Vera - 01.04.2005, Side 34

Vera - 01.04.2005, Side 34
Í'G X. HiC.k'.k'l. II) ITIt 1.11) StMlMSMýT EN FEMÍMINSMI GAT SVARAÐ ÞEIM spurningum sem ég var að leita að SVÖrunum UÍð.Femínisminn svaraði jafn- vel spurningum sem ég vissi ekki að ég hefði róttækni í háskólasamfélaginu var of- urlítið mismunandi á fslandi og í Bandaríkjunum. Á meðan sósíalísk- ir fræðimenn voru fræðilega, róttæka aflið á íslandi var það kvennafræðin í bandarískum háskólum. Hún reyndist einmitt vera það róttæka greiningar- tæki sem Ingólfur hafði verið að leita að. „Ég var ekki að leita að femínisma en femíminsmi gat svarað þeim spurn- ingum sem ég var að leita að svörunum við. Femínisminn svaraði jafnvel spurn- ingum sem ég vissi ekki að ég hefði.“ Tilurð bókarinnar Ingólfur hefur skrifað heilmikið af greinum um þau málefni sem hafa legið honum á hjarta en bókarútgáfa er nýtt skref hjá honum. Bókin átti sér lang- an aðdraganda en kveikjan varð þegar Ingólfur sá að þær fræðilegu greinar sem hann hafði lesið um kynin í skóla- umhverfinu voru í ósamræmi við þær hugmyndir sem virtust vera almennt viðteknar á Islandi um að það hallaði á drengi í skóla vegna skaðlegra áhrifa kvennamenningar. Umræðan sem hefur sprottið upp í kringum þessar hug- myndir hefur oft snúist um það hvernig kennslukonur hafi brugðist menntun- arþörfum ungra drengja. Ingólfur segir: „Ég hafði lesið það mikið af femínískum fræðum að ég vissi að þessar hugmyndir gátu ekki staðist. Sumar af þessum hugmyndum voru farnar að fara verulega í taugarn- ar á mér, eins og þessi að treysta ekki kennslukonunr. Mér fannst í rauninni verið að gera lítið úr þessari einu auð- lind sem þeir hafa í skólastarfinu, það er kennurunum, eða í þessu tilviki kennslukonunum sem eru þarna mik- ill meirihluti. Ég lagði ekki af stað með þá hugmynd að skrifa bók heldur fór ég af stað með það í huga að taka nokkur viðtöl við kennslukonur um upplifun þeirra af starfinu." Þegar sú rannsókn var hálfnuð sá Ingólfur að efnið sem hann hafði í höndunum væri eitthvað sem ætti erindi til fólks. Eftir dúk og disk, þar sem hálfur tíminn fór í að mana sig upp í að skrifa bókina, kom afraksturinn í ljós og áhuginn hefur ekki látið á sér standa. Ingólfur lítur einnig greinandi augum á þennan áhuga sem rannsókn- in hans hefur fengið. „Ég hef aldrei fengið jafn mikla athygli fyrir nokkuð annað sem ég hef gert. Ég held nú að það hafi átt einhvern þátt í því að þetta 34 / 2. tbl. / 2005 / vera

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.