Ljósmæðrablaðið - 15.06.2007, Qupperneq 49
l°k>u<m fyrirlestri voru ýmsir til að heiðra Ólöfu Ástu. Á myndinni má sjá Guðlaugu
>»arsdóttur formann LMFÍ, Margréti Hallgrímsson sviðsstjóra Kvennasviðs LSH og
einunni Blöndal Ijósmáður þar sem þœrfluttu ávörp ogfœrðu gjafir í tilefni þessa merka
aJanga.
Lesley Page, annar leiðbeinenda við
doktorsverkefnið og Olöf Asta.
Chris McCouri professor, Faculty of
ea|th and Human Sciences, Thames
alley University. Fulltrúi í doktors-
nd frá fslandi var dr. Sigríður Dúna
■stmundsdóttir, prófessor í mann-
fræði, Félagsvísindadeild, Háskóla
Islands.
Að loknum fyrirlestri, bauð Ólöf
Ásta til veislu, þar sem fjöldi manns var
saman kominn til að samfagna henni
með þennan merka áfanga, sem mark-
ar spor í sögu ljósmæðrastéttarinnar á
íslandi. Þar var glatt á hjalla, eins og
við var að búast, með söng, dansi og
ljúffengum veitingum.
Fyrsti íslenski formaður
Norðurlandasamtaka Ijósmæðra (NJF)
Á stjórnarfundi Norðurlandasamtaka ljósmæðra (Nordisk Jordmor Forbund NJF)
sem haldinn var í Turku í Finnlandi 2.-3. maí, var Hildur Kristjánsdóttir ljós-
móðir kjörin formaður Norðurlandasamtakanna. Það er í fyrsta sinn í 57 ára sögu
samtakanna sem íslendingur verinir það sæti. Hildur hefur verið fulltrúi íslands
í stjórn NJF síðan 1986. Norðurlandasamtök Ijósmæðra voru stofnuð árið 1950 í
þeim tilgangi að efla samvinnu Ijósmæðra á Norðurlöndum. Þau ljósmæðrafélög
sem aðild hafa að NJF eru það íslenska, danska, norska, sænska, finnska og hið
nýstofnaða færeyska. Árlega er haldinn stjómarfundur þar sem hvert landanna á
tvo fulltrúa. Á þriggja ára fresti er haldin ráðstefna og hefur hún þrisvar sinnum
verið haldin á íslandi, 1965, 1983 og 2004. Á Norðurlöndum eru um 15 þúsund
starfandi ljósmæður, þar af um 220 á Islandi.
Ljósmæðrafélag íslands óskar Hildi innilega til hamingju með formannsstöð-
una.
Ljósmæðrablaðið júní 2007 49