Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 10

Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 10
/ SKYNDIMYND radiOrakel femínísk útvarpsstöð »Rut Hermannsdóttir er 27 ára gömul Akureyrarmær sem síðustu fimm ár hefur verið búsett í Ósló þar sem hún lagði stund á nám í kvik- myndgerð. í náminu varð hún meðvituð um slaka stöðu kvenna innan kvikmyndaiðnaðarins og vildi gera eitthvað í því. Fyrir röð tilviljana endaði hún á radiOrakel, femínískri útvarpsstöð í Ósló. Þar er hún í rit- stjórn á femínískum kvikmyndaþætti og situr í stjórn stöðvarinnar. VERU lék forvitni á að vita meira um hina femínísku útvarpsstöð og hvernig þessi kraftmikla stúlka að norðan komst þar inn. Þorgeröur Þorvaldsdóttir Þetta byrjaði allt á því að ég og íslensk vinkona mín, Þóra Tómasdóttir, sem einnig var í kvikmyndaskólanum sett- umst niður og fórum að velta fyrir okkur stöðu kvenna í kvikmyndaiðnaði. í Noregi voru veittir 21 styrkur til kvik- myndagerðar árið 2003 en aðeins þremur myndanna var leikstýrt af konum. Þá fórum við einnig að velta fyrir okkur innihaldi kvikmyndanna, kvenfmyndinni sem þar birtist og boðskapnum. Niðurstaða okkar var einfaldlega sú að við þyrftum byltingu. Ein leið er að búa til tengslanet kvenna sem eru í kvikmyndagerð og reyna að breyta þessu. I fram- haldi af því duttum við niður á þá hugmynd að búa til út- varpsþátt. Þá rifjaðist það upp fyir okkur að radiOrakel er femínísk útvarpsstöð. Það var svo fyrir algjöra tilviljun, þegar ég var úti að skemmta mér, að ég rakst á fólk sem var að vinna að kvikmyndaþætti á radiOrakel. Ég skellti bara á þau hugmyndinni, þeim fannst hún æði og þar með byrj- aði það. Þetta var fyrir tæpu ári. Segðu okkur aðeins meira frá útvarpsstöðinni. Er það rétt að hún og VERA séu jafnöldrur? Já, radiOrakel er 21 árs gömul. Henni var startað árið 1982 eftir að nokkrar góðar konur höfðu haldið kvennamenn- ingarhátið í Ósló. Þær höfðu fengið styrki til verkefnisins en þegar hátíðinni lauk voru til afgangs peningar sem þær ákváðu að nota í þágu kvennamenningar. Þá var stofnaður tónlistarskóli fyrir konur, sem enn er starfandi, þar sem kennt var á rafmagnsgítar, rafmagnsbassa og trommur, svona rokkskóli fyrir stelpur. Hitt verkefnið var svo útvarps- stöðin radiOrakel. Þetta var fyrsta kvennaútvarpsstöðin í heiminum og hún er enn ein af fáum. Markmið stöðvarinn- ar er að konur séu sýnilegri í fjölmiðlum og að tónlist sem konur búa til sé meira spiluð. Reglurnar eru þannig að út- varpsstjórinn verður að vera kona, tveir þriðju af tónlistinni sem við spilum á að vera samin eða flutt af konum og a.m.k. tveir þriðju af starfsfólki stöðvarinnar á að vera kon- ur. Þeir strákar sem eru með okkur eru svo að sjálfsögðu femínistar. Þetta eru hins vegar samtök en ekki vinnustað- ur í venjulegum skilningi. Stöðin er hápólitísk og reynir að taka upp brýn þjóðfé- lagsmál sem aðrir fjölmiðlar veita ekki athygli. Við berj- umst á móti hverskonar mismunun, svo sem kynþátta- hatri, ofsóknum af trúarlegum ástæðum og kynferðislegri áreitni. Við höldum á lofti tónlist og menningu sem oft drukknar í auglýsingaæði annarra útvarpsstöðva. Okkar markmið er að vera gagnrýnin útvarpsstöð sem spyr gagn- rýnna spurninga og leyfir sér að gera tilraunir. 10/4. tbl. / 2003 / vera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.