Akranes - 01.07.1958, Síða 59
þeirrar, sem leysti lúna aí hólmi,
og nú hefur verið flutt yfir fjörð-
inn, og á vonandi lengi eftir að
þjóna helgu Iilutverki.
Nú skýlir honum og ættmömi-
um hans hin nýja, virðulega
Hallgrimskirkja i Saurbæ sem
hann lagði myndarlegan stein i,
og vonandi á að geta staðið þar
um aldir.
1 nóvember s.l. andaðist á ísa-
firði húsfrú Þorbjörg Sveinbjöms-
dóttir frá Teigakoti. Hún var
merk kona og myndarleg húsmóð-
ir, eins og hún átti kyn til. Hún
var glöð og hressileg þrátt fyrir
ýmsan mótgang lífsins. Hún var
gift Konráði Jenssyni, sjómanni
á Isafirði, og áttu þau mannvæn-
leg börn. Þeirra hefur áður ver-
ið getið i þáttum blaðsins.
Nýlega andaðist að heimili sínu
i Borgarnesi, frú Guðrún Guð-
mundsdóttir frá Deild á Akranesi.
Hún var kát og fjörug kona og
svo trygg, að hún hélt ævilangri
tryggð við Akranes og æskuvin-
ina þaðan. Hún var gift Magn-
úsi Ölafssyni afgreiðslumanni og
áttu þau mannvænleg böm. Áð-
ur en hún giftist átti hún og
dóttur með dönskum manni, er
hún gift Einar Bjamasyni, ætt-
fræðingi i Reykjavík.
Frá Sjúkrahúsinu
Páll Gíslason sjúkrahússlæknir
hefur fengið frí frá störfum, um
10—12 mánaða skeið. Fór hann i
byrjun september til dvalar í
London til þess að kynna sér
nýjustu aðferðir og framfarir i
þessari mikilvægu vísindagrein,
þar sem breytingamar em mjög
örar ekki siður en á öðrum svið-
um, og stöðugt nýjar uppgötv-
anir.
í hans stað réðst hingað ungur
læknir, Tryggvi Þorsteinsson,
prófasts frá Vatnsfirði. Er haim
mjög efnilegur og geðfelldur mað-
ur, sem þegar hefur uimið sér
hér álit og vinsældir. Aðrir lækn-
ar, sem nú starfa við Sjúkra-
húsið, em: Bragi Níelsson, candí-
dat, Torfi Bjamason, héraðslækn-
ir, og Hallgrímur Björnsson, svo
að hér er úrvalslið lækna.
Yfirhjúkrunarkona er ungfrú
Sigurlín Gunnarsdóttir frá Steins-
stöðum. En allt starfslið hússins
er úrvalsfólk. Hér líkar því öll-
um vel að vera. — Hitt er svo
aruiað mál, að Sjúkrahúsið vant-
ar sjálfsagt enn eitthvað af nýj-
mn rannsóknartækjum, þvi að
tækninni og kunnáttunni á þessu
sviði fleygir svo hratt fram. Þó
er ekki hægt að gera ráð fyrir,
að svo lítil sjúkrahús hafi allt til
alls i þeim efnmn. En engan
veginn inega jafnvel sinærri hús
verða þar langt á eftir.
1 þessu sambandi vil ég vekja
athygli á hve starf góðra hjúkrun-
arkvenna er ábyrgðarinikið og oft
þreytandi og erfitt, og i beinu
framhaldi af þvi, að kaup þeirra
við nám, og einnig að námi loknu
er mikils til of lágt.
Sementsverksmiðjan
Sementsverksmiðja ríkisins á
Akranesi var vigð 14. júní s.l.
Þá kveikti iðnaðarmálaráðherr-
ftnn, Gylfi Þ. Gíslason, fyrsta eld-
inn undir ofni verksmiðjunnar.
Það má segja, að sá eldur hafi
logað siðan, eða til 28. nóvember,
að undanteknum 10 dögum, sem
þurfti að stöðva ofninn til þess að
lagfæra fóðríngu í honum.
Bremisla liráefnisins hefur
gengið mjög vel, og afköstin meiri
en upphaflega var gert ráð fyrir,
eða um 300 tonii á sólarhring.
8. ágúst var fyrsta seinentinu
pakkað, og hefir sala Jiess gengið
mjög vel, mest hefur verið selt
til Reykjavíkur. Verksmiðjan
leigði danskt skip „Dasía“ til að
annast flutninghin þangað.
Nú þegar mun vera búið að
selja um 30.000 kg. af sementi og
af því magni mun vera meira en
helmingur til Reykjavikur.
Allmikið virðist vera eftir við
að fullgera byggingar verksmiðj-
unnar og er nú unnið við það eins
og hægt er á þessum árstima.
Allmörgum verkamönnum hef-
ur nú verið sagt upp, þar sem
aðalbyggingarframkvæmdum er
nú lokið.
Píanóhljómleikar
Þórunn Jóhannsdóttir hélt pi-
anótónleika í Bíóhöllinni 17. okt.
Lék hún þar mörg erfið viðfangs-
efni og leysti þau af hendi sem
sönn listakona, enda er hún nú
að verða fullþroskuð. Framför
hennar er ótviræð frá því, er hún
siðast hélt hér tónleika fyrir
þrem árum. Þóiunn hefir ætið
lofað Akurnesingum að njóta list
ar sinnar, þegar hi'in hefir kom-
ið heim, en hún hefir verið bú-
sett í Englandi frá tólf ára aldri,
stöðugt við nám. Framtið hennar
sem listakonu virðist verða glæsi
leg. en jafnan er hún saina lát-
lausa, litla stúlkan, sem þó er
urÖin stór. Akranes óskar lienni
hamingju á framtiðarbraut sinni.
Kirkjutónleikar
á vegum MenntamálaráÖs og
Ríkisútvarpsins.
Dr. Páll Isólfsson, Bjöm Ölafs-
son, fiðluleikari og Guðmundur
Jónsson, óperusöngvari, héldu
sameiginlega tónleika í Akranes-
kirkju 23. október. Viðfangsefni
listamannanna voru vel valin til
flutnings fyrir ahnemiiug og gerð
góð skil, sem vænta mátti. Enda
voru áheyrendur, sem þó voru of
fáir, hrifuir og þakklátir yfir
komu þeirra.
Hið gamla orgel kii-kjuunar
kastaði ellibelgnum, enda þótt
meistari Páll jrrði að sleppa þeini
orgelverkum, sem hann hefði
kosið að flytja.
Vonandi verður hið væntanlega
pipuorgel komið næst þegar dr.
Páll kemur hingað.
AKRANES
195