Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1913, Page 26
I árslok lðll voru 714 sináplánetur kunnár#
Arið 1911 sáust 8 halastjörnuv. Tvær þeirra, sem sé halu-
stjörnur Wolf’s og Encke's, áttu heitna í skránni yíir rásbnndnar
lialastjörnur (sjá Alman. 1912), og s.ömuleiðis hin þriðja, hala-
stjarna Borrelbjs, sem menn voru búnir að sjá 1905, og því
verður nýtt númer i þeirri skrá með 7 ára umferðatíma kringum
sólina. Hinar fimm voru nýjar, og þrjár af þeim líka stórar, svo
að þær voru harla sjáleg sjón eins með berum angum.
Næsta ár, 1914, ber páskana upp á 12. Apríl.
ÚR TILSKIPUN 3. FEBRÚAR 1836.
VII. atr. um almanök;
1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, sem Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök,
annaðhvort með því að flytja til íslands eða selja útlend
almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Ag. 1831); þau almanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar
á ofan V4 rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helming sekta-
fjárins , og, almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en
annar helmingur gengur til stjörnuturnsins í Kaup-
mannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var talið.
3- gr. Öll mál, sem rísa af að einkaleyfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber Iögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almanak þetta koátar óinnfest 1 o aura, en innfest 11
aura, alstaðar á Islandi og í Danmörku; en Gyldendals bóka-
verzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til
að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem
kíiupa 5° eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt
að skila aptur óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs-
lolca 1913; verður þeim þá borgað andvirði þeirra, sem ósködduð
eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; skyldir
eru þeir ogað syna reikninga bókaverzlunarinnar, ef krafizt verður.