Akranes - 01.07.1958, Page 7
Frá aSalstöSvum SameinuSu þjóSanna í New Xork.
fyrir því, hvað hægt var að gera, þegar
meirihluti meðlimanna í Sameinuðu þjóð-
unum stóð saman, óheftur af neitunar-
valdinu.
Þvi var það, að Dean Acheson utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna lagði fyrir
Allsherjarþingið 20. september 1950 til-
lögu til ályktunar, sem miðaði að þvi að
rjúfa „sjálfhelduna“, sem neitunarvaldið
liafði komið öiyggisráðinu í. Ályktunin
hefur verið nefnd „Uniting for Peace“.
Acheson benti á, að 24. grein stofnskrár-
innar kvæði á um það, að öryggisráðið
bæri „aðalábyrgð á varðveizlu heimsfriðar
og öryggis“. „En ef öryggisráðið getui'
ekki hafzt að vegna hindrunaraðgerða
einhvers fastafulltrúans", sagði hann, „þá
gerir stofnskráin enganveginn ráð fyrir
þvi, að Sameinuðu þjóðimar séu mátt-
lausar. Sú skylda allra meðlimanna að
gera ráðstafanir til að varðveita friðinn
eða koma á friði að nýju er ekki úr
sögunni þótt neitunarvaldinu sé beitt. I
10., 11. og 14. grein stofnskrárinnar er
Allsherjarþinginu líka falið vald og á-
hyrgð í málum sem snerta alþjóðafrið.
Allsherjarþingið getur og verður að að
skipa málum sinmn þannig, að það geti
AKRANES
143