Vera - 01.04.2005, Blaðsíða 8
stelpur rokka
en nú var krafturinn enn meiri. Katla
spilar á gítar og syngur, Helga sér um
trommuslátt og Gunna úr Mammút spil-
ar á bassa með þeim núna og gefur þeim
mikla orku. Hún er 16 ára og einn flott-
asti bassaleikari landsins. Lög stelpn-
anna eru viðurstyggilega hrá, attitjúd
þeirra agressívt þannig að maður stendur
bara við sviðið og hristir sig i takt með
glott á svip og segir greddulega: „3á!
Kata, söngkonan úr Mammút, stökk
upp á svið og rappaði / gargaði í
einu laganna og var það frábært að
sjá og heyra.
Donna Mess voru næstar og tóku
salinn með trompi. Engir á íslandi eru
að gera svona tónlist og flutning. Donna
Mess eru Iðunn, Sara og Björg og gerir sú
síðastnefnda tónlistina á tölvu heima hjá
sér. Minnir afraksturinn helst á afurðir
sænsku systkinanna í The Knife og kven-
skörungsins Peaches. Tónlistin er flutt
af tölvu og svo syngja og skrikja stelp-
urnar i gegnum ýmsa effekta og dansa
við undir strobe-ljósi í reykjarmekki.
Salurinn trylltist af hrifningu, enda var
þetta stórkostlegt að sjá og heyra.
Næst á svið var Brite Light, sem eru
Kolbrún á bassa, Unnur á trommur, Árni
á orgel og Tinna á raddböndum. Tónlist
þeirra er í rólegri kantinum, orgelið i
fyrirrúmi, bassalínurnar mjög smartar
og trommurnar tilraunakenndar á lágum
nótum. Yfir þvi svífur letileg og lokkandi
söngrödd Tinnu svo útkoman var bæði
töfrandi, töff og heillandi.
Þá tók Mammút við en þau telja
Kötu söngkonu, Gunnu bassaleikara,
Alexöndru gítarieikara, Andra trommu-
leikara og Arnar gítarleikara. Þau byrj-
uðu á „gömlu" lögunum sinum en fluttu
svo nýtt efni sem lofar mjög góðu. Þessi
hljómsveit er ein okkar yngsta og efnileg-
asta en Kata söngkona varð 16 ára þetta
kvöld. Krafturinn var mikill i þeim
og áhorfendur voru mjög þakklátir.
Þó að Brúðarbandið sé bara rúmlega
ársgamalt voru þær elsta hljómsveit
kvöldsins. Hljómsveitin lokaði kveldinu
með tryllingi og spilagleði enda í skýj-
unum yfir vel heppnuðum tónleikum. Og
það voru áhorfendur líka.
í september 2004 og er því aðeins sjö mánaða
Hljómsveitina skipa þær Arndís Hreiðarsdóttir og Guðrún Lára Alfredsdóttir, eða
Nana eins og þær kjósa að kalla sig. Hljómsveitin er enn á mótunarstigi en eins
á tónList í rólegri kantinum hug þeirra beggja. Stelpurnar skipta hljóðfæraleik syst-
urlega á milli sín en þær spila meðal annars á trommur, hljómborð, gítar, bassa og all-
skyns sLagverkshljóðfæri. Við tónleikahald eru síðan fengnir sessionleikarar til aðstoðar
við flutninginn. Á tónleikunum í Klink og Bank nutu þær einmitt aðstoðar Siggu og Kötu
úr Brúðarbandinu. Sveitin skelLti sér í stúdíó fyrir jólin og tók upp sex Laga smáskífu með
aðstoð RagnhiLdar ísLeifsdóttur. Smáskífan rataði siðan í jóLapakka vina og vandamanna en
hægt er að náLgast hana hjá steLpunum. Á næstunni er pLanið aó semja fleiri lög og spiLa á
fleiri tónLeikum. í framtíðinni er aLdrei að vita nema út komi pLata og heimsfrægðin berji á
dyr. AðaL mottó þeirra Lazy Housewifes stelpna er að njóta þess að skapa og fLytja tónList.
Við erum Við^aygg™0g Viðurstyggð er fögur. Viðurstyggð var stofnuð sökum leiðinda
og biturLeikawggja ungmeyja sem ákváðu að snúa Lífi sínu til betri vegar með ástundun
heiLbrigðs rokkLífernis. Viðurstyggð fæddist í júlí 2004 en fyrst um sinn samanstóð hún af
þeim KötLu, sem sLítur gítarstrengi og breimar í mikrófón, og HeLgu sem ber bumbur. Um
haustið bættist bassafanturinn Gunna við og fuLLkomnaði Viðurstyggðina. Þess má geta aó
hún spiLar einnig með hLjómsveitinni Mammút. Viðurstyggð birtist áhorfendum sem bitur
kvennapönkhLjómsveit. StúLkurnar hafa unun af því aó bregóa á leik með ýmiskonar gjörn-
ingum, áhorfendum sínum til gleði eður hreLlingar. Viðurstyggð er lífsstíll sem snýst hLjóm-
sveitarinnar sem hefur viðurstyggilega merkingu. Þó hLjómar það svo undurfagurLega og
gæti jafnveL verið nafn LitiLlar, styggrar hindar í skógi.