Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 11
STOÐIN ER HAPOLITISK OG REYNIR
AÐ TAKA UPP BRÝN ÞJÓÐFÉLAGS-
MÁL SEM AÐRIR FJÖLMIÐLAR VEITA
EKKI ATHYGLI. VIÐ BERJUMST Á
MÓTI HVERS KONAR MISMUNUN,
SVOSEM KYNÞÁTTAHATRI, OF-
SÓKNUM AF TRÚARLEGUM ÁSTÆÐ-
UM OG KYNFERÐISLEGRI ÁREITNI
Hvernig ersvona útvarpsstöð fjármögnuð?
Stöðin er fjárhagslega sjálfstæð. Hún lifir á árgjöldum með-
lima radiOrakel og styrkjum frá ríkinu sem eru veittir til
svæðisútvarpsstöðva. Svo eru líka styrkir frá samtökum
fjölmiðla og samtökum svæðisútvarpsstöðva. Það er mjög
mikið af litlum útvarpsstöðvum í Noregi en okkar er svolít-
ið spes - femínísk útvarpsstöð - og hún er mjög þekkt. Við
náum til 700.000 hlustenda en við deilum tíðni með öðrum
litlum stöðvum, t.d. stúdendarásum. Það er talað um að
hópurinn okkar sé svona í kringum 50 -60.000 og helming-
ur hlustenda eru karlmenn!
Þá fáum við verkefni frá hinum ýmsu ráðuneytum, t.d.
frá heilbrigðisráðuneytinu, svo og hagsmunasamtökum
eins og samtökum kvenna í þriðja heiminum og samtök-
um innflytjendakvenna. radiOrakel hefur tekið þátt í að
hjálpa konum í Bosníu við að stofna útvarpsstöðina
RadioVesta og Mama FM í Uganda. Þá hafa verið gerðir
heimildaþættir, t.d. um getnaðarvarnir og um stöðu inn-
flytjendakvenna. Við erum þannig að fjalla um flest það
sem hefur eitthvað með femínisma og stöðu kvenna í
heiminum að gera, en um leið erum við að fjalla um margs-
konar samfélagsleg vandamál. Við erum ekki með neinar
auglýsingar því málefnið á ekki að falla í skuggann af kap-
ítalisma, eða markaðsúlfinum. Við erum hins vegar með
umfjöllun um þá sem styrkja okkur, sem við læðum inn í:
prógramið á smekklegan hátt. Upp á síðkastið höfum við
hins vegar verið að ræða það hvort við ættum að taka inn
valdar auglýsingar því við erum svo blankar. Það yrði þá að
vera frá samtökum og stofnunum sem eru að gera góða
hluti og eru í fullu samræmi við þann boðskap sem stöðin
stendur fyrir. Mér dettur í hug krabbameinssamtökin eða
áróður um að hætta að reykja. Það kemur ekki til greina að
fara að auglýsa bíla, Ijósalampa eða svoleiðis hluti.
Eru þetta launuð störf á radiOrakel?
Nei, allir vinna í sjálfboðavinnu. Það eru um 160 meðlimir í
stöðinni. En stöðin er meira en bara útvarpsstöð, hún er
líka skóli. radiOrakel virkar þannig að fólk sem hefur enga
reynslu af fjölmiðlum fer fyrst á blaðamannanámskeið,
sem kostar smá pening. Sjálf hef ég unnið sem blaðamað-
ur síðan ég var 19 ára og er með kvikmyndanám að baki
svo ég komst inn án námskeiðs.
( framhaldi af því kemur fólk svo hægt og rólega inn í
stöðina og reksturinn. Það kynnist fólkinu og fær að prufa
sig áfram, en til þess fær það bæði aðhald og stuðning. Það
er ótrúlega skrýtið að vera þarna. Andrúmsloftið er svo
vera / 4. tbl. / 2003 / 11