Akranes - 01.07.1958, Page 51
fjöldi gripa til fóðrunar fálkarma fékkst
ekki í nærsveitum. Varð stundum að
sækja þessa gripi austur undir Eyjafjöll
eða vestur í Dali. Má nærri geta, hvert
vonleysis- og vandræðaverk þetta hefur
verið, með hliðsjón af samgöngumálum
þeirra tíma.
En þótt fénaður félli hér úr hor af fóð-
urskorti, og fólkið lika, mátti ekki leggja
af hinn „herlega" fálkaflutning til að gefa
þjóðhöfðingjum í Evrópu og Afríku. Þá
voru nautgripirnir fluttir hingað alla leið
frá Danmörku, svo var t. d. eftir Móðu-
harðindhi, að 1785 voru sendir hingað 24
—30 nautgripir til fálkafóðrunar, sbr.
bls. 114.
Allt þetta er raunalegt og hlu-gilegt í
senn. Ritgerð þessi er merk og mikilsverð.
Hún er skilmerkileg, söguleg staðreynd
um einn þátt, kúgunar hins danska kon-
ungsvalds gagnvart Islandi, en ekki eina
blómið, sem danska krúnan notaði i barm
sinn til þess að „lefla“ fyrir erlendum
hirðum og höfðingjum og lyfta Danaveldi
í tölu stórvelda eftir mætti, svo og að
greiða götu danskra utanríkisviðskipta.
Ritgerð dr. Björns Þórðarsonar uin þetta
merkilega efni er mjög nákvæm og itarleg,
eftir því sem heimildir og gögn frekast
leyfa. Hún er vel og skemmtilega rituð,
þar sem háð hans og „kómik“ er auðséð
og spilar hæfilega undir þessum skemmti-
lega þætti hins danska kúgunar-ævintýris
allt fram á 19. öld á þessum sérstæða vett-
vangi, en lengur á ýmsum öðrum sviðum.
Ég þakka dr. Birni einlæglega fyrir
þennan skemmtilega skerf, er hann hefur
með þessari ritgerð enn lagt til íslenz.krar
sögu, sem áður var lítt kunn. Vona ég, að
honum endist enn aldur til að gera nokkr-
um slíkum verkefnum svo góð og skemmti-
leg skil sem hann hefur gert með þessari
ágætu ritgerð og hverju öðru, er hann
hefur ritað. — Ó.B.fí.
★ LEIKLIST ★
Ágæt leiksýning.
Leikfélag Akraness og Karlakórinn
Svanir hafa sameiginlega ráðizt. í að æfa
söngleikinn Gamla Heidelberg. Var frum-
sýning föstudaginn 5. desember s.l. Var
sýning þessi mjög ána'gjuleg og sýnir, að
þar hafa margir kraftar lagzt á eitt. Leik-
stjóm hefir annazt Ragnhildur Steingrims-
dóttir, og má segja, að hún hafi gert
kraftaverk, svo miklum tökum hefir hún
náð á þeim efnivið, senx fyrir hendi var.
Sönginn hefir frú Sigiáður Auðuns æft. og
var hann ágætur.
Aðalhlutverkin, hina kátu yngismau
Kathie og erfðapiánsinn Karl Heinrich,
léku þau Sigurborg Sigurjónsdóttir og
Baldur Ólafsson. Hafa þ au bæði fengizt
lítið eitt. við leiklist áður, en þetta eru
þeina fyrstu stóru hlutverk og varð sýn-
ingin mikill leiksigur fyrir þau hæði.
Önnur aðalhlutverk léku Július Kolbehis
og Óðinn Geirdal. Var leikur þeiiTa mjög
ánægjulegur út í gegn. Ekki mun ég telja
hér fleiri leikara, en þeir voru samtals 18
auk 12 söngmanna. Var raunar merkilegt.
hvað hinar fjölmennu hópsenur gengu
snurðulaust. á ekki stærra leiksviði.
Leiktjöldin málaði Lárus Amason og
voru þau nijög falleg, en leiksviðsstjórn
annaðist, sem fyri-, Gisli Sigurðsson. Leik-
stjóra og aðalleikendum bárust blóm í lok
sýningar og bæjarstjóiánn, Daníel Ágúst-
ínusson, þakkaði ágæta sýningu, fyinr
hönd sýningargesta.
Má óhikað telja þetta með beztu leik-
sýningum, sem hér hafa sézt, og á ég þar
hæði við aðkomnar leiksýningar og innan-
hæjar. — Þ.
AKRANES
187