Akranes - 01.07.1958, Page 22

Akranes - 01.07.1958, Page 22
ÁRNI G. EYLANDS: ÞÓRA IHIILAÐHOIND / Fjör'öum Hásumar heima í Fjörðum, hammgjan blasti við, auður og gnótt í görðum, garpar mitt frændalið, bróðir sem bar af öllum, bjart var um hag og völd, leikir og starf með stöllum, stefnumót, náttlaus kvöld. Mannþing á Mikluvöllum, margur fráneygur sveinn, annar snjallari snjöllum, snjallastur þó var einn: farmaður sunnan úr Sogni, sæbarinn, ljós á skör, vanari vindi en logni víða í margri för. Man ég er hönd snart hendi, hugans var brugðið ró, eitthvað mig alla brenndi, örara hjartað sió, fjöllin hækkuðu, hafið, himinn og jörðin ný, allt var mér gleymt og grafið, sem gerzt hafði veröld í. Leit ég í augna-eldinn, ógleymd reynist mér sýn, þegar kyrrir á kveldin, kemur hún enn til mín. Æfilangt má ég muna mér hvað í þanka rann: lifa skal frost og funa, feigð mín og líf er hann. Brúöarrániö Að sunnan hann kom hér til nausta í nótt, og nú skulu örlögin ráðin, því hefir hann aftur heim oss sótt, að honum sé örugg bráðin, að málin lúkist og lúkist skjótt, og létt sé að höggva á þráðinn. Nú hyggst hann að láta koma krók svo krappan á móti bragði, að gjaldist hve mjög hanm undan ók, er áður frá vör hann lagði, er hersir svo meyjarmálum tók, að mig ekki fala sagði. Hann veit að ég beið, þó brúðarrán sé blettur á frændahögum, hann veit hvað ég tel mitt líf og lán, þó líklega verði að sögum, en við teljum okkur enga smán, að ástin fer seint að lögum. 1.58 AJRANE.S

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.