Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 65

Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 65
/ FRÁ FEMÍNISTAFÉLAGI ÍSLANDS Meðmæli á Menningarnótt Ofbeldisvarnarrhópur Femínistafélags íslands stóð fyrir meðmælum á Menningarnótt. Meðmælin eru þannig til komin að við erum öll orðin leið á sífelldum mótmælum. Svo að í staðinn fyrir að mótmæla ofbeldi ákváðum við að mæla með því sem við viljum frekar. Að kvöldi 16. ágúst söfnuðumst við svo saman í húsnæði Stígamóta, komum fyrir hátölurum í gluggunum og stilltum upp hljóðnema á miðju gólfi. Þar höfðum við það svo huggulegt fram yfir flugeldasýningu, lásum ástarljóð við kertaljós og hvöttum fólk til að virða hvert annað og elskast. AuðurAlfífa Ketilsdótir Þetta er sú veröld sem ég vil Ræða Höllu Gunnarsdóttur í Þjóðleikhúskjallaranum 1. maí 2003 Og seinna börnin segja sko mömmu! hún hreinsaði til og seinna börnin segja þetta er einmitt sú veröld sem ég vil. ÓGNVÆNLEGASTA STAÐREYNDIN ER SÚ AÐ HÁTT í 50% OKKAR HEFUR VERIÐ NAUÐGAÐ. ENGINN ÞESSARA NAUÐGARA HEFUR VERIÐ KÆRÐUR. ALLIR GANGA ÞEIR FRJÁLSIR Það vill svo til að ég er þetta þarn sem sungið er um. Og ég segi svo sannarlega: Sko mömmu! Flún hreinsaði til._ Ég hef ýmis réttindi sem ekki hafa alltaf þótt sjálfsögð. Ég hef rétt til að stunda nám, rétt til að stjórna mínum barneignum, rétt til að vera fjárhagslega sjálfstæð og rétt til að ráða yfir mínu eigin lífi. En eitthvað stendur í mér að segja: Þetta er einmitt sú veröld sem ég vil! Mig langar til að segja ykkur frá mér og vinkonum mínum, níu kvenna hópi. Við njótum okkar frelsis og eltum draumana okkar eftir fremsta megni. Þannig eru flestar okkar í háskóla, flestar höfum við dvalið erlendis og allar höfum við unnið störf sem samræmast okkar áhugasviði. Engu að síður er eitthvað sem ekki samræmist veröldinni sem ég vil: * Fimm okkar eiga feður eða stjúpfeður sem eru alkóhólistar og hafa þurft að alast upp við það óöryggi og ofbeldi sem fylgir þeim sjúkdómi. ’ Ein okkar hefur fengið búlemíu og ein snert af anorexíu. ’ Átta okkar eru eða hafa verið óánægðar með holdafar sitt. ’ Þrjár hafa farið í fóstureyðingu, þar af ein eftir nauðgun. ‘ Fjórum okkar hefur verið nauðgað. það er nauðsynlegt að taka það fram að við erum mistilbúnar að ræða vandamálin og þess vegna er alls óvíst að ég viti um allan þann vanda sem hefur hrjáð þessar vinkonur mínar. Ógnvænlegasta staðreyndin er sú að hátt í 50% okkar hefur verið nauðgað. Enginn þessara nauðgara hefur verið kærður. Allir ganga þeir frjálsir. Þetta þýðir að ef ég hitti fyrir níu stráka væru líkur á því að fjórir þeirra væru nauðgarar. Nefnilega þeir sem nauðguðu helmingnum af okkar hópi!! Kynferðislegt ofbeldi er grófasta birtingarmynd þess kynjamisréttis sem fyrirfinnst í þjóðfélaginu. Vændi, klám og mansal flokkast undir kynferðislegt ofbeldi. í mörgum þessara efnisflokka er talað um frelsi til að velja. En valfrelsinu fylgir einn órjúfanlegur þáttur, nefnilega frelsi til að hafna! Og hann er sjaldnast virtur. Við getum eflaust ekki sigrast á kynferðislegu ofbeldi hér og nú. En við getum mörgu breytt. Ég tel eitt brýnasta verkefni ofbeldisvarnarhópsins vera að setja skömmina þar sem hún á heima. Flún á ekki heima hjá þeim sem verða fyrir ofbeldinu!! Flún á heima hjá þeim sem fremja það. Kynferðislegt ofbeldi er margfalt algengara en flest halda. Það er að sjálfsögðu misgróft, allt frá fullum karli sem grípur um brjóst konu á bar og upp í hrottafengnar nauðganir, ítrekaða misnotkun á barni eða mansal. Ég þori að fullyrða að öll hér inni þekki dæmi um kynferðsilegt ofbeldi. Kámvæðingin sannfærir svo gerendur um að hegðun þeirra flokkist sem eðlilegt kynlff. ÞETTA ER EKKI SÚ VERÖLD SEM ÉG VIL! X vera / 4. tbl. / 2003 / 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.