Akranes - 01.07.1958, Blaðsíða 16
inn í Holtin við Berjadalsá. — Hér a
varð skjótt mikil breyting eftir að Pétur
komst á þing. Sama mátti segja um sima-
lagningar. Frá því fyrir síðustu aldamót
var hér vakandi óvenjulega sterk alda
fyrir friðun Faxaflóa fyrir öllum togveið-
um og var almenningur sem stóð óvenju-
lega þétt um þessa kröfu, og var hvc't
tækifæri notað til þess að halda þessu
máli vakandi.
Þetta mál gerði Pétur þegar á fyrsta
þingi að sínu mesta baráttumáli, svo að
þar ber hann höfuð og herðar yfir alla
samþingsmenn sína á hverjum tíma.
Pétur gengm- ekki að neinu verki með
hálfum huga eða afli. Ef hatm telur það
þess vert að koma því fram, verður allt
undan að láta áður en gefizt er upp. Fljót-
lega varð Pétur mjög laginn samninga-
maður, ítinn og sannfærandi, því að hann
krafði hvert mál svo til mergjar, að hann
gjörþekkti kosti þess, veilur og vankanta.
Lægni hans og samvinnuþýðleiki hefur
þó ákveðin takmörk, því að eigi haim að
slá af eigin málstað til óþurftar og meira
en samvizkan leyfði, er enginn fastari fyr-
ir og óhagganlegri. Pétur er alltaf hreinn
og beinn og hatar allt baktjaldamakk og
sýndarmennsku.
Pétur er löngu viðurkenndur sem einn
bezti þingmaður sem á þingbekkjum hef-
ur setið. Ekki aðeins af flokksmönnum
hans, heldur mönnum úr öllum flokkum.
Ég tel hann hiklaust mesta þingskör-
ung Borgfirðinga fyrr og síðar, að Hann-
esi Stephensen ekki undanskildum. Pétur
hefur ekki fiskað eftir virðingamerkjum
eða bitlingmn. Hann er vist allra þing-
manna lausastur við það. Hann gengur
heill og óskiptur að störfum á Alþingi,
og ekki er hann fyrr kominn heim, en
hann hefur ýtt bát sínum úr nausti, eða
gengið óhikað til annarra bústarfa.
Á sviði félagsmála hefur Pétur notið
óvenjulegs trausts og þar jafnan settur i
fremstu víglínu. Þar hefur hann gengið
heill til starfs og lagt sig allan fram, og
hlotið maklega viðurkenningu fyrir. F-'r
títt mun að hitta fyrir svo heilsteyptan
mann og fjölhæfan til starfs. Pétur er
alltaf glaður og reifur, fjörugur, fyndinn
og viðræðugóður í hvaða hópi sem er.
Á sjötugsafmæli Péturs á Ytra-Hólmi,
2. ágúst s. 1., fór enginn í grafgötur um
vinsældir hans og margvísleg virðingar-
merki og þakkartákn fyrir vel unnin störf
á löngum og farsælum starfsdegi, en hann
hefur nú lengst verið þingmaður allra
þingmanna samfleytt á Islandi fyrr og
síðar.
Mikill fjöldi heimsótti Pétur þennan
dag, og voru sumir langt að komnir og
þar voru fleiri en sauðtryggir kjósendur
S j álf stæðisf lokksins.
Helztu gjafir, sem Pétri hárust þennan
dag, voru:
1. Frá Búnaðarfélagi Islands, áletrað gull-
úr með gullkeðju.
2. Frá Fiskifélagi Islands, hin ljósprent-
aða Guðbrandsbiblía í fögru bandi.
3. Frá Stéttarsambandi bænda, málverk
af Þingvöllum.
4. Frá Sláturfélagi Suðurlands, mjög
vandað upptökutæki.
5. Frá Bændafélagi Innri-Akraneshrepps,
stór ljósmynd af bæ Hannesar Step-
hensens á Ytra-Hólmi.
6. Frá Guðmundi Jónssyni oddvita á
Innra-Hólmi, stór ljósmynd af Ytra-
Hólmi, eins og hann er nú.
7. Þá tilkynnti Guðmundur Jónsson,
skólastjóri á Hvanneyri f.h. kjósenda
og vina Péturs í kjördæminu, að gerð
yrði lágmynd af þeim hjónum báðura,
Pétri og Petrínu Ottesen, og henni
komið fyrir í blómagarði framan við
hús þeirra.
Framhald á bls. 157.
152
ARRANES