Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 29

Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 29
tíma ef þú getur valið um fleiri en eitt starf. Þá hefjast launa- umræður. Þó þú ætlir ekki að tala um peningamálin strax þá getur verið að þú verðir spurð í fyrsta viðtali hvaða launakröfur þú gerir. Þú getur þá reynt að segja hvaða laun þú hefur í núverandi (eða síðasta) starfi og sagt að þú treystir væntanlegum vinnu- veitanda þínum til að greiða sanngjörn laun. Reynt semsé að eyða talinu þar til að öruggt sé að þú hafirfengið starfið. Hafa núverandi laun áhrif á hvaðalaun ég get fengið? Sértu spurð um laun í núverandi starfi (eða síðasta starfi sem þú varst í) skaltu svara sannleikanum samkvæmt. Eða þú gætir svarað mjög loðið og sagt: „Ég er með minna en x hundruð þúsund," sem þá þýðir um leið að þú viljir gjarna komast upp fyrir þá upphæð. Sértu undirborguð eða illa borguð i núverandi starfi skaltu taka það fram þegar þú ert spurð um laun þín. Annars gæti tilvonandi atvinnurekandi haldið að hann þurfi heldur ekki að borga þér mannsæmandi laun. En ef mér eru boðin of lág laun? í stað þess að krefjast þess að tilboðið verði hækkað gætirðu sett fram spurningu við launa- tilboðinu sem þú færð: „Er mögu- leiki að þessi upphæð verði hærri?" Eða: „Mér stendur reynd- ar til boða annað starf með mun hærri laun, gæti hugsast að þið mynduð jafna það tilboð?" (Ekki segja þetta nema það sé satt). Reyndu að enda setningar á að spyrja: „Hvað finnst þér?" því þú vilt að þið komist að sameigin- legri niðurstöðu. Láttu vita að þér lítist vel á fyrirtækið og langi mjög að vinna þar en það sé bara þessi hængur á og hvort verði ekki hægt að leysa það? Sé þér sagt að það sé vaninn að borga þessi laun til að byrja með þá skaltu taka því með æðruleysi, segja: „Ég skil," en spyrja svo hvað þurfi til að komast upp úr þeim launaflokki og hversu fljótlega það gerist, hvort eitt gildi fyrir öll eða hvort starfsfólk þurfi að uppfylla ein- hver skilyrði til þess. Getir þú alls ekki sætt þig við launin sem í boði eru, skaltu afþakka starfið. Það er mjög slæmt að geta ekki framfleytt sér af laununum og enn verra er það fyrir sjálfsvirðinguna. Segðu ekki nei, segðu kannski kannski kannski... Flestar segja „allt í lagi" þegar þeim eru boðin laun sem þeim líst sæmilega á. Allt í lagi þýðir þá: „Þakka þér fyrir, ég þigg það sem þú býður mér." Prófaðu að sleppa því og segja í staðinn „hmm"og sjáðu hvað gerist. Ef þú segir „allt í lagi" en fyrirtækið hefði verið tilleiðanlegt að bæta við upphæðina ef þú hefðir farið fram á það, ertu búin að eyðileggja tækifærið til að þér verði boðið meira. Ef þú hummar hinsvegar f samningaviðræðunum eru líkur á að fyrirtækið hækki boðið, því það hefur liklega svigrúm til þess og vill vera viss um að þú þiggir starfið. Helst áttu að endurtaka töluna sem þér er boðin og segja svo mjög hugsi: „Hmm ..." Jafnvel þótt þig langi helst til að stökkva hæð þína í loft upp af gleði skaltu taka þér þessa umhugsunar- mínútu sem gæti orðið til þess að launin þín yrðu enn hærri! PASSIÐ YKKUR BARA A A Ð GERA EKKI EINS OG HANN BIGGI SEM STAL EINNI SNEIÐ A F HOLLU OG GÓÐU BARNAPIZZUNNI FRÁ HENNI DÓRU LITLU. HÚN GRÆTUR ENN SKOÐIÐ MATSEÐILINN A WWW.ANAESTUGROSUM.IS vera / 4. tbl. / 2003 / 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.