Vera - 01.08.2003, Síða 65
/ FRÁ FEMÍNISTAFÉLAGI ÍSLANDS
Meðmæli á Menningarnótt
Ofbeldisvarnarrhópur Femínistafélags íslands stóð fyrir meðmælum
á Menningarnótt. Meðmælin eru þannig til komin að við erum öll
orðin leið á sífelldum mótmælum. Svo að í staðinn fyrir að mótmæla
ofbeldi ákváðum við að mæla með því sem við viljum frekar. Að
kvöldi 16. ágúst söfnuðumst við svo saman í húsnæði Stígamóta,
komum fyrir hátölurum í gluggunum og stilltum upp hljóðnema á
miðju gólfi. Þar höfðum við það svo huggulegt fram yfir
flugeldasýningu, lásum ástarljóð við kertaljós og hvöttum fólk til að
virða hvert annað og elskast.
AuðurAlfífa Ketilsdótir
Þetta er sú veröld sem ég vil
Ræða Höllu Gunnarsdóttur í Þjóðleikhúskjallaranum 1. maí 2003
Og seinna börnin segja
sko mömmu! hún hreinsaði til
og seinna börnin segja
þetta er einmitt sú veröld sem ég vil.
ÓGNVÆNLEGASTA STAÐREYNDIN ER SÚ AÐ HÁTT í 50% OKKAR
HEFUR VERIÐ NAUÐGAÐ. ENGINN ÞESSARA NAUÐGARA HEFUR
VERIÐ KÆRÐUR. ALLIR GANGA ÞEIR FRJÁLSIR
Það vill svo til að ég er þetta þarn sem sungið er um. Og ég
segi svo sannarlega: Sko mömmu! Flún hreinsaði til._ Ég
hef ýmis réttindi sem ekki hafa alltaf þótt sjálfsögð. Ég hef
rétt til að stunda nám, rétt til að stjórna mínum
barneignum, rétt til að vera fjárhagslega sjálfstæð og rétt
til að ráða yfir mínu eigin lífi.
En eitthvað stendur í mér að segja: Þetta er einmitt sú
veröld sem ég vil!
Mig langar til að segja ykkur frá mér og vinkonum
mínum, níu kvenna hópi. Við njótum okkar frelsis og
eltum draumana okkar eftir fremsta megni. Þannig eru
flestar okkar í háskóla, flestar höfum við dvalið erlendis og
allar höfum við unnið störf sem samræmast okkar
áhugasviði.
Engu að síður er eitthvað sem ekki samræmist veröldinni
sem ég vil:
* Fimm okkar eiga feður eða stjúpfeður sem eru
alkóhólistar og hafa þurft að alast upp við það óöryggi
og ofbeldi sem fylgir þeim sjúkdómi.
’ Ein okkar hefur fengið búlemíu og ein snert af
anorexíu.
’ Átta okkar eru eða hafa verið óánægðar með holdafar
sitt.
’ Þrjár hafa farið í fóstureyðingu, þar af ein eftir nauðgun.
‘ Fjórum okkar hefur verið nauðgað.
það er nauðsynlegt að taka það fram að við erum
mistilbúnar að ræða vandamálin og þess vegna er alls
óvíst að ég viti um allan þann vanda sem hefur hrjáð
þessar vinkonur mínar. Ógnvænlegasta staðreyndin er sú
að hátt í 50% okkar hefur verið nauðgað. Enginn þessara
nauðgara hefur verið kærður. Allir ganga þeir frjálsir. Þetta
þýðir að ef ég hitti fyrir níu stráka væru líkur á því að fjórir
þeirra væru nauðgarar. Nefnilega þeir sem nauðguðu
helmingnum af okkar hópi!!
Kynferðislegt ofbeldi er grófasta birtingarmynd þess
kynjamisréttis sem fyrirfinnst í þjóðfélaginu. Vændi, klám
og mansal flokkast undir kynferðislegt ofbeldi. í mörgum
þessara efnisflokka er talað um frelsi til að velja. En
valfrelsinu fylgir einn órjúfanlegur þáttur, nefnilega frelsi
til að hafna! Og hann er sjaldnast virtur.
Við getum eflaust ekki sigrast á kynferðislegu ofbeldi
hér og nú. En við getum mörgu breytt. Ég tel eitt brýnasta
verkefni ofbeldisvarnarhópsins vera að setja skömmina
þar sem hún á heima. Flún á ekki heima hjá þeim sem
verða fyrir ofbeldinu!! Flún á heima hjá þeim sem fremja
það.
Kynferðislegt ofbeldi er margfalt algengara en flest
halda. Það er að sjálfsögðu misgróft, allt frá fullum karli
sem grípur um brjóst konu á bar og upp í hrottafengnar
nauðganir, ítrekaða misnotkun á barni eða mansal.
Ég þori að fullyrða að öll hér inni þekki dæmi um
kynferðsilegt ofbeldi. Kámvæðingin sannfærir svo
gerendur um að hegðun þeirra flokkist sem eðlilegt kynlff.
ÞETTA ER EKKI SÚ VERÖLD SEM ÉG VIL! X
vera / 4. tbl. / 2003 / 65