Vera - 01.08.2003, Síða 30

Vera - 01.08.2003, Síða 30
Ég menntaði mig ekki til aðvinna fyrir lúsarlaunum »Hallfríður Þórarinsdóttir er doktor í menningarmannfræði og flutti til íslands fyrir nokkrum árum eftir margra ára búsetu í New York borg. Hún hefur lengst af starfað sem kennari, bæði í háskólum og eins við endur- og símenntun fullorð- inna. Hún rekur fræðslusetrið UniCom sem sérhæfir sig meðal annars í nám- skeiðum sem lúta að samskiptum fólks úr ólíkum menningarheimum, hvort heldur um er að ræða fjölmenningarleg samskipti eða alþjóðleg viðskipti. Auk þess er hún sjálfstætt starfandi fræðimaður í ReykjavíkurAkademíunni. Bára Magnúsdóttir 'l' „Þegar ég var að hasla mér völl í námskeiðabransanum og þurfti í íyrsta sinn að verðleggja þjónustu mína ráðfærði ég mig við aðra sem eru í þessum námskeiðabransa og tók mið af þeirra töxtum. Ég miðaði auðvitað líka við menntun mína og reynslu. Þannig bjó ég mér til þann taxta sem ég fer eítir við námskeiða- hald. Ég varð að passa mig á að reikna mér laun sem dygðu mér til framfærslu eftir að hafa greitt skatta og skyldur, sem eru um 50 - 60% þess sem ég rukka. Svo þarf auðvit- að að reikna með rekstrarkostnaði. Fyrst starfaði ég sem verktaki en síðan stofnaði ég fyrirtæki eftir að umsvifin jukust, það kemur betur út. Að öðru leyti er lítill munur því þýðir ekkert að vera með einhverja tilfinningasemi þar, bisness er bis- ness. Ég skrifa reikningana og sendi þá jafnharðan. Það er aðalatriðið að það sé á hreinu hvaða upphæðir er um að ræða. Það er lykilatriði að vera búin að semja um allar upphæðir fyrirfram og halda sig við það.“ Ósiður að verðleggja sig of lágt „Ég hef, auk námskeiðanna, tekið að mér að flytja fyrirlestra fyrir stofn- anir og fyrirtæki um ýmis efni sem tengjast minni sérþekkingu. Það er harður bransi, fyrirlestrabransinn, og upphæðirnar sem fólk fær eru oft hlægilegar. Almennt má segja um fræðimenn að þeir verðleggja sig alltof lágt. Sumir eru á kaupi hjá KONUR ERU EKKI VANAR AÐ SPYRJA HVAÐ KOSTI AÐ SETJA í EINA ÞVOTTA- VÉL. HEFÐBUNDIN KVENNASTÖRF HAFA EKKI VERIÐ LAUNUÐ, KONUR ERU SVO OFTAR EN EKKI BARA ÞAKKLÁTAR ÞEGAR ÞÆR FÁ EITTHVAÐ FYRIR VINNU SÍNA. ÞETTA ENDURSPEGLAST í ALLRI LAUNASTEFNU. öll vinnan er á mínum eigin herð- um eftir sem áður. Ég hef reyndar alltaf látið endurskoðanda sjá um alla pappíra fyrir mig því hún hefur menntun á því sviði. Mér finnst ekki erfitt að senda reikninga, það er hluti af starfinu, opinberum stofnunum meðan þeir semja fyrirlestur sem þeir flytja úti í bæ, en við sem erum sjálfstætt starf- andi njótum ekki þessara forrétt- inda, við þurfum að lifa af þessurn laununt. Ég hika ekkert við að hafna til- boðum sem mér þykja of lág, það geri ég sjálfsvirðingarinnar vegna. Ég menntaði mig ekki til að vinna fyrir lúsarlaunum. Það hefur komið fyrir að mér hefur verið bent á að einhverjir aðrir taki minna en ég set upp, ég reyni að láta það ekki trufla mig og held mínu striki. Það er ósiður að verðleggja sig of lágt, und- ir kostnaðarverði. Það er það sem eyðileggur markaðinn. Sem dæmi get ég nefnt að eitt sinn var ég beðin um að semja og flytja fyrirlestur hjá stórri opinberri stofnun. Ég vissi að ég yrði marga daga að skrifa þennan fyrirlestur sem var á mínu sérsviði - það er rosaleg vinna að skrifa svona fyrir- lestur. Ég setti upp verð sem var lágt tímakaup ef eitthvað er, samt saup viðmælandi minn hjá stofnuninni hveljur og lét mig vita að ég væri að fara fram á meira en prófessor í Flá- skóla Islands. Ég benti honum á að ég sæti ekki á kaupi hjá Háskólan- um við að semja fyrirlestra fyrir aðrar opinberar stofnanir. Hann bauð mér greiðslu, sennilega það sama og prófessorarnir taka; ég af- þakkaði. Ég sagði honum að ég hefði ekki efni á að vinna fyrir svona Iaun, prófessorar með hálfa milljón á mánuði hafa kannski efni á að flytja ódýra fyrirlestra, þeir líta sjálfsagt bara á þessa smápeninga sem bónus, en ég þarf að framfleyta /4. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.