Vera - 01.04.2005, Qupperneq 53
alþingisvaktin /
Svar við sívaxandi
útgjöldum til
heilbrigðismála
Sú aðferðafræði sem lögð
er til i þingsályktunar-
tiltögunni er nýstárleg
og allar athygli verð.
Segja má að hún
marki tímamót i
umræðunni um
heilbrigðiskerf-
ið á ísLandi
enda sannar-
lega tími tiL
kominn. í
greinargerð
með tiLLög-
unni segir að
á timum sí-
hækkandi út-
gjalda tiL heiL-
EranniRHI brigðismála
þar sem Lyfja-
notkun eykst
stöð-
Leita þarf leiða
til að breyta þeirri
hugsun að eina lækningin
við kvillum sé lyf eða
læknisaögerð því að
sjúklingar geta oft breytt
heilsufari sínu sjálfir með
breyttu líferni, mataræði
og hreyfingu
ugt og aðgerðum á sjúkrahúsum fjölgar ár
frá ári, hafi vægi hreyfingar verið aukið
í meðferð sjúklinga með góðum árangri,
m.a. í nágrannaLöndum okkar. í stað þess
að Læknir skrifi LyfseðiL eða sendi sjúkLing í
aðgerð á sjúkrahúsi skrifar hann upp á ráð-
gjafar- og hreyfingaáætLun þar sem sjúk-
Lingurinn getur sjáLfur tekist á við heiLsu-
Leysið með eigin atorku.
í greinargerðinni segir einnig að IsLand
sé engin undantekning hvað varðar stöð-
ugt vaxandi útgjöLd tiL heiLbrigðismáLa. Ný,
dýrari og fuLLkomnari Lyf koma á markaðinn
og krefjast þess að vera notuð og Launa-
kostnaður heiLbrigóisstofnana veróur si-
feLLt meiri. Eftir því sem tækninni fleygir
fram verða aðgerðir sífelLt dýrari og heiL-
brigðisstofnunum reynist erfitt að haLda
sig innan fjárLaga. Leita þarf leiða til að
breyta þeirri hugsun að eina lækningin
við kviLLum sé Lyf eóa læknisaðgerð því að
sjúkLingar geta oft breytt heiLsufari sínu
sjáLfir með breyttu Líferni, mataræði og
hreyfingu. Ýmsir menningarsjúkdómar sem
orsakast af óheiLbrigðu líferni kosta sam-
féLagið sífeLLt hærri fjárhæðir og það
er ekki aðeins vandamáL einstakLinga
heLdur samféLagsins aLls. Samkvæmt
upplýsingum frá ALþjóðaheiLbrigðis-
málastofnuninni er rúmlega 1 miLl-
jarður manna of þungur, þar af
300 miLljónir sem þjást af offitu.
Stofnunin teLur offitu vera annað
stærsta heiLbrigðisvandamáLið, næst
á eftir reykingum. Hér á Landi hefur
offita meðaL fuLLoróinna tvöfaldast á
20 árum og er komin yfir 20% og hjá 9
ára börnum fjórfaLdaðist hún á timabiLinu
1978-2002. Ofþyngd hefur Lika aukist, 65%
fuLLorðinna hér á Landi eru yfir æskilegri
þyngd og fyLgir því fjöldi sjúkdóma.
Hreyfing - raunhæfur valkostur
Ásta Ragnheiður segir m.a. í grein á
heimasíðu sinni (www.althingi.is/arj):
.,Rannsóknir sýna að ávisun á hreyfingu
er raunhæfur vaLkostur en auðvitað
þarf að meta hvert tilfelLi fyrir sig.
í erindi sem Ingibjörg ðónsdóttir
Lífeðlisfræðingur héLt á ráðstefnu
HugarafLs í mars sl. kom fram að
rannsóknir benda tiL þess að hreyfing
hafi sömu áhrif á boðefni Likamans
og ýmis lyf, svo sem geðLyf. Einnig má
benda á bandaríska rannsókn þar sem
eLdra fóLki með stoðkerfisvandamál var
boðið upp á vatnsLeikfimi i stað liðskipta-
aðgerðar sem sýndi að heLmingur þeirra
sem vöLdu þá Leið fengu bót meina sinna
og þurftu ekki aó fara í skurðaðgerð. Það er
jákvætt fyrir viðkomandi sjúkling þar sem
skurðaðgerðir hafa aLLtaf einhverja hættu í
för með sér, auk þess sem það sparar sam-
félaginu mikLa fjármuni þegar unnt er að
ná heiLsu á þennan hátt. í Leiðbeininga-
bók sem nefnd um aukna uppLýsingagjöf
um heiLbrigðismáL gaf út i Danmörku kemur
fram aó þessi Leið gagnast veL sem meðferð
við æða-, stoðkerfis-, efnaskipta-, Lungna-
og geðsjúkdómum. Rannsóknir sýna því að
þetta er raunhæfur valkostur þó hann eigi
ekki við í öLLum tiLfelLum."
Mikil viðbrögð
Við heyrðum í Ástu þar sem hún var stödd á
fundi i EistLandi á vegum NorðurLandaráðs
og spurðum hana um viðbrögðin sem málið
hefði fengið: „Ég hef fengið mjög sterk
viðbrögð við þessu máLi og það er greini-
Lega hLjómgrunnur fyrir því að bjóða upp á
þennan vaLkost. TöLvupósti hefur rignt inn
frá fólki
í erindi sem
Ingibjörg Jónsdóttir
lífeðlisfræðingur hélt á
ráðstefnu Hugarafls í mars
sl. kom fram að rannsóknir
benda til þess að hreyfing
hafi sömu áhrif á boðefni
líkamans og ýmis lyf,
svo sem geðlyf
ölLum
áttum, jafnt
heilbrigðisstarfsmönnum, íþrótta- og Lík-
amsræktarfóLki og aLmenningi sem fagnar
þessu frumkvæði mínu á ALþingi. NýLega var
máLefnið tekið fyrir sem lokaverkefni við
Háskóla ísLands, og ráðstefnur hafa verið
haLdnar nýverið um hreyfingu sem valkost
í heilbrigðisþjónustu. Þannig að umræðan
er á fLeygiferð. Ég mun síðan fyLgja máLinu
eftir í haust þegar þing kemur saman og
vonast þá tiL að það fáist rætt í þinginu og
jafnveL samþykkt, en það hefur ekki komist
á dagskrá þingsins í vetur þó það hafi svo
sannarlega verió á dagskrá úti i samféLag-
inu," sagði Ásta.
Skemmtilegt og hvetjandi
Að Lokum má benda á að hreyfing sem vaL-
kostur í heiLbrigðisþjónustu hlýtur einnig
að vera mikLu skemmtiLegri, hoLlari og rík-
ari fyrir andann en nokkur Lyf eóa skurð-
aðgerðir. Við hvetjum því Ástu og félaga
hennar sem standa að tiLLögunni tiL að
nýta þann meðbyr sem máLið virðist hafa
i samfélaginu - og um Leið þá þreytu sem
farin er að gera vart við sig í umræðunni
um heiLbrigðiskerfið okkar sem sumir hafa
jafnveL gengið svo Langt að kaLLa „sjúk-
dómakerfi".
vera / 2. tbl. / 2005 / 53