Vera - 01.10.2000, Síða 54
Nýr
feminismi
fyrir ungar
konur
þetta aldrei artur! Aldrei! Hun er þaö tallegasta sem þú
átt, þetta er niðurlægjandi fyrir þitt eigið kyn. Segðu
pungur í staðinn!"
Píkutorfan er bók sem hefur skapað
nýjan feminisma fyrir ungar konur
á Norðurlöndunum. Bókin saman-
stendur af 19 sjálfstæðum greinum
þar sem ungar konur fjalla á opinskáan hátt
um líf sitt. Raddir ungra kvenna hafa hingað
til ekki verið áberandi en í Píkutorfunni er
samfélagsgagnrýni sem byggirá persónulegri
reynslu sem við allar getum funndið okkur í.
Reynsla sem þarf að tala um og fjalla um á gagn-
rýninn hátt til þess að við gerum okkur grein fyrir
að allt er ekki eins og það ætti að vera.
Paula: „Það væri gaman ef kvenleikinn innihéldi eitt-
hvað meira en bara þessa gömlu, góðu tuggu. ímynd-
aðu þér að það væri kvenlegt að hafa risastórar nasir
með fulft af útstandandi hárum. ímyndaðu þér að það
væri öruggt merki um kvenleika að geta hoppað jafn-
fætis og prumpað samtímis?"
Linna: „Þegar fieiri stelpur í bekknum höfðu fengið
brjóst varð potið að sjálfsögðum hlut. Þeir gripu fast,
klíptu og snertu, við héldum niðri í okkur andanum og
sögðum að þeir væru barnalegir meðan við fundum
svo mikið til að við vorum við það að falla í yfirlið."
Aysegul: „Að vera kona er er að ganga í of litlum skóm.
Að vera feministi er að skilja ástæðuna fyrir því og
fræða aðra um að það eru ekki fæturnir sem eru of
stórir heldur skórnir sem eru of litlir."
Karin: „Það er hægt að líta á það sem aðferð til að lifa
af að þroska með sér eiginleikann til að sjá sjálfa sig
utanfrá og hæfileikann tii að neita sér um frumþarfir
eins og mat og svefn í von um að falia betur inn í
hópinn og verða grennri og sætari. Hvernig ættum við
annars að túkla þann boðskap sem haldið er að okkur
úr öllum áttum?"
Karolina: „Einn iaugardaginn datt ég f stofunni og
sagði óvart „ái, píka" í staðinn fyrir andskotinn eða
helvíti. Hún (mamma) birtist eins og þruma úr
54
Ann-Linn: „Svo fyrir utan það, ef einhver heldur áfram
að kalla ykkur druslur þurfið þið ekki að sanna það
gagnstæða. Því þeir kalla ykkur ekki druslur vegna þess
að þið eruð það, þeir kalla ykkur druslur til þess að
geta stjórnað því hvernig ykkur líður."
Liv-Marit: „f gaggó lét ég mig dreyma, sat og hugsaði
um töff setningar sem ég myndi segja í viðtölum
þegar ég yrði fræg. Ég reyndi að safna nokkrum
vinkonum mínum saman í hljómsveit en það gekk ekki
vegna áhugaleysis þeirra á því en miklum áhuga á
strákum og snyrtidóti."
Belinda: „Það sem ég er að reyna að segja er að ævin-
týrið um Öskubusku er ömurlegt. Hún hefði frekar átt
að sleppa ballinu og verða iögfræðingur því þá hefði
hún getað kært stjúpmömmu sína fyrir að fara illa með
hana."
Ef þetta segir ekki það sem segja þarf, lestu þá bara bókina.
Bókakápa Píkutorfunnar
Hugrún R. Hjaltadóttir og Þóra Þorsteinsdóttir