Vera - 01.04.2005, Page 17
konur og húmor /
Með því að snúa svona út úr megrunarferlinu og gera
það hlægilegt verður það um leið hallærislegt og þess
vegna ekki til eftirbreytni fyrir lesandann.
einhleypu fólki að vera einhleypt í friði.
Annað dæmi um óvenjulega atburða-
rás í ástarsögu eru lýsingar Bridgetar á
„fegrunaraðgerðum" sínum. Hún vill
vera fyrirmyndarkona - grönn, vel
snyrt, gengur vel á vinnumarkaði og á
kærasta (ef ekki eiginmann). Við höfum
ekki hugmynd um hvernig hún lítur út
því henni hefur ekki verið lýst. Það eina
sem við vitum er hvað hún er þung en
hún fylgist grannt með þróun mála
þar. Við vitum hins vegar að hún hefur
mikið fyrir því að temja útlit sitt til þess
að lýkjast betur fyrirmyndarkonunni:
„MIÐNÆTTI. Úff. Aiveg útkeyrð. Það er
varla heilbrigt að æfa sig fyrir stefnumót
eins og ráðningarviðtal? ... Síðan ég fór
úr vinnunni er ég næstum búin að kafna
og fara í bakinu í eróbikktíma; auk þess er
ég búin að skrapa beran skrokkinn á mér i
sjö minútur með hörðum bursta, taka tiL í
íbúðinni, fylla isskápinn, plokka á mér auga-
brýrnar, fletta blöóunum og bókinni Hið
fullkomna kynlif, setja i þvottavél og vaxa
^ lappirnar á mér sjáLf þvi það var of seint að
panta tima. Lá fyrir rest á fjórum fótum á
handkLæði að baksa við að rífa koifastan
vaxbút aftan af káLfanum á mér um Leið og
ég horfði á Kastljós til þess að geta snarað
fram áhugaverðum skoðunum á einhverju.
Mér er illt í bakinu, er með dúndrandi haus-
verk, lappirnar á mér eru eldrauðar, útatað-
ar í vaxklessum.
Viturt fólk myndi segja að DaníeL ætti
að elska mig eins og ég er, en ég er barn
Cosmopolitan menningarinnar, sködduð af
glæsifyrirsætum og alltof mörgum persónu-
leikaprófum og veit þess vegna að hvorki
persónuleiki minn né líkami stenst nokkuð
af þessu ef ekkert er að gert. Ég þoLi ekki
þetta álag. Ég ætla að aflýsa stefnumótinu
og éta kleinuhringi í kvöLd í gamaLLi peysu
með eggjablettum."
Þessar fegrunaraðgerðir koma sí-
endurtekið fyrir í bókinni og varpa ljósi
á allan þann pening og tíma sem við
konur eyðum í að verða konur. Aftur er
♦ hið eðlilega dregið í efa með útúrsnún-
ingi á hinu hefðbundna. Bridget þekk-
ir hina hefðbundnu kvenímynd og vill
uppfylla hana. Hún leggur sig alla fram
og í gegnum lýsinguna erum við minnt-
ar á að kvenleikinn er ekki náttúrulegt
og áreynslulaust fyrirbæri heldur eitt-
hvað sent kostar blóð, svita og tár.
Allar konur eiga að vera í
megrun
Megrunarárátta Bridegtar er eitthvað
sem fór voðalega í taugarnar á mér
þegar ég las bólcina fyrst. Hún byrj-
ar hverja færslu á að skrá þyngd sína
og hitaeiningar sem hún hefur innbyrt
yfir daginn ásamt tilfallandi hlutum,
svo sem sígarettum, áfengum drykkjum
og öðrum óþverra. En þó að hún fylg-
ist svo vel með þyngd sinni þá er þessi
megrunarárátta rneira til komin vegna
þess að allar konur eiga að vera í megr-
un, frekar en að hún sé í raunverulegri
megrun. Hún lýgur að vini sínum um
hversu margar hitaeiningar hún borðar
á dag, hún kann svo marga mismun-
andi megrunarmatseðla að hún getur
alltaf komið því sem hana langar í inn
í megrunina og finnst ekkert að því að
víkja frá henni ef hana langar í súkku-
laðiköku í morgunmat. Hún talar mikið
um að fara að kaupa sér kort í ræktinni
en virðist aldrei komast alla leið þangað.
Þrátt fyrir þessa furðulegu rnegrun nær
hún loks kjörþyngd sinni. En það er ekki
eins fínt og hún ímyndaði sér. Þegar hún
mætir mjó og fín í svörtum, þröngum
kjól tekur enginn eftir því hvað hún er
mjó og falleg heldur halda allir að hún
sé fárveik. Bridegt áttar sig þá á því að
þyngd og fegruð eru ekki endilega sam-
hangandi og er alveg niður sín:
Nú er ég algjörlega tóm og rugiuð
- eins og mottu hafi verið kippt undan
fótum minum. Átján ár sem hafa snúist
um hitaeiningar og stærðfræðiútreikninga
byggða á fitu og brennslu. í átján ár hef
ég keypt síðar blússur og víðar peysur og
bakkað úr augsýn bólfélaga til þess að fela
feitan rassinn á mér. MilLjónir af ostakök-
um og tíramisú tertusneiðum, billjónir af
Emmenthaler ostsneiðum skildar eftir óétn-
ar. Átján ára barátta, fórnir og viðleitni
- allt til einskis? Átján ár og árangurinn er
„dauf og guggin". Mér Liður eins og vísinda-
manni sem kemst að raun um að Lífsstarf
hans var byggt á alvarLegum mistökum frá
upphafi." (BIs. 91).
Framvindu megrunar hennar er ekki
hægt að sjá öðruvísi en sem kaldhæðna
þróun. Bridget er búin að vera svo lengi
að ná takmarki sínu og svo loks þegar
það næst kemsl hún að raun um að það
var ekkert svo eftirsóknarvert eftir allt
saman. Eftir að hún gerir sér grein fyrirþví
hættir hún samt ekki að fylgjast með þyngd
sinni eða velta fyrir sér hversu margar hita-
einingar eru í matnum sem hún borðar.
Með því að snúa svona út úr megrunar-
ferlinu og gera það hlægilegt verður það
um leið hallærislegt og þess vegna ekki til
eftirbreytni fyrir lesandann.
Að brjóta niður gildandi norm
En bókin er fyrst og fremst ástarsaga og
viðheldur þannig hinum hefðbundnu
normum samfélagsins, sérstaklega hvað
varðar hina gagnkynhneigðu ást. Mér
finnst hins vegar að normin séu staðfest
ögn breytt. Höfundurinn gagnrýnir
hefðbundnar hugmyndir um skyld-
una að vera í ástarsambandi, fegurð-
arímyndina og megrunarskylduna sem
fylgir henni. Hún nær að notfæra sér
veikleika hefðbundinna norma og snúa
út úr þeim með kaldhæðni sem fær les-
andann til að hlæja og gera þau þannig
óaðlaðandi. Hér er ekki boðið upp á nýja
aðferð til að öðlast kvenleika eða komið
með einhverja lausn en sagan brýtur
niður gildandi norm og gefur okkur von
um eitthvað annað og öðruvísi.
Sagan af Bridget er ekki ástarsaga
fyrir femínista heldur femínismi mat-
reiddur ofan í ástarsögulesendur. Ég
held að það sé aðal ástæðan fyrir því að
margir femínistar sjá ekki femínisman
í sögunni. En það sem ég tel að skipti
meira máli er að hér fá konur sem annars
hafa ekki áhuga á femínisma hann beint
í æð á heimavelli. Þær átta sig kannski
ekki á því að þetta sé femínimsi en þær
hlæja að útúrsnúningunum og ég vona
að hláturinn nái undir yfirborðið, alla-
vega í smá stund, og skilji eitthvað eftir
sig. Útúrsnúningur í bók eins og þessari
gefur önnur tækifæri til breytinga en
pólitísk barátta á opinberum vettvangi
en ég tel þessi atriði jafn mikilvæg til
að ná frarn þeim breytingum sem ég læt
mig dreyrna urn.
I lokin vil ég taka fram að lítið af þessari
gagnrýni sem hér er fjallað um rataði inn í
bíómyndina um Bridegt Jones en myndin
er þrátt fyrir það skemmtileg afþreying.
Greinin byggir á magisterritgerð
Hugrúnar við Háskólann í Lundi. Hún
heitir Bridget Jones’s Diary and the
subversion of the romance og er að-
gengileg á slóðinni http://theses.lub.
lu.se/undergrad/
vera / 2. tbl. / 2005 / 17