Vera - 01.08.2003, Síða 42

Vera - 01.08.2003, Síða 42
YS'<b'j pi! m U--' n j fmm ■ Amal flúði til íslands með fimm börn til að losna undan heimil- isofbeldi. heldur en að fara til bróður síns eða annarra ættingja, eins og tíðkast að konur geri eftir skilnað. Ef konan býr til að mynda inni á heimili bróður síns, þá þarf hún að beygja sig alfarið undir húsmóðurvald mágkonu sinnar og hlýða henni í einu og öllu. Margar múslimakonur samþykkja líka að mennirnir þeirra taki sér aðra konu, sem jafnvel flyst til þeirra, fremur en að fara réttlausar annað. Inni á heimilinu hafa þær þó réttindi húsmóðurinnar og þau réttindi þykja mikils virði. Ef maðurinn útvegar t.d. ekki fæði og klæði handa konu sinni og börnum á hún rétt á því að klaga hann fyrir fjölskyldu hans og getur treyst því að gengið verði í málið af fullri hörku. Á heimili annarra hefur konan engan slíkan rétt. Hún er gestur sem þiggur ölmusu allt sitt líf. „Þetta er mjög mikið vandamál,“ segir Amal. „Það er svo margt sem kyrrsetur konuna í hjónabandinu, alveg óháð því hvernig farið er með hana. Ekki er það síst réttindaleysi hennar gagnvart börnunum. Lagabókstafur trúarinnar gefur karlmönnum ákveðið vald sem þeir hafa alltaf nýtt sér til fullnustu. í gegnum tíðina hefur líka miklu meira verið gert úr þessu valdi en Kóraninn segir til um.“ Maður Amal vildi ekki gefa henni eftir skilnaðinn. Hann sagði einfaldlega það sem algengast er að karlar meðal Palestínuaraba segi við slíkar aðstæður: „Nú, viltu skilnað? Ég hef ekkert á móti því að skilja en þá skaltu kveðja börnin þín.“ Flóttinn frá Jerúsalem Árið 1995 keyrði ofbeldið um þverbak, og ekki í fyrsta skipti. Amal fór af heimilinu og dvaldi hjá systur sinni í nokkurn tíma en var bannað að hafa börnin sín, sem þá voru 16, 15, 10, 9 og 4. ára. Hún bað um leyfi til að fá þau í heimsókn einn sunnudag og hafði þá með sjálfri sér tekið endanlega ákvörðun. Hún ætlaði að fara. Hún ætlaði að fara svo langt i burtu að maðurinn hennar næði aldrei að berja hana framar og hún ætlaði að taka börnin með sér. „Foreldrar mínir voru bæði látin og ég átti enga bræður í Jerúsalem. Annar bróðir minn bjó í Svíþjóð en hinn hafði búið hér á íslandi síðan 1971 og ég vissi að hjá honum fengi ég það skjól sem ég þurfti á að halda. Dagana á undan hafði ég talað við hann og undirbúið mig vandlega, keypt farmiðana fyrir okkur og pakkað nauðsynlegum flíkum. Þegar ég fékk börnin til mín tók ég stefnuna út á flugvöll. Vegna þess að ég bjó í Jerúsalem gat ég komist burt. Þar eru ísraelsk lög sem segja að konur séu frjálsar og þær eigi rétt á því að ferðast án uppáskriftar karlmanns. Samt átti ég á hættu að maðurinn minn kæmist á snoðir um áætlanir mínar og ég vissi að ég fengi aldrei framar að vera ein með börnunum mínum ef það gerðist.“ Amal heldur fyrir andlitið þegar hún segir frá flóttanum frá Jerúsalem. „Ég get aldrei lýst líðan minni þennan dag,“ segir hún og hryllir sig. „Ég var ekki bara hrædd, ég var skelfmgu lostin. En mér tókst að komast í flugvélina með börnin og maðurinn minn vissi ekkert um fyrirætlanir mínar fyrr en ég hringdi í hann frá Islandi og sagði honum að ég kæmi aldrei til baka. Ég hef ekki séð hann síðan.“ Amal vill að það komi skýrt fram að hún sé ekki vanþakklát eða duttlungafull kona sem hafí skyndilega ákveðið að ræna börnunum sínum þegar ekki gekk allt eins og hún vildi í hjónabandinu. „Ég hafði verið að reyna að fá skilnað síðan 1982, en þá yfirgaf ég manninn minn og kom hingað til Islands. Þá hafði ég bara átt tvær elstu dæturnar, sem urðu að sjálfsögðu eftir hjá pabba sínum. Ég kom hingað með það fyrir augum að hefja nýtt líf, eins og í síðara skiptið, en ég uppgötvaði að ég gat ekki lifað án dætra minna og fór heim aftur eftir þrjá mánuði.“ Þegar Amal sneri aftur til Jerúsalem eftir þessa þriggja mánaða dvöl á Islandi 1982 hafði ekkert breyst til batnaðar. Samt sem áður eignaðist hún þrjú börn til viðbótar með manni sínum á þeim árum sem í hönd fóru. Þegar ég rek upp stór augu hlær hún auðvitað og segir til útskýringa: „Áður hafði ég bara eignast tvær stelpur. Og stelpur eru ekki börn. Kona er ekki góð kona fyrr en hún hefur alið manni sínum að minnsta kosti einn strák til þess að halda íjölskyldunafninu gangandi og hún fær engan frið fyrr.“ Fyrrverandi maður Amal er giftur aftur og á tvö börn með seinni konu sinni. Amal leggur áherslu á að hún sé ekki andsnúin honum sem manneskju. „Ef hann hefði ekki verið maðurinn minn hefði ég viljað vera vinkona hans, vegna þess að hann er góður maður og mjög gáfaður og skemmtilegur. En af því að ég var konan hans gat hann ekki tekið mér sem jafningja og ákvað þess í stað að halda mér niðri með góðu eða illu. Ég hef ekkert talað við hann síðan ég fór, en fyrst 42/4. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.