Akranes - 01.07.1958, Qupperneq 29

Akranes - 01.07.1958, Qupperneq 29
stunda bóklegar iðnir, skrá og rita, endur- rita og auka það, sem áður var ritað. Það er vafalaust, að í klaustrunum varð mik- ið til af þeim bókmenntum formun, sem nú þykir mest prýði að í íslenzkri menn- ingarsögu. Það er einnig öruggt, að í klaustrunum voru bækur betur varðveitt- ar en síðar varð. Það er efalaust mest eftir- sjá í þvi, sem hvarf í umróti siðaskipt- anna hér á landi, hinu mikla véi, sem þjóðleg menning átti þar. En það er svo með klaustrin eins og margt annað, að fleira þarf að athuga i sambandi við' þau, en björtu hliðamar einar. Rekstur þeirra var að mestu byggð- ur á tekjum af jarðeignum og kúgildum. Þar sem þau voru staðsett í litlum hémð- xun, náðu þau brátt þeim tökum á efna- hagslífinu, að mjög illt varð fyrir hændur að standa á móti ásælni þeirra. Þau eign- uðust smátt og smátt meiri hluta jarð- anna og kúgildanna. Þetta hafði það í för með sér, að bændumir urðu leiguliðar, en með því urðu þeir ósjálfstæðari og réðu ekki lengur sínum málum sjálfir af þeim glæsibrag sem áður. Það er athyglisvert, að sú ætt hér á landi, sem mest og bezt vann að Siða- skiptunum, var einmitt nátengd klaustri. Ehi þar á eg við ættmenn Gissurar bisk- ups Einarssonar í Skálholti. Hann hlaut upphaf frama síns fyrir atbeina Hall- dóru abbadísar í Kirkjubæ á Síðu, föður- systur sinnar. Hún styrkti hann og syst- kini hans eins mikið og framast gat. Gissuri kom hún í þjónustu ögmundar biskups í Skálholti, en biskup hjálpaði honum til frekara náms erlendis. Komst hann og bræður hans til mikilla metorða hjá biskupi og varð það til þess, að afkom- endur þeirra urðu um langan aldur ein mest virta embættismannaætt landsins. Gissur Einarsson varð snemma mjög hrifinn af hinrnn nýja sið. Hann hefur strax á námsárum símnn í Þýzkalandi kynnzt honum og hann gagntók hann svo, að hann vann af alhug að þvi að koma honum á hér á landi. Eg tel hiklaust, að Gissur Einarsson hafi gert sér fulla grein fyrir því í upphafi, að Lúthers- kirkjustefnan var ekki aðeins fullkomn- ari í trúarlegum skilningi, heldur leysti hún einnig vandamál, sem voru efst á baugi sem vandamál heimahéraðs hans og annarra héraða viða um land. Það er vitað mál, að klaustrin í Vestur- Skaftafellssýslu sátu mjög yfir hlut hænda. Þetta er lítið hérað og hefur það fljótt komið fram, að tvö klaustur í ekki stærri byggð hlutu að verða ofraun at- vinnuháttunum. Þetta hefur Gissur bisk- up þekkt manna bezt og fundið, að frjó- agn hins nýja siðar leysti þessar viðjar af frændum og vinum á æskuslóðum hans. Jafnframt hefur hann séð, að hin kaþólska kirkjustefna hér á landi var algjör fjötur á athafna- og menningarlíf þjóðarinnar. En hins vegar gaf hinn nýi siður mörg tækifæri til framfara og endurbóta, ef rétt og vel var haldið á málum. Það dylst eng- um, sem kynnir sér sögu Gissurar biskups og sigur hins nýja siðar hér á landi um hans daga, að hann stefndi þar að hærra marki en nokkur annar kirkjulegur höfð- ingi hefur gert bæði fyrr og síðar, að undanteknum Gissuri Isleifssyni biskupi. En sigur Gissurar Einarssonar var að mestu byggður á fylgi alþýðunnar, sem var fyrir löngu orðin langþreytt á ásælni og yfirgangi hinna kaþólsku kirkjuhöfð- ingja, hvað snerti yfirráð og eignarrétt á jörðum og kúgildum. Enda kemur það greinilega fram á biskupsárum Gissurar í Skálholti, hvað hann tók vægt á þessum málum. Enginn Skálholtsbiskup lenti í eins fáum málum út af jarðeignum og hann. En hitt er þó enn athyglisverðara, hvað hann tók þau mál mildum tökum AKRANES 165
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.