Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 32

Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 32
/ KYNBUNDINN LAUNAMUNUR Meðvitaðir ráðamenn skipta sköpum »Síðastliðið vor lauk Sigurbjörg Ásgeirsdóttir BA prófi í stjórnmálafræði við Háskóla íslands. Lokaritgerðin heitir Kynbundinn launamunur á íslandi og var Dr. Svanur Kristjánsson leiðbeinandi. Sigurbjörg skoðar sérstaklega þann árangur sem hefur náðst hjá Reykjavíkurborg og Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur í að minnka kynbundinn launamun og kemst að því að ef vilji er fyrir hendi sé hægt að ná árangri í því að minnka launamuninn. VERA bað Sigurbjörgu að skýra í stuttu máli frá niðurstöðum ritgerðarinnar. Þrátt fyrir að konur hafi menntað sig, farið út á vinnumarkaðinn og þannig lyft grettistaki til að bæta stöðu sína búa þær við launamun sem eingöngu má rekja til kynferðis. Þegar kona eins og ég, sem komin er á miðjan ald- ur og hefur varið stórum hluta ævi sinnar í þátttöku í kvennahreyfingunni og úti á vinnumarkaðinum, stendur frammi fyrir því að velja sér BA-verkefni í stjórnmálafræði er nærtækast að skoða hvort ekki sé hægt að gera eitthvaðtil aðjafna þennan launamun. Samkvæmt vinnumarkaðstölum Hag- stofu íslands í nóvember 2002 voru 87,3% karla á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði á móti 78,2% kvenna á sama aldri. Nánast jafnt hlutfall kynjanna er í öllum aldurshóp- um nema töluvert færri konur á aldrinum 55-74 ára eru virkar á vinnumarkaði en karl- ar. Konur eru þó oftar í hlutastörfum en karl- ar. Atvinnuþátttaka kvenna er hér á landi með því hæsta sem þekkist í heiminum. Annað einkenni á vinnumarkaðinum er hvað hann er kynskiptur. Jafnvel er talað um tvo vinnumarkaði, karla og kvenna, eins og Harriet Bradley vitnar um í bók sinni Men's work, Women's work. Hún talar um að vinnumarkaðurinn samanstandi af störfum karla sem eru hærra settir og störfum kvenna sem eru lægra settar. Flest bendir til að kynin hafi unnið ólík störf í þeim samfé- lögum sem þekkt hafa verið eri um ástæð- urnar eru fræðimenn ekki sammála. Það er skoðun Bradley að kvennastörf hafi orðið til í iðnbyltingu og uppgangi kapítalisma. Það eru félagsleg viðhorf til stöðu konunnar, frekar en raunveruleg staða á vinnumarkaði, sem ráða hugmyndum um efnahagslega þátttöku. Þar er fyrirvinnuhugtakið eitt sterkasta tækið til að halda konum niðri. Reyndar hefur barátta femínista komið því til leiðar að nú er talað um fjölskyldutekjur líkt og fyrirvinnur áður í þeim tilgangi að hafa hemil á konum. Það sýnir best hvað hugtakið er kynbundið að enginn hefur barist fyrir því að fjölskyldutekjur verði not- aðar til að réttlæta laun giftra kvenna sem vinna úti, þó það þyki sjálfsagt um kvænta karla. Allt frá iðnbyltingunni hefur það verið viðhorf aðila vinnumarkaðarins að staða kvenna væri á heimilinu þó þær hafi alla tíð unnið mikið utan heimilisins. Afleiðingin er sú að staða kvenna á vinnumarkaði hefur ekki tekið tíma þeirra sem móta aðgerðir verkalýðshreyfingarinnar. Á þessu er ein undantekning sem er Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Á meðan önnur félög réðu nær eingöngu félagsmenn sem einhver ástæða þótti til að fengju starf hjá viðkomandi félagi, leitaði VR að fagfólki. Slíkt fyrirkomulag var líklegra til að nýjar hugmyndir kæmu inn í starfsemina og hefðu áhrif á störf félagsins. Það ásamt vilja forystumanna til að breyta skiptu miklu máli. Árangur Reykjavíkurborgar og VR Femínískar kenningar skýra best kynbund- inn launamun og þurfa engir að verða hissa á því að þess sæjust fljótlega merki að breyt- ingar urðu á afstöðu Reykjavíkurborgar til launamála kvenna þegar fyrrverandi ritstýra VERU settist í stól borgarstjóra. Völd Ingi- bjargar Sólrúnar og Reykjavíkurlistans byggðust á miklu fylgi kvenna. Aðgerðir gegn kynbundnum launamun þurfa að vera í algerum forgrunni hjá æðstu ráðamönn- um, hækka þarf sérstaklega laun kvenna umfram laun karla, koma á kynhlutlausu starfsmati, hvetja konur til að semja um hærri laun og verðleggja sig á sama mæli- kvarða og karlar. Jafnframt þessu verði unn- ið í að fjölga konum í ábyrgðarstörfum og þar með breyta kynskiptingunni á vinnu- markaðnum. Þannig er beitt sértækum að- gerðum til að jafna hlut kynjanna í störfum. Fyrsta launakönnun Reykjavíkurborgar sýndi að kynbundinn launamunur var 15,5% í mars 1995 en í október sama ár var hann kominn í 14,0% eftir fyrstu kjarasamn- ingana þar sem sérstaklega skyldi tekið á launamuninum. Þessi munur er kominn f 7,0% í launakönnun í október 2001 og sú könnun sýnir að ekki er munur á dagvinnu- launum kynjanna en launamunurinn kemur fram í aukagreiðslum sem karlarfá í miklu rík- ari mæli en konur og ákvarðaðar eru í stofn- unum frekar en í heildarkjarasamningum. Launakannanir VR sem gerðar voru 1999 og 2000 sýndu að kynbundinn launamunur var 18% en í könnuninni 2001 var munurinn orðinn 16%. Laun höfðu hækkað nokkuð meira í starfsgreinum þar sem nær ein- göngu voru konur en í greinum þar sem karlar voru. Aðgerðir VR, með auglýsingum og námskeiðum fyrir konur um launasamn- inga, virðast skila þeim árangri að dregur úr launamun og laun kvenna hækka meira en laun karla. Það er sama þróunin og verið hef- ur í kjarasamningum borgarinnar. Til skamms tíma er árangursríkara að fara að dæmi Reykjavíkurborgar og ná þannig að koma á launajafnrétti. Það þýðir að atvinnu- rekendur ættu að skoða hug sinn hvort ekki sé kominn tími til að fylgja fordæmi borgar- innar og hækka sérstaklega laun kvenna. VR fer þá leið að hafa áhrif á almennings- álitið og hefur þannig náð árangri þó minni sé. En dropinn holar steininn og með þessari aðferð er verið að virkja hið borgaralega samfélag. Það velur sér stjórnvöld og dæmin sanna að valdhafar geta stuðlað að breyt- ingum ef vilji erfyrir hendi. Meðvitaðir ráða- menn skipta sköpum. Það er lykilatriði. X 32/4. tbl. / 2003 / vera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.