Vera - 01.10.2000, Page 36
ra ofan í moldinni
er námskeið um jafnréttismál fyrir forstöðumenn
ríkisstofnana. í nýju jafnréttislögunum er kveðið á um
að öll ráðuneyti skuli skipa jafnréttisfulItrúa. Ekki
verður ráðið sérstaklega í þær stöður og því er mikil-
vægt að komið verði á fræðslu fyrir það fólk sem tekur
þetta að sér. Ég vil að búið verði til eins konar nám
sem byggist á nokkrum dagsnámskeiðum en erannars
samþætt daglegu starfi og
að þetta fólk myndi sam-
starfshóp svo hægt sé að
samræma þá jafnréttis-
vinnu sem unnin verður
innan ráðuneytanna. Eitt
af verkefnum slfks hóps
gæti verið að starfa með
nefnd sem kanna á hvort
og með hvaða hætti opin-
ber stefnumótun ríkis-
stjórnarinnar taki mið af
jafnrétti kynja en nefndin,
sem er skipuð samkvæmt
framkvæmdaáætlun
ríkisstjórnarinnar, er um það bil að taka til starfa.
Annað stórt verkefni er að aðstoða fyrirtæki við gerð
jafnréttisáætlunar, en öll fyrirtæki landsins sem hafa
fleiri en 25 starfsmenn, eiga að gera slíka áætlun
samkvæmt nýju jafnréttislögunum. Samkvæmt opin-
berum tölum eru mörg hundruð fyrirtæki af þessari
stærð og því nóg verk að vinna. Ég tel ekki að
lafnréttisstofa eigi að sjá um þessa fræðslu ein heldur
vera í samvinnu við þau sem sjá um almenna ráðgjöf
við fyrirtæki, t.d. Samtök atvinnulffsins og atvinnu- og
iðnþróunarráðgjafa sveitarfélaga. Við munum útbúa
námskeið og leggja til námsefni, en þegar er til alls
kyns efni, handbækur sem tengjast starfsmannastefnu
o.fl. sem þarf til að búa til jafnréttisáætlun."
Þegar Valgerður lítur til þess sem er að gerast
erlendis í jafnréttismálum segir hún að sér hugnist vel
þær áherslur sem lagðar eru hjá Norrænu ráðherra-
nefndinni og í Evrópusamstarfinu. Hún segist vilja
leggja svipaðar áherslur. „í fyrsta lagi er það sem nefnt
hefur verið samþætting eða fléttun jafnréttis- og kynja-
sjónarmiða í allt starf.
Norræna ráðherra-
nefndin hefur unnið að
slíkri fléttun í æskulýðs-
málum og vinnu-
markaðsmálum og er nú
að bæta fjárlagaramm-
anum við. Annar mála-
flokkur er vinna gegn
ofbeldi og sölu á
konum. Á vegum
Evrópuráðsins er verk-
efni eða áætlun sem um
hefur verið stofnaður
sjóður, Daphne áætlun-
in, til að styðja þau sem vilja vinna að þessum málum.
ísland er aðili að þessu verkefni Ég tel að þessi áætlun
gefi mikla möguleika en verkefni hennar er líka að
vinna gegn ofbeldi á börnum. Samstarf verður við
Barnaverndarstofu o.fl. um framkvæmdina hérlendis.
Þriðja áhersluatriðið er málefni karla þar sem m.a. á að
styðja karla til umönnunarstarfa, vinna með körlum
sem vilja vinna með sína ofbeldishegðun, og sinna
forvörnum með fræðslu til drengja. Fjórði flokkurinn er
svo það sem hér hefur verið kallað Hið gullna jafn-
vægi, þ.e. fjölskyldustefna fyrirtækja, sveigjanleiki á
vinnumarkaði sem tengist líka launamálum kvenna og
að jafna stöðu kynjanna innan fyrirtækjanna. Að lokum
frh. á bls. 42
„Ég vil rannsaka hvað hefur áhrif á
viðhorf okkar og mynd okkar af
heiminum, og þar með sjálfmynd
okkar, og viðheldur mismunun
kynjanna. Ég er þar m.a. að hugsa
um tungumálið en íslenskan er
afar kyngreint og karllægt
tungumál og mótar viðhorf okkar
og sjálfsmynd ómeðvitað."
Nýtt Jafnréttisráð
Elín R. Líndal - formaður - tilnefnd af félagsmálaráðuneyti
Þórhallur Vilhjálmsson - varaformaður - tilnefndur af fjármálaráðuneyti
Gunnar Páll Pálsson - tilnefndur af Alþýðusambandi íslands
Þórveig Þormóðsdóttir - tilnefnd af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
Guðni Elísson - tilnefndur af Háskóla íslands
Helga V. Rósantsdóttir - tilnefnd af Kvenfélagasambandi Islands
Þorbjörg Inga Jónsdóttir - tilnefnd af Kvenréttindafélaginu
Sigurður Jóhannesson - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
Sigrún Stefánsdóttir - tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Birkir Jón Jónsson Einar Olafsson Ellen Ingvadóttir
Ragnheiður E. Árnadóttir Guðný Guðbjörnsdóttir Hrafnhildur Stefánsdóttir
Þórunn Sveinbjörnsdóttir Helga Ólöf Finnbogadóttir Kjartan Magnússon
-
36