Vera - 01.04.2005, Blaðsíða 15
» „Kvenmannslaus í kulda og trekki kúrir saga vor, konurnar voru þar alla vega
ekki, þótt ekki dæju þær allar úr hor..." Þannig hljómar byrjun eins söngtextans á
plötunni Áfram stelpur! sem kom út í kjölfar Kvennafrídagsins árið 1975 og naut mikilla
vinsælda meðal kvenna sem voru að vakna til vitundar um stöðu sína. Húmorinn í
textunum á þessari plötu varð mikið hreyfiafl í baráttunni og samskonar húmor einkenndi
margt af því sem fram kom á þessum árum og framkallaði aukna meðvitund kvenna um
stöðu sína og vakti baráttugleði. Það er nefnilega mikill galdur hvernig það að snúa út úr
og gera grín að veruleikanum getur eflt minnihlutahópa til samstöðu.
í þema þessa blaðs verður fjallað um notkun húmors á þennan hátt. Hugrún R.
Hjaltadóttir, sem skrifaði MA ritgerð um bókina Bridget Jones, skýrir hvernig
ástarsöguformið er þar nýtt til að vekja femínískar tilfinningar hjá lesendum. Við
segjum frá fegurðarsamkeppni HIV smitaðra kvenna í Afríku sem er full af húmor
og Kristín Eysteinsdóttir dramatúrg veltir fyrir sér hvað geri kvennaleikhús að
femínísku leikhúsi en eitt megin einkenni femínísks leikhúss er einmitt notkun
þess á húmor.
„Ég lauk stúdentsprófi létt, lét mig varða
jafnan rétt, í háskólanum las ég lög, við
lógikina hvergi rög, en svo er ég kynntist
Gumma, þá gall við þessi lumma: í eðli
þínu ertu bara reglulega kvenleg, Signý.“
Þetta er annað dæmi um texta af
Áfram stelpur. Að segja á þennan hátt
frá örlögum lcvenna sem þurftu að hætta
námi þegar þær giftust hafði miklu meiri
áhrif á kynslóðina sem á hlustaði heldur
cn pólitískar ræður. Listin býr yfir þeim
mætti að segja á einfaldan hátt frá ein-
liverju sem allir skilja, án nákvæmra út-
skýringa. Á blómaskeiði annarrar bylgju
femínismans var húmorinn óspart not-
aður á þann hátt í bókmenntum, leik-
list, tónlist og myndlist
Vekjandi hlátur
Mörg dæmi mætti nefna frá þessum
tíma um beinskeyttan húmor sem birt-
ist í listum og var samofinn kvennabar-
áttunni án þess að tengslin væru bein.
Eitt dæmi er leikritið Ertu nú ánægð,
kerling? en margir söngtextar þess
eru á fyrrgreindri plötu, Áfrarn stelp-
ur. Fleiri leikrit fylgdu í kjölfarið, t.d.
Saumastofan. Kvennahljómsveitirnar
Grýlurnar og Dúkkulísurnar notuðu
þennan húmor óspart þegar þær spurðu
hvað væri svona merkilegt við það að
vera karlmaður eða að þær vildu vera
Pamella í Dallas. Mikið var gefið út
af þýddum kvennabókmenntum sem
höfðu slegið í gegn í öðrum löndum og
vakið konur, t.d. Kvennaklósettið eftir
Marilyn French sem er uppfull af vekj-
andi húmor. Af svipuðu tagi er bókin
Hvunndagshetjan - þrjár öruggar að-
ferðir til að eignast óskilgetin börn, eftir
Auði Haralds. Bókin kom út árið 1979
og var endurútgefin árið 2000. I eftir-
mála þeirrar útgáfu segir höfundur að
bókin hafi átt að vera barn síns tíma en
ákvörðun um endurútgáfu hafi verið
tekin vegna þess: „að þó að breyting-
ar hafi orðið þá hafa ekki orðið nægar
breytingar. Það hryggir mig, að það er
hægt að endurútgefa hana.“
Þessi orð Auðar vísa til þess að til-
gangur bókarinnar hafi verið að koma
af stað breytingum. Bókin er þekkl fyrir
mikinn húmor en með því að draga upp
kómískar myndir af ríkjandi ástandi er
von til að það breytist. Það gerist vænt-
anlega með því að konur og karlar sem
sjá líf sitt í þessu Ijósi vakni upp og geri
eitthvað í málinu.
Pfkusögur
Nýjasta dæmi um notkun þessarar að-
ferðar er leikritið Píkusögur. Að fjalla
um viðkvæm mál eins og kynferðislega
misnotkun og nauðganir á þann hátt
sem gert er í Píkusögum er hin sanna
list, en í leikritinu fá áhorfendur að
hlæja innilega að sammannlegum til-
finningum kvenna en finna um leið til
djúprar samúðar með konum sem þurfa
að líða fyrir kynferði sitt. Sjónvarpið
sýndi nýlega heimildarmynd unt leik-
ritið og höfund þess, Eve Ensler, sem
stofnaði V-dagssamtökin í framhaldi
af velgengni verksins. Það var stórkost-
legt að sjá hvernig sýning á leikritinu gat
vakið umræður og fengið konur af ólík-
um menningaruppruna til að horfast
í augu við líf sitt. Má þar nefna gamlar
konur á Filippseyjum sem höfðu verið
leikföng hermanna í síðari heimsstyrj-
öld, þá börn að aldri; stúlkur í Afríku
sem vilja ekki láta umskera sig; samfélag
indíána í N-Ameríku þar sem karlmenn
vöknuðu til vitundar um að það væri
ekki eðlilegt að þeir beittu konur sínar
ofbeldi, auk kvenna um allan hinn vest-
ræna heim.
vera / 2. tbl. / 2005 / 15