Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1913, Qupperneq 24
GANGtJR TUNGLS OG SOLAR Á ÍSLANDL
í þriðja dálki hrers mánaðar og í tðflanni á eptir December-
mánuði er sýnt, hvað klukkan er eptir íslenzkum meðaltíma,
þegar tunglið og sólin eru í hádegisstað í Reykjavík. En viiji
menn vita, hvað klukkan sje eptir íslenzkum meðaltíma, þegar
tunglið eða sólin er í hádegisstað á öðrum stöðum á íslandi, þá
verðá menn að gera svo nefnda „lengdar-leiðrjetting“ á Reykja-
víkurtölunni. Verður hún ~ 4 mínútur fyrir hvert lengdarstig, sem
staðurinn liggur ausfar en Reykjavík, og -f- 4 m. íyrir hvert lengd-
arstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavík, t. d. á Seyðisfirði
-l-32ni., á Akureyri -j- 16 m., á ísafirði -f- 5 m. 15. Febrúar er
tunglið t. d. í hádegisstað í Reykjavík kl. 7. 39' e. m.; sama
kveldið er það þá í hádegisstað á Seyðisfirði kl. 7. 7‘, á Akureyri kl.
7. 23', á ísafirði kl. 7. 44', alt eptir íslenzkum meðaltíma.
Á þeim tölum, sem sýna sólarnpprás og sólarlag, verða menn
auk lengdar-leiðrjettinganna að gera „breiddar-leiðrjetting." Hun
verður á þeim stöðum, sem liggja 2° og 1° (stigi) norðar en
Reykjavík, sem hjer segir:
22. Jan. 19. Febr. 19. Marts 16. Apr. 14. Maí
4- 24m. i 9 la- Om. T 9 m. 7p 24 m.
4- U m. + 4m. 0 m. T 4 m. 11m.
30. Júlí 27. Ág. 24. Sept. 22. Okt. 19. Nóv.
4" 24 m. Tp 9 m. 0 m. ± 9 m. -p 23 m.
4“ 11 m. + 4 m. 0 m. ± 4 m. + 10 m.
og sýnir þá efra teiknið á undan tölunum sóiarupprás, en hið
neðra sólarlagið.
Sem dæmi má taka Akureyri, sem er R/2 breiddarstigi norðar
en Reykjavík;
19, Nóvember í Reykjavík s. u, 9. 11' s. 1. 3.14'
lengdar-leiðrjetting -1-16 -1-16
breiddar-leiðrjetting______+ 17___________E7
20. Nóvcmber á Akureyri s. u. 9.12' s. 1. 2.41'
eptir íslenzkum meðaltíma.
Um uppkomu og undirgöngu tunglsins er alment þetta að
segja: Kringum þann dag, er við stendur í 4. dálki hvers mán-
aðar „tungl lægst á iopti", er tunglið, þegar það er í hádegisstað,
fyrir neðan sjóndeildarhringinn og kemur yfirleitt ekki upp. Kring-
um þann dag, er við stendur „tungl hæst á lopti“, er tnnglið,
þegar það er í hádegisstað, hjerumbil 55 stig fyrir ofan sjón-
deildarhringinn og gengur yfirleitt ekki undir. Viku á undan og
viku á eptir þessum dögum er tunglið hjerumbil 26 stig fyrir ofan
sjóndeildarhringinn, þegar það er í hádegisstað, kemur upp í austri
6 stundum éður og gengur undir í vestri 6 stundum síðar. 8.
September stendur t. d. „tungl lægst á lopti“. Það merkir nú á
árinu 1913, að það kemur ekki upp þann dag, og þá líka heldur
ekki 2 dögum á undan og á eptir.