Akranes - 01.07.1958, Blaðsíða 24
hér mun ekki notið náða,
nær mun hitt að hrýnist stálin.
/ Faxosjó
Mjög er breytt um svið frá vSogni,
siglt er fyrir Reykjanes,
segir fátt af fjarðalogni,
fast og lengi tíðmn blés.
Nú er mál að leita lægis,
landið fyrir stafni rís,
gróin strönd í örmum Ægis,
athöfn ný og starfi vis.
Fjærst í norðri úr hafi hyllir
hvítan jökul, glæsta sýn,
kveldsól breðann bjarta gyllir,
beinir orðum storð til þín:
Hér skal viðlent vonum öllum,
verkahringur fangastór,
mikil héruð föðmuð fjöllum,
fagrir dalir, gjöfull sjór.
Sigla skal til iimstu ósa,
alltaf stækkar svið og föng,
óskalending knerri kjósa,
kveðja stýri, súð og röng,
stíga að nýju fæti á foldu,
festa heit í nýrri vör,
eiga spor í mjúkri moldu
mörkuð, eftir langa för.
tJtlægan mig gylfi gerði,
gafst mér lítið fangaráð,
gisting undir sjóla sverði
sýnd, ef fengi til mín náð.
Vestur um sæ hann boðskap beindi
bauð til fé og loforð köld,
að fyrir meyjarrán ég reyndi
ríkrar hefndar málagjöld.
Hvergi samt mun okkur iðra,
að við rufum frænda bann.
ljós og heið er nótt hér nyrðra,
nú er bjart um konu og mamn.
Stórra ásta gjöld skal greiða
glöðum huga, sterkri mund.
— Nú skal fella rá og reiða,
rennur skeið um Borgarsund.
Á Borg
Viðlent er ríki bóndans á Borg,
boði hans margir lúta,
hyggjumaður, um tún og torg,
treystir og leysir hnúta,
óskiptinn þó um annarra hag,
á öllu kann Grímur stjóm og lag,
en enginn skildi rekkur reyna
að rjála við hans deildarsteina.
Birni hann fagnar af feginleik,
föng eru næg í görðum,
kunnugur vel hans ættareik
innir um margt í Fjörðum.
Bjöm á við öllu sannorð svör,
segir þó hvergi meir né gjör
en það, sem Grímur gjörla spyr um
og geymir ei hitt i skáladyrum.
Þó sér að bónda þykir mest
um Þóru hlaðhönd í ranni
vert, sem hinn ættargöfga gest,
greinir af raun og sanni:
„Fóstbróður góðs ég minnast má,
marga rausn ég af hersi þá,
160
AKRANES