögur börn á átta árum. Við fórum að byggja hús en áttum litla peninga. Ég fór því að vinna í síld og fljótlega hófst verkalýðsbaráttan sem mér finnst hafa staðið sleitulaust sfðan. Hún byrjaði með ólöglegu verkfalli þegar átti að svíkja okkur um kauphækkun sem sömu síldarsalt- endur höfðu samið um fyrir norðan. Konurnar höfðu miklu lægra kaup en karlarnir og bónuskerfið hélt launum þeirra niðri. Eftir þvf sem þær unnu hraðar, var bónusinn lækkaður. Ég hygg að bónusinn eigi stóran hlut að þeim lágu taxtalaunum sem verkafólk býr nú við í landinu. „Friður byggist á réttlæti og réttlæti er forsenda friðar." Víða blasir óréttlætið við og þó að lítið ávinn- ist fylgir sú kennd mér að ég finn ekki frið í sálu minni nema að reyna í orði og verki að leggja örlítið að mörkum á vogarskálar minna gömlu hugsjóna. Borgarfulltrúi og þingkona Kvennaframboðs og Kvennalista. Borgarstjóri síðan 1994. Ég veit það satt að segja ekki. Það voru eflaust margir samverkandi þættir og magnaðist stig af stigi eftir því sem ég eltist og vitkaðist. Ég var þó snemma kvennapólitfsk og var staðráðin í þvf þegar sem barn að gefa ekki minn hlut eftir gagnvart strákunum. Ég var líka snemma ákveðin í því að „verða eitthvað" og fannst mér allir vegir færir. Síðar rakst ég ýmsar hindr- anir smíðaðar úr fordómum og fyrirframgefnum kynhlutverkum og þá var ekki um annað að ræða en að reyna að ryðja þeim úr vegi. Menntaskólaárin höfðu talsverð áhrif á mig vegna þess að mér fannst karlamórall og hefðir setja mjög mark sitt á skólann og fann mér aldrei samastað í þeirri stofn- un af þeim sökum. í háskólanum stjórnaði ég svo stúdentaráði, sem var stundum eins og baulandi karlakór, og það gerði útslagið. Þá ákvað ég að ganga til liðs við Rauðsokkahreyfinguna. Brýnast er að vinna að almennri viðhorfsbreytingu gagnvart hefð- bundnum kvennastörfum þannig að uppeldis- og umönnunarstörf verði metin að verðleikum áður en langt um líður. Þessari viðhorfs- breytingu ætti að fylgja aukin áhersla á að meta verðleika ráð- andi karla/kvenna eftir því hvort þau eru þess umkomin að umgang- ast aðra á jafnréttisgrundvelli en ekki undir blaktandi fána valdboðs og valdbeitingar. Helga Kress Prófessor í almennri bók- menntafræði. Varð fyrst kvenna deiidarforseti við Háskóla íslands þegar hún var skipuð forseti heimspekideildar 1997. Ég fæddist femínisti. Tungumálinu, það er það sem mótar vitund okkar og hugmyndir. Þöggun kvenna í tungumáli er tvfþætt, annars vegar er ekki á þær hlustað, hins vegar eru þær þar ósýnilegar. f tungumálinu, eða rétt- ara sagt beitingu þess, er mann- kynið karlkyns.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.