Akranes - 01.07.1958, Blaðsíða 10
______Aldarmlffning_______________
11. sept. s.l. voru liðin 100 ár frá fæðingu séra Jóns Sveins-
sonar, prófasts. Sunnudaginn næstan á undan var hans minnzt
í Akraneskirkju. Séra Jón var sóknarprestur á Akranesi í 35 ár.
V* - -------------
Þegar séra Jón Benediktsson, síðasti
presturinn, er sat í Görðum, og sá, sem lét
reisa Garðahúsið, sem enn stendur, — en
sú framkvæmd var allmikið átak á sinni
tíð og um algjöra nýjimg að ræða í bygg-
ingarsögu þjóðarinnar, — fluttist frá Görð-
að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd árið 1886,
eftir 21 árs prestsþjónustu hér, vígðist til
Garðaprestakalls 28 ára gamall kandidat,
norðlenzkur að ætt, er varð sóknarprestur
Akumesinga um 35 ára skeið. Þessi mað-
ur var Jón Sveinsson, prófastur. Fullu
nafni hétt hann Jón Andrés. Hann var
fæddur að Snæringsstöðum í Svínadal í
Austur-Húnavatnssýslu 11. september
1858, og eru því rétt hundrað ár liðin
frá fæðingu hans. Foreldrar séra Jóns vom
Sveinn, bóndi lengst á Ytri-Löngumýri í
Blöndudal, Þorleifsson, hreppstjóra í Stóra-
Dal í Svinavatnshreppi, Þorleifssonar, og
kona hans, Sigríður Pálmadóttir, bónda
í Sólheimum í Ásum, Jónssonar. Mun síra
Jón hafa verið heitinn eftir móðurafa sín-
um. Hann ólst upp hjá foreldrum sinum
og taldi sig til heimilis hjá þeim, þar til
hann, að loknu kandidatsprófi, fékk fasta
stöðu í Reykjavik. — Foreldrar séra Jóns
voru sæmilega stæð og kostuðu hann í
skóla, og vel var hann að heiman búinn,
að sögn sólabróður hans.
Faðir hans dó árið 1885, tæpu ári áður
en hann vígðist, og móðir hans 12 árum
síðar, 1897. Séra Jón settist 18 ára gam-
_________________;
all í 1. bekk Latínuskólans og var þar við
nám til stúdentsprófs, er hann lauk í júlí
1882, með I. eikunn. Hann var góður og
farsæll námsmaður. Stærðfræði og gömlu
málin: latína og gríska, sem og móðurmál-
ið, vom eftirlætisgreinir hans.
1 bekk með séra Jóni vom margir af-
bragðsnámsmenn og síðar þjóðkunnir
menn. 1 þeim hópi vom m. a. Jón Stefáns-
son, dr. phil., séra Kristinn Daníelsson,
Ólafur Davíðsson, þjóðsagnaritari, Jón
Þorkelsson (fomi), séra Ámi Jónsson
(prestur á Skútustöðum), séra Hafsteinn
Pétursson, Sigurður Thoroddsen, yfir-
kennari; ennfremur Níels R. Finsen, ljós-
læknirinn heimskunni. Hannes Thor-
stteinsson, sonur Áma landfógetta, var og
í bekk með séra Jóni og vom þeir mjög
samrýmdir. Lásu þeir löngum saman
heima hjá Haxmesi, í litlu herbergi uppi á
lofti í gamla landfógetahúsinu.
Séra Jón Sveinsson lauk kandidatsprófi
í guðfræði eftir tveggja ára nám í presta-
skólanum, 3. september 1884, með mjög
hárri I. einkunn.
1 skóla eignaðist séra Jón góða félaga og
vini. Sjálfur var hann svo prúður skóla-
sveinn og ljúfur, að skólabræður hans
sóttust eftir að fá að deila stundum og
dögum með honmn. Hógvær og stilltur
gekk hann um sali skóla síns, og þannig
var einnig ferill hans í æfistarfi til hinztu
stundar.
146
AKRANES