Vera - 01.08.2003, Qupperneq 15
RÉTTINDABARÁTTA SAMKYNHNEIGÐRA Á ÍSLANDI HEFÐI VERIÐ
TTATENGIST
legra fyrirfordómunum og sleggjudómunum. Það þarf að
vera stöðugt á vaktinni í þessum málum, sem og öðrum
mannréttindamálum eins og kvenfrelsis- og kvenréttinda-
málum. Það má aldrei sofna á verðinum.
Hvaða áherslur telur þú vera mikilvægar í allri
jafnréttisbaráttu?
Hinn rauði þráður í allri jafnréttisbaráttu felst í því að við-
urkenna fjölbreytileika, að við erum ekki öll eins. Andstæð-
an er sú að allir eigi að vera eins. Það er krafa sem felst í
öfgunum, eins og fasisma og öðrum slíkum stefnum. Kraf-
an um að allir hafi sama smekkinn, allir viðurkenni sömu
gildin og fordæmi það sem fellur ekki að þeirri mynd.
Þetta er flókin barátta, þetta er ekki mjög einfalt mál. Hún
krefst í fyrsta lagi umburðarlyndis og að það sé ýtt undir
löngun fólks til að njóta þess hvað mannlífið er fjölbreytt í
stað þess að vera hrætt við það.
Það mætti segja að margt hafi breyst til betri
vegar á stuttum tíma á Islandi. Hverjar heldur
þú að forsendurnar fyrir því geti verið?
Ég held að íslendingar séu almennt þannig að ef þeim er
gefið tækifæri til þess að vera fordómalausir þá grípi þeir
það. Ég held að það tækifæri hafi nokkrum sinnum gefist i
sögunni og það hefur gerst með okkur samkynhneigða.
Eg er ekki að segja að allir fordómar séu úr sögunni. Það er
bara svo margt fólk sem hefur fegins hendi gripið það
tækifæri að vinna á fordómum sínum.
Kjör Vigdísar Finnbogadóttur breytti t.d. gifurlega
miklu. Ungir drengir á hennar forsetatíð vöndust aldrei
öðru en að kona væri forseti (slands og fannst það alveg
sjálfsagt, enda stóð hún sig með mikilli prýði. Eins var þeg-
ar konum fór að fjölga á þingi og þegar staðan var sú að
kona var forseti Hæstaréttar, forseti (slands og forseti Al-
þingis. Allt þetta hefur áhrif á hvernig fólk hugsar um hlut-
ina. Sýnileikinn, eins og ég var að nefna með Vigdísi og
fleira, er mjög mikilvægur. Það er mikilvægt fyrir stelpurn-
ar að sjá að konur séu kallaðar til ábyrgðar og þær séu í
forystu. Það er líka mikilvægt fyrir strákana að venjast því
að konur geti verið yfirmenn, leiðtogar og stjórnendur og
að þær geti skipað hvaða stöðu sem er í þjóðfélaginu. Fólk
á einnig að vera undirbúið undir það að samkynhneigður
einstaklingur geti orðið forseti íslands og á Bessastöðum
sitji tveir karlmenn eða tvær konur. Þarna hefur kvenrétt-
indabaráttan rutt brautina.
Nú er mikið barist fyrir því innan opinbera geirans að
konur njóti kjara og möguleika til jafns við karla. Ég held
að þessi barátta þurfi líka að fara út á hinn almenna vinnu-
markað. Það þarf að venja atvinnurekendur við það að
konur séu alveg jafn hæfir stjórnendur og séu alveg jafn
hæfar til að taka að sér ábyrgðarstöður og karlar. Stundum
getur það verið betra vegna þess að þær hafa annað til
málanna að leggja og frá annarri hlið.
ILLFRAMKVÆMANLEG OG JAFNVEL ÓHUGSANDI ÁN KVENRÉTT-
INDABARÁTTUNNAR. HÚN RUDDI BRAUTINA OG SLÓ í BURT SVO
MARGAR BÁBILJUR, ENDA TENGIST ÖLL MANNRÉTTINDABARÁTTA
m.
Hvernig skilgreinir þú femínisma?
Fyrir utan það að tryggja hin formlegu réttindi sem koma
fram í lögum og reglugerðum þá hlýtur femínismi líka að
snúast um að þess sé gætt að sýn kvenna - og það sama á
við sýn samkynhneigðra - á lífið og tilveruna fái tilheyrandi
athygli. Kennslubækur eru fullar af sögum af afburðakörl-
um sem hafa náð árangri í hinu og þessu og þar er mæli-
stikan oft svo karllæg. Það er miklu síður horft á hluti sem
konur hafa gert í gegnum tíðina sem merkilegt framlag til
sögunnar. Það er eðlilegt að breyta því og stuðla að þvi að
heimsmynd kvenna séjöfn á við heimsmynd karla. En ég
held að hún geti aldrei orðið sú sama.
Skilgreinir þú þig sem femínista?
Ég hef nú forðast mikið að skilgreina mig sem eitthvað,
nema þá sem Lennonista. Síðustu tuttugu ár ævi sinnar
var Lennon ákaflega mikill femínisti og fékk heldur betur
að finna fyrir fordómum fýrir að giftast og leggja lag sitt
við konu af asískum uppruna og sem var líka eldri en hann.
í breskum fjölmiðlum var gengið svo langt að segja að
hún væri beinlínis Ijót, hún var sögð vera norn, að hún hafi
eyðilagt Bítlana og svo framvegis. Þetta sýnir okkur hvern-
ig fordómar geta brotist út. Ég held ég haldi mig bara við
það að vera Lennonisti. X