Vera - 01.08.2003, Síða 17
4.
Hæfileiki kvenna til að semja um laun er oft dreginn í efa
og þær sakaðar um að gera ekki nægilegar kröfurfyrir sjálf-
ar sig. Því hefur meira að segja verið haldið fram að launa-
munurinn sé bara konum sjálfum að kenna. Það verður því
fróðlegt að vita hvaða árangri þær konur ná sem taka
áskorun Femínistafélags íslands og biðja um launahækkun
24. október nk. en það er liður í Femínistavikunni sem hefj-
ast mun sama dag. Sömuleiðis skorar félagið á fyrirtæki
landsins að kanna hvort kynjum sé mismunað í launum
innan þeirra og gera leiðréttingu ef svo skyldi vera.
Launaleynd er körlum í hag
Þó að sett hafi verið lög hér á landi fýrir löngu þess efnis að
greiða skuli sömu laun fyrir sömu vinnu er mjög algengt
að í skjóli launaleyndar sé samið betur við karlmenn en
konur. Að baki þessari tilhneigingu liggja ýmsar orsakir -
það er eins og arfur feðraveldisins sé enn á sveimi þegar
launaákvarðanir eru teknar. Þá vegur kynferði karla þyngra
en kynferði kvenna og ýmsar aðferðir eru notaðar til þess
að útdeila þeim meiru, m.a. vegna þess að þeir hafi fyrir
fjölskyldu að sjá. Gott dæmi um þetta er eftirfarandi saga
sem er dæmigerð fyrir þetta vandamál:
Ég komst að því fyrir tilviljun að maðurinn sem var að
vinna við hliðina á mér, sama starf, var með 30.000 krónum
hærri laun en ég. í fyrirtækinu var launaleynd og nokkrum
mánuðum áður en ég komst að þessu var kona rekin fyrir að
hafa talað um laun sín við samstarfsfólk sitt. Ég hafði ekki
kjark til þess að gera neitt við þessa uppgötvun mína en ég
vissi strax að þessi munur stafaði eingöngu af því að ég er
kona. Maðurinn eryngri en ég en með svipaða menntun og
sömu starfsreynslu. Hann var á svokölluðum föstum launum,
þ.e. launin hans hækkuðu hvorki né lækkuðu með tilliti tilyf-
irvinnu, en þegar ég samdi um mín laun vildiyfirmaður minn
ekki gera slíkan samning við mig vegna þess að ég „kæmi
betur út úr því" að vera á dagvinnutaxta og geta síðan bætt
við mig yfirvinnu. Þegar hann sagði þetta vissi hann fullvel að
ég er einstæð móðir og átti mjög erfitt með að vinna mikla yf-
irvinnu. Enda kom það á daginn. Samstarfsmaður minn
vann aldrei lengur en til klukkan fimm en til þess að kría út
einhverja hækkun á dagvinnutaxtanum þurfti ég að bæta á
mig vinnu með tilheyrandi vandræðum með gæslu fyrir barn-
ið mitt. Að lokum hætti ég því veseni og sætti mig við að hafa
bara dagvinnuna. Við fyrsta tækifæri hætti ég störfum á þess-
um vinnustað en þá hafði reiðin ólgað innan i mér um nokk-
arra mánaða skeið.
Óútskýrður launamunur a.m.k. 10 -15%
Það er sama hvar borið er niður, alls staðar kemur í Ijós að
karlar hafa hærri laun en konur. Launakannanir sýna 25 -
30% launamun og þegar hann hefur verið reiknaður niður
með skýringum um vinnutíma, menntun, starfsaldur
o.s.frv. stendur eftir kynbundinn launamunur upp á að
minnsta kosti 10 -15%, efitr því hvaða aðferðir eru notað-
ar til að skýra muninn. Og að sjálfsögðu eru þær aðferðir
ekki hafnar yfir gagnrýni.
Það gaf svolitla innsýn í það hvaða laun fólk er að fá
þegar félagsmálaráðuneytið sagði frá því nýlega að meðal-
greiðslur karlmanna í fæðingarorlofi væru um 100.000
krónum hærri en meðalgreiðslur til kvenna, eða 254.000
krónur á móti 152.000 krónum. Þar kom líka fram að ein af
hverjum hundrað konum fengju 500.000 krónur eða meira
á mánuði í fæðingarorlofi á meðan einn af hverjum ellefu
körlum fengu þá upphæð.
Hér fyrir neðan eru nýjustu tölur frá Kjararannsókn-
amefnd yfir heildartekjur vinnandi fólks á íslandi. Þar sést
hvað fólk fékk í laun á öðrum ársfjórðungi 2003 og hvaða
vinnutími liggur þar að baki. ^
Heildarlaun (HL) og heildarvinnutími (HVT)
fullvinnandi á 2. ársfjórðungi 2003
Meðaltal
Fjöldi HL HVT
Verkafólk Karlar 2.760 224.100 50,6
Konur 995 162.500 45,7
Iðnaðarmenn Karlar 1.543 286.800 46,5
Konur 43 234.600 42,9
Þjónustu, sölu- og Karlar 1.342 232.600 43,2
afgreiðslufólk Konur 1.246 177.300 43,5
Skrifstofufólk Karlar 341 255.500 42,7
Konur 922 197.300 40,9
Tæknarog Karlar 729 374.400 41,5
sérmenntað starfsfólk Konur 344 258.200 40,8
Sérfræðingar Karlar 423 407.300 40,6
Konur 134 341.100 39,9
Stjórnendur Karlar 453 445.800 39,9
Konur 113 328.800 42,0
Heimild: Kjararannsóknarnefnd ( www.krn.is )
vera / 4. tbl. / 2003 / 17